Danir kláruðu Skota snemma á Parken Valur Páll Eiríksson skrifar 1. september 2021 20:40 Simon Kjær og félagar hafa ekki enn fengið á sig mark í undankeppninni. EPA-EFE/Peter Dejong Daniel Wass kom Dönum yfir á 14. mínútu leiksins með marki eftir stoðsendingu frá Pierre-Emile Höjbjerg, miðjumanni Tottenham. Minna en mínútu síðar tvöfaldaði Joakim Mæhle, bakvörður Atalanta á Ítalíu, forystu Dana eftir stoðsendingu Mikkels Damsgaard. Eftir þá fjörugu byrjun urðu mörkin ekki fleiri. Danir unnu leikinn 2-0 og eru með fullt hús stiga á toppi riðilsins og eiga enn eftir að fá á sig mark. Ísrael, sem vann 4-0 sigur á Færeyjum, þar sem Eran Zahavi, framherji PSV, skoraði þrennu og Munas Dabbour eitt, eru í öðru sæti með sjö stig. Skotar eru í fjórða sæti með fimm stig en Færeyjar eru með eitt stig í botnsæti riðilsins. Austurríki og Moldóva áttust einnig við í kvöld en leikur þeirra hófst síðar en átti að vera og stendur enn yfir. Fréttin verður uppfærð þegar úrslit liggja fyrir. Fótbolti HM 2022 í Katar