Samgönguskipulag Álaborgar er til fyrirmyndar Þórarinn Hjaltason skrifar 31. maí 2021 10:00 Í greininni „Í Álaborg eru samgöngur fyrir alla“ sem birtist nýlega hér á Vísi kemst ég að þeirri niðurstöðu að borgaryfirvöld í Álaborg stefni að betri samgöngum fyrir alla ferðamáta. Þar sé ekki á stefnuskrá að fjölga sem mest farþegum í almenningssamgöngum með því að setja sem minnst fjármagn í uppbyggingu vega og auka þannig verulega umferðartafir. Ole H.W.Jensen og Ólöf Kristjánsdóttir sem bæði eru ráðgjafar í Borgarlínuverkefninu brugðust við með greininni „Borgarlínan og Plusbus í Álaborg“ þar sem þau komast að annarri niðurstöðu. Því ber að fagna að sérfræðingar skiptist á skoðunum um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu. Af einhverjum ástæðum hefur verið lítið um það. Vonandi verður breyting á því. Hraðbrautir Ole og Ólöf segja að það sé ekki stefna Álaborgar að fá fleiri hraðbrautir (mótorvegi) og fyrirhuguð gerð nýs mótorvegar sé verkefni sem snýr fyrst og fremst að því „að greiða leið umferðar í gegnum Álaborg frekar en að auka umferðarrýmd innan borgarinnar“. Þessu er ég ósammála og færi fyrir því eftirfarandi. Mynd 1. Skipulag mótorvega í Álaborg. Fyrirhugaður mótorvegur er rauðlitaður. Heimild: http://3limfjordsforbindelse.nu/kort-og-illustrationer Borgaryfirvöld hafa ásamt ýmsum hagsmunaaðilum á Norður-Jótlandi sótt fast á að fá þessa tengingu undir/yfir Limafjörðinn, enda verður hún mikil samgöngubót fyrir bæði Álaborg, grannsveitarfélög og N-Jótland, sbr. þessa greinargerð nefndarinnar 3. Limfjordsforbindelse NU! Núverandi tengingar yfir/undir Limafjörðinn eru fullnýttar með samtals um 120 þús. bíla á sólarhring. Á álagstíma eru langar biðraðir við tengingarnar og eru þær mestu flöskuhálsarnir í gatnakerfi Álaborgar. Því er spáð að rúmlega 30 þús. bílar á sólarhring muni nota þriðju tenginguna. Mótorvegakerfið í Álaborg verður eins og sýnt er á mynd 1. Efst á myndinni sameinast nýi mótorvegurinn E 39 sem liggur norður til ferjuhafnarinnar í Hirtshals. Eldri mótorvegir eru grálitaðir. Sá veigamesti er E 45 sem er 6 akreinar á kafla þar sem umferðin er mest og liggur um austurhluta borgarinnar og endar við ferjuhöfnina í Frederikshavn. Vegna legu nýju tengingarinnar er ljóst að þeir sem í dag aka E 45 í gegnum Álaborg í áttina að Frederikshavn munu ekki nota hana. Um þriðji hluti íbúa Álaborgar býr mjög dreift utan þéttustu byggðarinnar (Ålborg by og Nörresundby), aðallega í litlum byggðakjörnum. Þessir íbúar eru því mjög háðir einkabílnum og ljóst að gott umferðarástand á mótorvegunum hefur mikla þýðingu fyrir þá. Auk þess er töluvert um að íbúar í grannsveitarfélögum sæki bæði vinnu og þjónustu til Álaborgar. Hér má finna íbúafjölda virkra borgarsvæða skv. skilgreiningu OECD (e. functional urban area) : https://www.oecd.org/cfe/regionaldevelopment/Appendix_all_fuas.pdf Þarna má sjá að íbúafjöldi virks borgarsvæðis Álaborgar er um 300 þús. (2015). Samgöngustefna Í dag eru 37 % heimila án aðgangs að bíl. Það kemur því ekki á óvart að ferðavenjur í Álaborg séu töluvert ólíkar ferðavenjum hér á höfuðborgarsvæðinu. Rétt rúmlega helmingur ferða er með einkabíl, 7 % með almenningssamgöngum og um 40 % ferða eru gangandi og hjólandi. Hér er hlekkur á stytta útgáfu af stefnuskjalinu Mobilitet 2040: https://www.aalborg.dk/media/10716141/bilag-3-mobilitet-2040-pixi-version.pdf Stefnt er að því að hlutur almenningssamgangna verði 10 % og Álaborg verði ein af leiðandi hjólreiðaborgum Danmerkur. Jafnframt er markmið að fækka verulega ferðum með einkabíl þar sem einungis einn er í bíl. Reiknað er með að sjálfakandi bílar og önnur framtíðartækni geti stuðlað að því að þessum markmiðum verði náð. Rauði þráðurinn í stefnunni er góður hreyfanleiki fyrir alla. Meira verður þó gert fyrir gangandi og hjólandi en einkabílinn, einkum í miðborginni. Í þessum fréttapistli er rætt við borgarfulltrúa í Álaborg sem bendir á að með þessari stefnu megi forðast langar biðraðir bíla eins og eru í Kaupmannahöfn og Árósum: https://politikenbyrum.dk/Nyheder/art6894460/Mobilitetsplan-skal-sikre-Aalborg-mod-at-ende-som-K%C3%B8benhavn-og-Aarhus Plusbus Ég er sammála Ole og Ólöfu um að hraðvagnakerfið Plusbus verður hágæða almenningssamgöngukerfi, óháð því hvort það muni uppfylla kröfur ITDP um BRT. Um er að ræða 2 hraðvagnaleiðir. Framkvæmdir standa yfir við Plusbus 1 og verður lokið 2023. Frumathugun á Plusbus 2 liggur fyrir. Áætlaður kostnaður við hraðvagnaleiðirnar er samtals um 20 milljarðar ISK. Gert er ráð fyrir að Plusbus 2 aki um Limafjarðarbrúna, sem er önnur af núverandi tengingum yfir/undir Limafjörðinn. Brúin er 4 akreinar og um hana aka um 30 þús. bílar á sólarhring. Ole og Ólöf benda réttilega á að reiknað er með að Plusbus 2 aki um sérrými á brúnni þannig að aðeins 2 akreinar verði fyrir almenna umferð. Þau telja að með þessu sé verið að þrengja að bílaumferð. Það má til sanns vegar færa miðað við ástandið í dag, sbr. þessa frétt um afleiðingarnar af því að taka 2 akreinar úr notkun vegna framkvæmda við brúna: https://nordjyske.dk/nyheder/aalborg/bilkoeer-overalt-pas-paa-hvis-du-skal-krydse-bymidten-i-aalborg/c66abed6-a3bd-4419-9e46-da9f78317328 Með tilkomu nýs mótorvegar munu biðraðir við Limafjarðarbrúna styttast verulega, þar eð hluti af umferðinni mun færast yfir á mótorvegina. Lokaorð Að öllu samanlögðu er ljóst að það er ekki stefna Álaborgar að þrengja að umferð einkabíla með aukningu umferðartafa. Þvert á móti er stefnt að góðum samgöngum fyrir alla ferðamáta. Markmið um aukningu á hlut almenningssamgangna úr 7 % ferða upp í 10 % er mun raunhæfara en áætlun SSH um að þrefalda hlut almenningssamgangna. Í Álaborg verða lagðir margfalt meiri fjármunir í vegaframkvæmdir en innviði fyrir almenningssamgöngur. Þegar nýja tengingin verður komin verður búið að leggja hundruði milljarða í mótórvegakerfið á Álaborgarsvæðinu. Við erum langt á eftir í þeim efnum. Í Álaborg er ekki fyrirhugað að leggja mótorvegi í stokka fyrir tugi milljarða, þrátt fyrir að hámarkshraði á þeim sé 110 km/klst. Að öllu samanlögðu er samgönguskipulag Álaborgar til fyrirmyndar. Höfundur er umferðarverkfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Samgöngur Borgarlína Þórarinn Hjaltason Mest lesið Lögfræðingurinn sem gleymdi tilgangi laga Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði Karl Héðinn Kristjánsson Skoðun Munu Ísraelsmenn sprengja bifreið páfa í loft upp? Einar Baldvin Árnason Skoðun Þétting byggðar – nokkur mistök gjaldfella ekki stefnuna Samúel Torfi Pétursson Skoðun Breyta lífum til hins betra eða dvelja áfram í hýðum síns vetra? Tómas Ellert Tómasson Skoðun Stærð er ekki mæld í sentimetrum Sigmar Guðmundsson Skoðun Áður en íslenskan leysist upp Gamithra Marga Skoðun Hverjum þjónar nýsköpunin? Halldóra Mogensen Skoðun Að eiga sæti við borðið Grímur Grímsson Skoðun Tími til umbóta í byggingareftirliti Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Skoðun Skoðun Að taka ekki mark á sjálfum sér Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Betri borg Alexandra Briem skrifar Skoðun Að eiga sæti við borðið Grímur Grímsson skrifar Skoðun Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði Karl Héðinn Kristjánsson skrifar Skoðun Íþróttir eru lykilinn Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Framtíð safna í ferðaþjónustu Guðrún D. Whitehead skrifar Skoðun Munu Ísraelsmenn sprengja bifreið páfa í loft upp? Einar Baldvin Árnason skrifar Skoðun Að skapa framtíð úr fortíð Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar Skoðun Tími til umbóta í byggingareftirliti Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Stærð er ekki mæld í sentimetrum Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Áður en íslenskan leysist upp Gamithra Marga skrifar Skoðun Lögfræðingurinn sem gleymdi tilgangi laga Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Þétting byggðar – nokkur mistök gjaldfella ekki stefnuna Samúel Torfi Pétursson skrifar Skoðun Breyta lífum til hins betra eða dvelja áfram í hýðum síns vetra? Tómas Ellert Tómasson skrifar Skoðun Hverjum þjónar nýsköpunin? Halldóra Mogensen skrifar Skoðun Heilbrigðisráðherra og stjórn VIRK hafa brugðist okkur Eden Frost Kjartansbur skrifar Skoðun Þegar ríkið fer á sjóinn Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Íbúðarhúsnæði sem heimili fólks Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Íslenskumælandi hjúkrunarfræðingar Guðbjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðisstarfsfólk eru ekki skotmörk Elísabet Herdísar Brynjarsdóttir,Hildur Harðardóttir,Tryggvi Egilsson,Sunna Snædal,Yousef Tamimi,Örvar Gunnarsson skrifar Skoðun Leiðrétting veiðigjalda og varðstaðan um sérhagsmuni Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Þjóðminjasafn án fornleifafræðinga Snædís Sunna Thorlacius,Ingibjörg Áskelsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til stjórnmálafólks um málefni Palestínu og Ísraels Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Í lífshættu eftir ofbeldi Jokka G Birnudóttir skrifar Skoðun Verið er að umbreyta borginni en hvað viljum við? Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir máli hvernig talað er um velferð dýra? Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar Skoðun Gróður, einmanaleiki og samfélagsleg samheldni Auður Kjartansdóttir skrifar Skoðun Ljúkum því sem hafið er - ný bálstofa í Gufunesi Ingvar Stefánsson skrifar Skoðun Raddir fanga Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Kann Jón Steindór ekki að reikna? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði Karl Héðinn Kristjánsson Skoðun
Skoðun Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði Karl Héðinn Kristjánsson skrifar
Skoðun Breyta lífum til hins betra eða dvelja áfram í hýðum síns vetra? Tómas Ellert Tómasson skrifar
Skoðun Heilbrigðisstarfsfólk eru ekki skotmörk Elísabet Herdísar Brynjarsdóttir,Hildur Harðardóttir,Tryggvi Egilsson,Sunna Snædal,Yousef Tamimi,Örvar Gunnarsson skrifar
Skoðun Hvers vegna skiptir máli hvernig talað er um velferð dýra? Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar
Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði Karl Héðinn Kristjánsson Skoðun