Castillo lýsir yfir sigri en Fujimori vill ógilda fjölda atkvæða Atli Ísleifsson skrifar 10. júní 2021 08:47 Pedro Castillo ávarpar stuðningsmenn sína á kosningafundi í Tacabamba um síðustu helgi. EPA Talning atkvæða stendur en yfir eftir forsetakosningarnar í Perú. Mjög mjótt er á munum en vinstrimaðurinn Pedro Castillo hefur þegar lýst yfir sigri á meðan andstæðingur hans, hægrimaðurinn Keiko Fujimori, hefur farið fram á að hundruð þúsunda atkvæða verði úrskurðuð ógild.
Þegar búið er að telja rúmlega 99,8 prósent atkvæða er Castillo með 50,2 prósent atkvæða, en Fujimori 49,8 prósent. Erlendir fjölmiðlar segja að Fujimori hafi nú farið fram á að atkvæðaseðlar frá rúmlega átta hundruð kjördeildum, samtals um 200 þúsund atkvæði, verði úrskurðaðir ógildir vegna þess sem hún lýsir sem kosningasvindli. Keiko Fujimori.EPA Landskjörstjórn í Perú hefur enn ekki lýst neinn sigurvegara en Castillo segir ljóst að hann hafi borið sigur úr býtum. Hann hefur sömuleiðis þakkað fyrir þær hamingjuóskir sem hann segist hafa fengið frá ríkisstjórnum og sendiráðum erlendra ríkja. Engin ríkisstjórn erlends ríkis hefur þó enn viðurkennt sigur Castillo, jafnvel þó að fyrrverandi forseti Bólivíu, vinstrimaðurinn Evo Morales, hafi sent Castillo hamingjuóskir á Twitter. Í nótt munaði um 67 þúsund atkvæði á þeim Castillo og Fujimori, en landskjörstjórn hefur varaði við að endanleg niðurstaða verði mögulega ekki ljós og kynnt fyrr en eftir tíu til tólf daga.
Perú Tengdar fréttir Mjótt á munum í Perú Talning atkvæða stendur nú yfir í Perú en forsetakosningar fóru fram í landinu í gær. Keiko Fujimori hefur naumt forskot á andstæðing sinn, Pedro Castillo, þegar 90 prósent atkvæða hafa verið talin. 7. júní 2021 13:42 Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Sjá meira
Mjótt á munum í Perú Talning atkvæða stendur nú yfir í Perú en forsetakosningar fóru fram í landinu í gær. Keiko Fujimori hefur naumt forskot á andstæðing sinn, Pedro Castillo, þegar 90 prósent atkvæða hafa verið talin. 7. júní 2021 13:42