Sagan endurtekur sig - Víkingar vilja sæti Kríu í Olís-deildinni Valur Páll Eiríksson skrifar 24. júlí 2021 12:00 Víkingur og Kría eigast við í vetur. Víkingar frá Reykjavík vilja taka sæti Kríu í Olís-deild karla í handbolta á komandi leiktíð. Kría hafði tryggt sér sæti í deildinni en mun ekki senda lið til leiks. Síðast þegar Víkingur komst í efstu deild fékk það sæti undir svipuðum kringumstæðum. Handbolti.is greinir frá því að Víkingur muni sækjast eftir sæti Kríu í efstu deild. Kría hafði betur gegn Víkingi úrslitaeinvígi umspils um sæti í Olís-deildinni að ári, en lét Handknattleikssamband Íslands vita af því í vikunni að félagið myndi ekki senda lið til leiks, hvorki í efstu né næstefstu deild. Kría kemur af Seltjarnarnesi og lék í húsum Gróttu í Grill66-deildinni á síðasta ári. Samkvæmt heimildum Vísis var ekki var pláss fyrir þá æfinga- og leiktíma sem þeir kröfðust á Nesinu fyrir næsta tímabil. Kríumenn leituðu logandi ljósi að húsaskjóli, þar sem haft var samband við bæði íþróttafélög og sveitarfélög, með það að markmiði að halda liðinu gangandi í efstu deild, en varð ekki erindi sem erfiði. Kría gaf því frá sér sæti í Olís-deildinni á næstu leiktíð og ef marka má fréttir handbolta.is munu Víkingar sækjast eftir að leysa Kríumenn af. Samkvæmt reglum HSÍ eru Víkingar næstir í röðinni, eftir tap sitt í umspilinu. Vilji Víkingar ekki taka sætið eru Þórsarar þeim næstir í röðinni og svo ÍR en bæði lið féllu úr Olís-deildinni í vor. Víkingur var síðast í Olís-deildinni tímabilið 2017-18 og féll þá beint niður aftur í næst efstu deild eftir eina leiktíð. Þá hlaut liðið sæti undir svipuðum kringumstæðum, þegar KR komst upp í Olís-deildina eftir umspil, en dró liðið sitt úr keppni vegna aðstöðumála, rétt eins og Kría nú. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Olís-deild karla Kría Víkingur Reykjavík Mest lesið „Gríðarlega særandi að hlusta á þetta“ Sport Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Handbolti Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Íslenski boltinn Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Fótbolti Jóhann Berg pirraður eftir agabrot landsliðsmanna Fótbolti Konurnar komu Íslandi upp um deild í Bakgarðshlaupum Sport Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Körfubolti Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Körfubolti Glódís heldur spilunum þétt að sér: „Get ekki gefið það upp hér“ Fótbolti „Það rignir ekkert inn peningum“ Handbolti Fleiri fréttir „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri Sjá meira
Handbolti.is greinir frá því að Víkingur muni sækjast eftir sæti Kríu í efstu deild. Kría hafði betur gegn Víkingi úrslitaeinvígi umspils um sæti í Olís-deildinni að ári, en lét Handknattleikssamband Íslands vita af því í vikunni að félagið myndi ekki senda lið til leiks, hvorki í efstu né næstefstu deild. Kría kemur af Seltjarnarnesi og lék í húsum Gróttu í Grill66-deildinni á síðasta ári. Samkvæmt heimildum Vísis var ekki var pláss fyrir þá æfinga- og leiktíma sem þeir kröfðust á Nesinu fyrir næsta tímabil. Kríumenn leituðu logandi ljósi að húsaskjóli, þar sem haft var samband við bæði íþróttafélög og sveitarfélög, með það að markmiði að halda liðinu gangandi í efstu deild, en varð ekki erindi sem erfiði. Kría gaf því frá sér sæti í Olís-deildinni á næstu leiktíð og ef marka má fréttir handbolta.is munu Víkingar sækjast eftir að leysa Kríumenn af. Samkvæmt reglum HSÍ eru Víkingar næstir í röðinni, eftir tap sitt í umspilinu. Vilji Víkingar ekki taka sætið eru Þórsarar þeim næstir í röðinni og svo ÍR en bæði lið féllu úr Olís-deildinni í vor. Víkingur var síðast í Olís-deildinni tímabilið 2017-18 og féll þá beint niður aftur í næst efstu deild eftir eina leiktíð. Þá hlaut liðið sæti undir svipuðum kringumstæðum, þegar KR komst upp í Olís-deildina eftir umspil, en dró liðið sitt úr keppni vegna aðstöðumála, rétt eins og Kría nú. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Olís-deild karla Kría Víkingur Reykjavík Mest lesið „Gríðarlega særandi að hlusta á þetta“ Sport Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Handbolti Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Íslenski boltinn Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Fótbolti Jóhann Berg pirraður eftir agabrot landsliðsmanna Fótbolti Konurnar komu Íslandi upp um deild í Bakgarðshlaupum Sport Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Körfubolti Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Körfubolti Glódís heldur spilunum þétt að sér: „Get ekki gefið það upp hér“ Fótbolti „Það rignir ekkert inn peningum“ Handbolti Fleiri fréttir „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri Sjá meira