Skoðun

Arður af orku til þjóðar

Hörður Arnarson skrifar

Orkufyrirtæki þjóðarinnar er óðum að leggja erfiðleika heimsfaraldursins að baki. Afkoma Landsvirkjunar fyrstu 6 mánuði ársins ber þess glöggt vitni. Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði hækkaði um tæp 36% frá sama tíma í fyrra og skuldir lækkuðu jafnframt um 10,4 milljarða króna. Matsfyrirtækið S&P staðfesti þennan viðsnúning með því að hækka lánshæfiseinkunn okkar um einn flokk í júní.

Góð afkoma Landsvirkjunar skiptir þjóðina alla miklu máli. Vinnsla orku úr endurnýjanlegum auðlindum okkar á að skapa hagnað, sem þjóðin getur nýtt til ýmissa þarfra verka.

Lækkun skulda þrátt fyrir fjárfestingar

Við höfum unnið að því hörðum höndum að bæta arðsemi fyrirtækisins. Einn liður í því var að lækka skuldir þess verulega. Fyrirtækið var skuldsett eftir mikla og hraða uppbyggingu til að mæta þörf fyrir raforku. Þjóðin tók því uppbyggingarskeiði af þolinmæði, sem og þeim árum sem við nýttum hagnað af rekstri til að lækka skuldir. Á síðustu tíu árum hafa skuldirnar alls lækkað um 155 milljarða króna, þrátt fyrir að við höfum á sama tíma fjárfest í orkuinnviðum fyrir sambærilega upphæð. Nú er hins vegar svo komið að þjóðin nýtur arðs af þessari auðlind sinni með beinum hætti: Með 10 milljarða króna arðgreiðslu í ríkissjóð árið 2020 og 6,5 milljörðum í ár, þrátt fyrir þrengingar heimsfaraldurs. Fyrirsjáanlegt er að arðgreiðslurnar munu hækka enn frekar á næstu árum.

Sanngjarnt verð fyrir auðlindina

Einn mikilvægasti liðurinn í rekstrinum er auðvitað verðlagning raforkunnar. Þar stöndum við vel að vígi, í samkeppninni við aðrar þjóðir. Við erum með samkeppnishæft orkuverð í landi þar sem hæft starfsfólk og góðir innviðir laða til sín rekstur, sem annars myndi leita hófanna annars staðar. Þannig fáum við ný tækifæri og nýsköpun inn í íslenskt efnahagslíf.

Beinn hagur þjóðar

Hlutverk Landsvirkjunar er skýrt: Við hámörkum afrakstur af þeim orkulindum sem fyrirtækinu er treyst fyrir með sjálfbæra nýtingu, verðmætasköpun og hagkvæmni að leiðarljósi. Fyrirtækið er loks í stakk búið til að greiða þjóðinni það sem henni ber. Í lagafrumvarpi um svokallaðan Þjóðarsjóð er tekið fram að hann skuli vera varasjóður ef Ísland verði fyrir verulegum fjárhagslegum skakkaföllum. Stærsti hluti framlags í sjóðinn á að koma í gegnum arðgreiðslur Landsvirkjunar. Í frumvarpinu eru ákvæði til bráðabirgða um að fjármagni skuli ráðstafað í byrjun til uppbyggingar hjúkrunarrýma og eflingar nýsköpunar atvinnuveganna. Ef stofnun sjóðsins gengur eftir verður hagur þjóðarinnar af orkuauðlindinni áþreifanlegur. En jafnvel þótt arðurinn renni ekki í sérstakan Þjóðarsjóð er ljóst að hann mun nýtast t.d. mennta- og heilbrigðiskerfi okkar, eins og vera ber.

Tökum vel á móti framtíðinni

Landsvirkjun hefur gegnt mikilvægu hlutverki í rúma hálfa öld og mun gegna áfram. Á næstu árum og áratugum verður verkefni orkufyrirtækis þjóðarinnar að vera leiðandi í orkuskiptum, t.d. með framleiðslu rafeldsneytis. Við ætlum að nýta grænu orkuna okkar til að losa okkur við bensín og olíur, leggja grunn að matvælaframleiðslu framtíðar og ýmiss konar grænum iðnaði sem styður við markmið okkar í loftslagsmálum. Landsvirkjun verður kolefnishlutlaust fyrirtæki árið 2025 og mun áfram leggja sitt af mörkum til að markmið Orkustefnu stjórnvalda verði náð. Við ætlum að taka vel á móti framtíðinni, okkur öllum til hagsbóta.

Höfundur er forstjóri Landsvirkjunar.




Skoðun

Sjá meira


×