„Kvikmyndin verður ekki í vondum félagsskap en búist er við að stjörnur á borð við Denzel Washington, Tilda Swinton, Bill Murry, Kristen Stewart, Judi Dench, Idris Elba og fleiri verði viðstaddar hátíðina en kvikmyndir þeirra verða sýndar á hátíðinni ásamt hinni íslensku Leynilöggu,“ segir Lilja Ósk Snorradóttir framleiðandi hjá Pegasus.

Leynilögga var frumsýnd á Locarno kvikmyndahátíðinni í síðasta mánuði og hlaut mjög góðar viðtökur.
BFI London Film Festival er með eldri kvikmyndahátíðum í heiminum. Nokkrar íslenskar kvikmyndir hafa verið sýndar á hátíðinni eins og Fúsi eftir Dag Kára, stuttmyndin Regnbogapartý eftir Evu Sigurðardóttur og Rökkur eftir Erling Óttar Thoroddsen. Hátíðin sem fer fram í byrjun október er vel sótt bæði af blaðamönnum, söluaðilum og áhorfendum.
„Mikil spenna hefur verið að opna almennilega fyrir áhorfendur eftir Covid árið í fyrra svo búast má við góðri aðsókn í ár.“
Hér fyrir neðan má sjá stutta kitlu úr kvikmyndinni.
Leikstjóri myndarinnar er Hannes Þór Halldórsson en hann er einnig handritshöfundur ásamt Nínu Petersen og Sverri Þór Sverrissyni en sagan sjálf er eftir Auðunn Blöndal, Egill Einarsson og Hannes Þór. Á meðal þeirra sem fara með hlutverk í myndinni eru Egill Einarsson, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Björn Hlynur Haraldsson, Vivian Ólafsdóttir og Sverrir Þór Sverrisson.