Viðskipti innlent

„Tíma­mót og gleði­dagur“ eftir tuttugu mánaða bann

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair.
Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair. Vísir/Egill

Tuttugu mánaða ferðabanni til Bandaríkjanna, sem komið var á vegna kórónuveirufaraldursins, var aflétt í nótt. Forstjóri Icelandair segir afléttinguna hafa gríðarlega þýðingu fyrir félagið, sem nú sé komið í gang að fullu eftir faraldur.

Bannið hefur verið í gildi frá því snemma árs 2020 og var sett í valdatíð Donalds Trump fyrrverandi forseta. Bannið náði til yfir 30 ríkja, meðal annars Bretlands, Kína og Evrópusambandsríkja.

Afléttingin tók gildi á miðnætti að staðartíma í Bandaríkjunum en ferðamenn, sem hafa verið fullbólusettir með bóluefnum sem samþykkt eru af Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, geta þar með ferðast til Bandaríkjanna. Auk bólusetningarvottorðs þarf að sýna fram á neikvæða niðurstöðu úr sýnatöku fyrir brottför.

Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair segir afléttinguna hafa mikla þýðingu fyrir félagið.

„Mjög mikil tímamót og mikill gleðidagur hjá okkur eftir að þessi markaður hafði verið lokaður í þessa átt núna í eitt og hálft ár. Það er mikilvægt fyrir okkur að fá alla markaði opna og allt leiðakerfi þá í gang. Okkar viðskiptalíkan er þá komið í gang að fullu, má segja,“ segir Bogi.

Þó að Íslendingar hafi ekki fengið að fara til Bandaríkjanna hefur Icelandair flogið bandarískum ferðamönnum til og frá landinu á tímabilinu. Bogi segir að Íslendingar, sem og evrópskir meginlandsbúar, hafi nú tekið verulega við sér í bókunum til Bandaríkjanna síðan tilkynnt var að banninu yrði aflétt. 

Hann bendir jafnframt á að um fimmtíu prósent farþega fyrir faraldur hafi verið tengifarþegar frá Evrópu til Bandaríkjanna.

„En með því að Evrópubúar og við Íslendingar getum farið til Bandaríkjanna styrkist þetta enn frekar og við verðum með ellefu áfangastaði í Norður-Ameríku núna á fjórða ársfjórðungi og höldum svo áfram að bæta í þegar fer að líða á næsta ár.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×