Beckham vill fá Neville til að þjálfa liðið sitt Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. janúar 2021 15:30 David Beckham og Phil Neville gætu sameinast á ný hjá Inter Miami í Bandaríkjunum. getty/Mike Egerton David Beckham vill fá sinn gamla samherja hjá Manchester United og enska landsliðinu, Phil Neville, til að taka við Inter Miami, liðinu sem hann á.
Neville er þjálfari enska kvennalandsliðsins en hættir með það eftir Ólympíuleikana í Tókýó. Sarina Wiegman, þjálfari Hollands, tekur við starfi hans hjá Englandi. Beckham hefur áhuga á að fá Neville til að taka við Inter Miami fyrir næsta tímabil sem hefst í mars. Diego Alonso, sem stýrði Inter Miami á fyrsta tímabili liðsins í MLS-deildinni, hætti í dag sem þjálfari þess og Beckham þarf því að finna eftirmann hans. #InterMiamiCF and Manager Diego Alonso have mutually agreed to part ways. Club Statement https://t.co/TmxXJXvTyP— Inter Miami CF (@InterMiamiCF) January 7, 2021 Ljóst er að ef Neville tæki við Inter Miami þyrfti hann að hætta fyrr hjá enska knattspyrnusambandinu en áætlað var. Inter Miami endaði í 10. sæti Austurdeildar MLS-deildarinnar á síðasta tímabili. Beckham hefur fengið sterka leikmenn til liðsins og má þar helst nefna markahrókinn Gonzalo Higuaín og franska heimsmeistarann Blaise Matuidi. Neville hefur ekki áður verið aðalþjálfari karlaliðs en var áður aðstoðarþjálfari hjá Manchester United og Valencia. Neville og Beckham léku lengi saman hjá United og eru hluti af hinum fræga '92 árgangi ásamt Ryan Giggs, Paul Scholes, Nicky Butt og Gary Neville, eldri bróður Phils.
Fótbolti Mest lesið Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham ? Fótbolti Stúkan: FH í miklum vandræðum Fótbolti Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Enski boltinn Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu Formúla 1 Bruno bætti metið eða hvað? Enski boltinn Como í Meistaradeild í fyrsta skipti í sögu félagsins Fótbolti Daníel Tristan lagði upp í tapi Malmö Fótbolti Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Körfubolti Elín Klara sænskur meistari Handbolti Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Enski boltinn Fleiri fréttir Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham ? Como í Meistaradeild í fyrsta skipti í sögu félagsins Stúkan: FH í miklum vandræðum Daníel Tristan lagði upp í tapi Malmö Erfiður dagur á skrifstofunni Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Vestri gæti mætt stórveldi á Þróttarvelli Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Fernandes valinn besti leikmaður tímabilsins Orri á skotskónum Kane með þrennu í úrslitaleik Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Barcelona Evrópumeistari Guðrún vann Íslendingaslaginn og Kristianstad í brasi Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Skikkaðir í einangrun fram að HM Benítez rekinn eftir 40 leiki Spilar sinn síðasta leik í dag Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Sjá meira