Innlent

Létu sig hverfa án þess að borga reikninginn en skildu tösku eftir í bílnum

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Verkefni lögreglu voru nokkuð fjölbreytt í gærkvöldi og nótt.
Verkefni lögreglu voru nokkuð fjölbreytt í gærkvöldi og nótt.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti ýmsum verkefnum í gærkvöldi og nótt en fyrsta verkefnið á vaktinni voru afskipti sem hafa þurfti af manni á heimili hans í Vesturbænum þar sem fíkniefni voru handlögð. 

Skömmu síðar voru tveir ungir menn handteknir í miðborginni vegna gruns um að þeir væru að selja fíkniefni. Voru þeir vistaðir í fangageymslu en látnir lausir að lokinni skýrslutöku.

Um kvöldmatarleytið var maður handtekinn í póstnúmerinu 105, þar sem ítrekað hafði verið tilkynnt um hann vegna þess hversu ölvaður hann var. Var hann vistaður í fangageymslu sökum ástands.

Þá var tilkynnt um þjófnað á rafmagnshlaupahjóli í miðborginni rétt fyrir klukkan 21. Hjólið hafði verið læst við hjólagrind en þjófurinn gerði sér lítið fyrir og tók bæði hjól og hjólagrind. Hjólagrindin fannst skömmu síðar en engar fregnir fara af hjólinu.

Eftir miðnætti var tilkynnt um reiðhjólaslys en vitni sagði mann hafa komið á mikilli ferð niður Bankastrætið, yfir Lækjargötu og síðan ekið á steinstólpa við Lækjartorg. Maðurinn var með áverka í andliti og var fluttur á Landspítala með sjúkrabifreið.

Í Hafnarfirði var tilkynnt um slagsmál eða líkamsárás við fjölbýlishús. Þar hafði íbúi afskipti af manni eftir rúðubrot en þau enduðu í átökum. Áverkar voru minniháttar. Í Hafnarfirði voru einnig afskipti höfð af manni á heimili hans vegna vörslu fíkniefna.

Lögreglumenn frá stöð 4, sem þjónustar Grafarvog, Mosfellsbæ og Árbæ, sinntu útkalli vegna pars sem hljóp frá leigubifreið án þess að greiða reikning sinn. Ekki vildi betur til en svo að konan skildi tösku eftir í bílnum og þá eru upplýsingar til um manninn, sem verður kærður fyrir greiðslusvik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×