Verðskuldað tap Tottenham Anton Ingi Leifsson skrifar 31. janúar 2021 21:05 Trossard skorar sigurmarkið umkringdur leikmönnum Tottenham. EPA-EFE/Mike Hewitt Tottenham tapaði 1-0 fyrir Brighton á útivelli í síðasta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Fyrsta og eina mark leiksins kom í fyrri hálfleik en leikur Tottenham var ekki upp á marga fiska. Fyrsta og eina mark leiksins kom á sautjándu mínútu. Pascal Gross gerði þá vel og fann Leandro Trossard í teignum sem gerði vel og skoraði. 1 - This is the 11th time a side managed by José Mourinho has had one shot or fewer in the first half of a Premier League game, with six of those occasions coming while in charge of Spurs. Blunted. pic.twitter.com/ouKEK5ghh6— OptaJoe (@OptaJoe) January 31, 2021 Það var í raun ekkert að frétta af Tottenham fyrstu 75 mínúturnar. Carlos Vinicius átti þá gott skot en Robert Sanchez varði. Gestirnir frá Lundúnum reyndu hvað þeir gátu en heimamenn unnu mikilvægan sigur og komu sér sjö stigum frá fallbaráttunni. Tottenham er eftir sigurinn í sjötta sæti deildarinnar með 33 stig. Þeir eru tveimur stigum frá West Ham sem er sæti ofar en eiga þó leik til góða. Brighton er í sautjánda sætinu með 21 stig en þetta var þeirra fyrsti heimasigur í háa herrans tíð. FT Brighton 1-0 SpursIt's all over! A HUGE win for Graham Potter's side takes them seven points clear of the bottom three.It's two defeats in four days for Tottenham.#BHATOT #bbcfootball— BBC Sport (@BBCSport) January 31, 2021 Enski boltinn