Fjölskylda Freyju minnist hennar: „Þú munt ávallt lifa í hjörtum okkar“ Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 15. mars 2021 19:37 „Frá okkar dýpstu hjartarótum viljum við þakka öllum þeim sem hafa hugsað til okkar og gefið okkur styrk,“ skrifar fjölskylda Freyju Egilsdóttur í minningargrein. Østjyllands Politi/Twitter „Glaðlynda Freyja okkar, sem vildi öllum allt það besta og hafði mikla samúð, var alltaf hjálpsöm og reyndi alltaf að hvetja fólkið í kring um sig. Hún var mikill tónlistarunnandi og naut þess að dansa við tónlist, hún elskaði liti og málaði fallegar myndir sem glöddu alla ástvini hennar.“
Þetta skrifar fjölskylda Freyju Egilsdóttur Mogensen, sem var myrt í Malling í Danmörku í febrúar, í minningargrein sem birtist á Stiftstidende Århus í dag. Þau segja að á þessum erfiðu tímum hafi það veitt þeim mikla huggun að finna fyrir stuðningi fjölskyldu, vina og samfélagsins í Malling. „Frá okkar dýpstu hjartarótum viljum við þakka öllum þeim sem hafa hugsað til okkar og gefið okkur styrk,“ skrifar fjölskylda hennar. Fór í skiptinám til Austurríkis og Frakklands Fjölskyldan skrifar um æviágrip Freyju, sem fæddist árið 1977 og flutti ung að aldri til Selfoss þar sem hún ólst upp. Eftir að Freyja lauk skólagöngu sinni leið ekki á löngu þar til hún fór að hugsa sér til ferðar. Þegar hún var sautján ára gömul flutti hún sem skiptinemi til Austurríkis og bjó þar hjá fjölskyldu sem hún hefur haldið sambandi við alla tíð. „Nokkrum árum seinna, eftir menntaskólann, flutti hún ein síns liðs til Frakklands til þess að fara í nám. Þar var hún, eins og alls staðar annars staðar, vinsæl og vel liðin,“ segir í minningargreininni. „Freyja var mjög klár, hún átti auðvelt með að læra og talaði fimm tungumál. Á leið sinni heim frá Frakklandi heimsótti hún fjölskylduna sína í Austurríki og tvær systur sínar sem bjuggu í Danmörku. Freyja var hugfangin af Danmörku og hún ákvað að búa þar um tíma, sem varð að lokum öll hennar ævi.“ „Veturinn 2021 var Freyja skyndilega tekin frá okkur“ Freyja nam málvísindi við háskólann í Árhúsum en vegna fárra atvinnutækifæra í greininni fór hún í tveggja ára framhaldsnám á sviði félagsþjónustu- og heilbrigðismála. „Það var eitt sem Freyja þráði meira en allt og það var að stofna sína eigin fjölskyldu. Hún elskaði og dáði börnin sín þrjú, Alex, Lúkas og Emmu. Hún var harmi slegin þegar hún missti tvíburasystur Emmu í fæðingu,“ segir í minningargreininni. „Veturinn 2021 var Freyja skyndilega tekin frá okkur og skyldi hún eftir sig tvö ung börn, stjúpson, aldraða móður, þrjár systur og stóra fjölskyldu sem eru harmi slegin. Hún skilur eftir mikið tóm sem verður aldrei fyllt.“ „Freyja, móðir okkar, systir, dóttir, fjölskylda, vinur og kollegi. Þín verður saknað það sem eftir er og þú munt ávallt lifa í hjörtum okkar. Við elskum þig.“ Í fyrri útgáfu fréttar sagði að Freyja hafi farið í skiptinám til Ástralíu en ekki Austurríkis. Þetta hefur verið lagfært.
Morð í Malling Danmörk Íslendingar erlendis Tengdar fréttir Vinir Freyju í Danmörku safna fyrir börnin hennar Danskir vinir Freyju Egilsdóttur, sem var myrt í Malling á Jótlandi í lok janúar, hafa hafið söfnun til stuðnings börnum hennar. Í dag höfðu þegar safnast um 76 þúsund danskar krónur eða sem nemur um 1,6 milljónum íslenskra króna. Líkt og Vísir greindi frá fyrir helgi er einnig hafin söfnun hér á Íslandi fyrir börn og fjölskyldu Freyju. 14. febrúar 2021 19:17 „Kæra Freyja. Ég þekkti þig ekki. Bara örlög þín“ Freyja Egilsdóttir Mogensen var lífsglöð, hjálpsöm, brosmild og góð vinkona að sögn skólasystkina hennar og vina. Íbúar í Malling héldu minningarathöfn við kirkjuna í bænum í dag en frá því upp úr hádegi og fram eftir kvöldi var stöðugur straumur fólks sem lagði leið sína að kirkjunni. 5. febrúar 2021 22:55 Segir börn Freyju í öruggum höndum hjá ættingjum Freyja Egilsdóttir og fyrrverandi sambýlismaður hennar, sem hefur játað á sig morðið, áttu saman tvö ung börn. 4. febrúar 2021 16:20 Mest lesið Allt að helmingur barna heima vegna veikinda Innlent Gjaldtaka af bílum sé hærri en fjárframlög til vegagerðar Innlent Strætó ekið á hjólreiðamann í Laugardal Innlent Vestfirðingar sjá fram á þrenn ný jarðgöng Innlent Konan sem ekið var á er látin Innlent Finnst brotið á réttindum barnsins að orlofið sé skert Innlent „Mér persónulega fannst þetta gríðarlega gaman“ Innlent Skora á Rúv að endurskoða þessa „misráðnu ákvörðun“ Innlent Opna fyrir umferð um „fyrstu hraðbraut á Íslandi“ Innlent Hugrakkir drengir opnuðu sig í fréttum, breyttu kerfinu og skáluðu með Ingu Innlent Fleiri fréttir Gjaldtaka af bílum sé hærri en fjárframlög til vegagerðar Allt að helmingur barna heima vegna veikinda Vestfirðingar sjá fram á þrenn ný jarðgöng Landhelgisgæslan eignast sjálfstýrða kafbáta „Mér persónulega fannst þetta gríðarlega gaman“ Hugrakkir drengir opnuðu sig í fréttum, breyttu kerfinu og skáluðu með Ingu Strætó ekið á hjólreiðamann í Laugardal Refsing milduð yfir burðardýri Finnst brotið á réttindum barnsins að orlofið sé skert Þjófar sendir úr landi Fær bara hálft fæðingarorlof og veik leikskólabörn Björn Dagbjartsson er látinn Hvetja til bólusetningar vegna inflúensufaraldurs Slapp ekki með typpamynd til þrettán ára Halda starfsleyfinu þrátt fyrir kröfur íbúa Opna fyrir umferð um „fyrstu hraðbraut á Íslandi“ Vill skoða úrsögn úr EES Leigubílstjóri og vinur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Skaftárhlaup enn yfirstandandi Helgi Valberg tekur við ritarastöðunni Stór áfangi Borgarlínu afgreiddur í skipulagsráði og á leið í kynningu Rannsókn lokið þrjátíu árum eftir snjóflóðið Kópavogur svarar: Ljósmagnið á skiltinu minnkað og þverun væntanleg Lífsýni úr öðrum manni nýju sönnunargögnin Ljóst að einhverjir dragi lög sín til baka Konan sem ekið var á er látin Styrkirnir ekki auglýstir: Segir Miðflokkinn haldinn hysteríu og ótta við þjóðina Skora á Rúv að endurskoða þessa „misráðnu ákvörðun“ Trampólín á flugi og vagn á hliðinni Tekist á um fangelsismálin og Útvarpsstjóri ræðir framtíð Söngvakeppninnar Sjá meira
Vinir Freyju í Danmörku safna fyrir börnin hennar Danskir vinir Freyju Egilsdóttur, sem var myrt í Malling á Jótlandi í lok janúar, hafa hafið söfnun til stuðnings börnum hennar. Í dag höfðu þegar safnast um 76 þúsund danskar krónur eða sem nemur um 1,6 milljónum íslenskra króna. Líkt og Vísir greindi frá fyrir helgi er einnig hafin söfnun hér á Íslandi fyrir börn og fjölskyldu Freyju. 14. febrúar 2021 19:17
„Kæra Freyja. Ég þekkti þig ekki. Bara örlög þín“ Freyja Egilsdóttir Mogensen var lífsglöð, hjálpsöm, brosmild og góð vinkona að sögn skólasystkina hennar og vina. Íbúar í Malling héldu minningarathöfn við kirkjuna í bænum í dag en frá því upp úr hádegi og fram eftir kvöldi var stöðugur straumur fólks sem lagði leið sína að kirkjunni. 5. febrúar 2021 22:55
Segir börn Freyju í öruggum höndum hjá ættingjum Freyja Egilsdóttir og fyrrverandi sambýlismaður hennar, sem hefur játað á sig morðið, áttu saman tvö ung börn. 4. febrúar 2021 16:20