83 Palestínumenn hafa fallið á Gasasvæðinu frá því að átök brutust út á mánudag samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum á Gasa og sjö í Ísrael. Samkvæmt AP-fréttaveitunni eru sautján börn meðal hinna látnu á Gasasvæðinu og hátt í fimm hundruð særðir.
„Þessi átök sem eru núna eru framhald af miklu lengri sögu sem helgast af því að Ísrael hefur yfirtekið Vesturbakkann með því að senda þangað fullt af landnemum sem hafa bolað burtu Palestínumönnum. Það sem er að gerast í Austur-Jerúsalem er að það er verið að hrekja fólk af heimilum sínum til þess að flytja þar inn Gyðinga,“ segir Hjálmtýr Heiðdal, fyrrum stjórnarmaður í félaginu Ísland-Palestína.
„Nú þegar þetta gerist, á trúarhátíð múslima, er að það er áframhald af þessum aðgerðum Ísraels að henda fólki af heimilum sínum og yfirtaka þau.“
Kemur ekki á óvart í ljósi sögunnar
Hann segir gefa augaleið að þegar ísraelska lögreglan réðist inn í al-Asqa moskuna, sem staðsett er á Musterishæð í Jerúsalem, þegar múslimar voru við bænahald hafi það verið vísvitandi ögrun. Vaxandi spenna hafði verið vegna áforma yfirvalda í Ísrael um að reka Palestínumenn frá Shaikh Jarrah-hverfi Austur-Jerúsalem sem ísraelskir landtökumenn hafa sölsað undir sig.
„Síðan bætist það við að Hamas á Gasa-svæðinu lýstu því yfir við Ísraelsstjórn að ef ekki yrði hætt við þessar aðgerðir, að henda fólki á götuna í Austur-Jerúsalem, að þá myndi Hamas svara og þá með sínum flugskeytum sem þeir hafa sent yfir til Ísrael. Það kallar alltaf á rosaleg viðbrögð hjá Ísrael; þeir eru búnir að senda fleiri tugi orrustuflugvéla til þess að varpa sprengjum á Gasa – þetta þéttbýla svæði,“ segir Hjálmtýr.
Hann segir stöðuna ekki koma neinum sem fylgst hefur með málefnum Palestínu á óvart.
„Þetta er ekkert nýtt, þetta kemur okkur ekkert í opna skjöldu. Þetta er framhald af því ástandi sem hefur ríkt allt frá stofnun Ísraelsríkis.“
![](https://www.visir.is/i/164112E8C3A17331AAEED86979F829E63049A7B2CCABE7952744F47DB09FED7E_713x0.jpg)
Hefndaraðgerðir í engu hlutfalli við völd Ísraels
Hjálmtýr heimsótti Gasa í kjölfar árásanna árið 2008 og 2009 og segist hafa séð þar svart á hvítu afleiðingarnar. Það skipti engu máli hvort talað sé um 2009, 2014 eða 2021 – sagan sé alltaf sú sama.
„Í hvert skipti sem Palestínumenn láta vita af sér kemur rosaleg hefndaraðgerð sem er í engu hlutfalli við þau völd sem eru þarna á svæðinu,“ segir Hjálmtýr. „Það eru Ísraelar sem hafa yfirgnæfandi herstyrk og í rauninni hafa Palestínumenn engan her, þeir hafa léttvopnaðar sveitir og þessi heimatilbúnu flugskeyti sín sem virðast hafa gert einhvern skaða.“
Hann segir því varla hægt að tala um átök. Þarna sé Ísrael að ráðast á minni máttar og það sýni sig best í fjölda þeirra sem fallið hefur á Gasa samanborið við mannfall í Ísrael. Palestínumenn hafi enga aðstöðu til þess að verjast gegn einum sterkasta her í heimi og því sé málflutningur leiðtoga vestrænna ríkja um rétt Ísraels til að verja sig fjarstæðukenndur.
„Það er ætíð sagt, í svipuðum dúr og Biden og utanríkisráðherra Bandaríkjanna segja núna, að Ísrael hafi rétt til þess að verja sig. Þetta er ekkert spurning um það að Ísrael sé að verja sig, þeir eru árásaraðilinn. Ísrael er ekki að verja sig, þeir eru að ráðast á annað fólk.“