Innlent

Nauðgunar­dómur mildaður um ár í Lands­rétti

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Dómur yfir manninum var mildaður úr fjögurra og hálfs árs fangelsisvist niður í þriggja og hálfs árs fangelsi. 
Dómur yfir manninum var mildaður úr fjögurra og hálfs árs fangelsisvist niður í þriggja og hálfs árs fangelsi.  Vísir/Vilhelm

Dómur yfir manni, sem hafði samræði og önnur kynferðismök við fyrrverandi kærustu sína án hennar samþykkis, beitti hana ofbeldi og hótunum og svipti konuna frelsi, var í dag mildaður úr fjögurra og hálfs árs fangelsisvist í þriggja og hálfs árs fangelsi í Landsrétti.

Maðurinn var áður dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur, en dómur hans um að maðurinn skyldi greiða konunni tvær milljónir króna í miskabætur stendur enn.

Maðurinn og konan sem hann braut á höfðu átt í stuttu sambandi nokkrum mánuðum áður en atvikið átti sér stað. Á þessum tíma bjó maðurinn í Reykjavík en konan á Egilsstöðum, en samkvæmt dómi heimsótti maðurinn hana á Egilsstöðum nokkrum dögum fyrir atburðinn.

Maðurinn lýsir því að þau hafi mælt sér mót og hann farið til Egilsstaða til þess að sækja konuna og fara með hana til Reykjavíkur. Hún hafi hins vegar ekki komist þar sem fyrrverandi eiginmaður hennar, sem hún bjó með, hafi ekki viljað annast börn þeirra á meðan hún færi til Reykjavíkur.

Konan segir hins vegar fyrir dómi að hún hafi beðið manninn um að koma ekki til Egilsstaða. Þau hafi hins vegar farið saman í bílferð síðla kvölds á Egilsstöðum, en að á leiðinni til baka hafi kastast í kekki með þeim þar sem maðurinn hafi verið mjög ósáttur við framkomu fyrrverandi eiginmanns konunnar, sem hún þá bjó með.

Maðurinn hafi þá ekið inn á malarplan fyrir utan Egilsstaði vegna þess að hann vildi ekki að hún færi aftur heim til barnanna og föður þeirra. Samkvæmt vitnisburði konunnar sló maðurinn hana í andlitið, tók um úlnliði hennar, kastaði henni í jörðina og setti hné í bringu hennar. Maðurinn hafi þá rifið í hár hennar og hótað henni og fyrrverandi eiginmanni hennar lífláti.

„Þá lýsti hún því að ákærði hefði ítrekað tekið hana föstu kverkataki og haldið það fast að hún gat vart andað. Þá kvað hún ákærða hafa rifið hana úr buxunum, sett fingur í leggöng og haft við hana samfarir án samþykkis hennar,“ segir í dómnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×