Tveir í bifreið en neituðu báðir að vera ökumaðurinn Hólmfríður Gísladóttir skrifar 22. júní 2021 06:48 Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í gærkvöldi og nótt við að stöðva ökumenn með óhreint mjöl í pokahorninu.
Um kl. 20 stöðvaði hún til að mynda bifreið í miðbæ Reykjavíkur þar sem tveir reyndust í bílnum en hvorugur vildi gangast við því að hafa verið við stýrið. Báðir voru í annarlegu ástandi og voru handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þá lék grunur á að þeir hefðu tekið bifreiðina ófrjálsri hendi. Fyrr um kvöldið höfðu lögreglumenn afskipti af ökumanni sem framvísaði erlendu ökuskírteini. Lögreglumenn grunaði að skírteinið væri falsað og fengu játningu þar að lútandi en viðkomandi var handtekinn fyrir að aka án réttinda og fyrir skjalafals. Nokkrir ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum. Einn freistaði þess að komast undan á hlaupum en náðist. Sá reyndist réttindalaus. Rétt fyrir kl. 20 var tilkynnt um líkamsárás í Hlíðunum en gerandi er sagður hafa tekið bifreið brotaþola og yfirgefið vettvang. Þá voru afskipti höfð af tveimur einstaklingum vegna þjófnaðar úr verslunum en um var að ræða tvö aðskilin tilvik.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Sjá meira