Tjón vegna staks leiks getur numið hundruðum þúsunda: „Ofboðslega vont fyrir hreyfinguna“ Sindri Sverrisson skrifar 18. nóvember 2021 10:00 Það heyrist stundum ekki mannsins mál á handboltaleikjum vegna hávaða. Þessa dagana heyrist vart mannsins mál vegna þess að það er varla nokkur áhorfandi á svæðinu. vísir/vilhelm „Það er ofboðslega vont fyrir hreyfinguna að fá þetta áhorfendabann enn einu sinni, því þetta er ekkert annað en tekjutap fyrir félögin okkar,“ segir Hannes S. Jónsson, formaður körfuknattleikssambands Íslands. Þungt hljóð er í forsvarsmönnum körfu- og handboltafélaga landsins.
Samkvæmt gildandi samkomutakmörkunum stjórnvalda vegna Covid-19, sem gilda frá 13. nóvember til 8. desember, mega aðeins 50 áhorfendur vera í hverju rými á íþróttaleikjum. Líkt og á öðrum menningarviðburðum er þó hægt að hafa 500 áhorfendur í rými með því að krefja þá um neikvæða niðurstöðu úr hraðprófi. Flestir farið þá leið að loka húsunum Hannes og Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri handknattleikssambands Íslands, segja ljóst að félögin muni ekki stunda það mikið að nýta hraðprófsmöguleikann. Það virðist of mikil fyrirhöfn fyrir venjulegan deildarleik í íþróttum. Því sé fyrirséð umtalsvert tjón fyrir félögin í landinu. „Hljóðið í fólki er ekkert sérstakt. Þetta áhorfendabann hefur veruleg áhrif á rekstur félaganna því flestir hafa farið þá leið að loka bara húsunum fyrir áhorfendum,“ segir Róbert. Tjónið af áhorfendaleysi hvers leiks nemur frá tugum og upp í hundruð þúsunda: „Þetta telur auðvitað mismikið hjá félögunum en þetta telur hjá þeim öllum. Það eru stórir leikir fram undan eins og Haukar-Valur í kvöld, og FH-Haukar í byrjun desember. Hvað FH-Haukar varðar þá nemur tjónið bara af þeim leik án efa hundruðum þúsunda. Tjónið er því verulegt en þetta ræðst af ástandinu í þjóðfélaginu, svona er bara staðan og við þurfum að bregðast við,“ segir Róbert. Af hverju getum við ekki nýtt bólusetningarvottorð? Hannes veltir upp möguleikanum á því að með notkun bólusetningarvottorða megi fleiri mæta á leiki. Svíar munu til að mynda nýta þennan möguleika frá og með 1. desember og geta fyllt sín íþróttahús. „Miðað við hvað við erum orðin vel bólusett þá ætti að vera hægt að gera hlutina öðruvísi. Það er orðið mjög algengt úti í heimi í dag, þar sem fólk fær ekkert að mæta nema að það sé bólusett. Ég þekki þetta sjálfur úr ferðum mínum fyrir KKÍ. Af hverju getum við ekki tekið upp einhverjar svona reglur til að auðvelda fólki lífið?“ spyr Hannes og hvetur fólk til að drífa sig í bólusetningu eða fá örvunarskammt eigi það þess kost. Hraðprófin verði sjaldan nýtt „Auðvitað er hljóðið þungt í fólki með að það megi bara 50 áhorfendur mæta án þess að fara í hraðpróf. Hugsanlega er hægt að setja upp tvö 50 manna hólf en það er ekki mikið meira hægt að gera og auðvitað myndu forsvarsmenn félaganna vilja hafa meiri fjölda,“ segir Hannes sem tekur undir með Róberti með það að hraðprófin verði væntanlega sjaldan nýtt. það máttu sem betur fer áhorfendur mæta á úrslitakeppnina í körfubolta í sumar, þegar Þór Þorlákshöfn varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn.vísir/Hulda Margrét „Það eru fáir ef nokkrir sem munu fara út í það að nota hraðprófin. Fólk er kannski til í að nota hraðpróf þegar það hefur keypt dýra miða á tónleika eða í leikhús eða þess háttar, en það er ekki mikill vilji til að fara í hraðpróf til að komast á venjulegan deildarleik í íþróttum. Félögin þurfa að ákveða hvert fyrir sig hvað þau gera en það verður alla vega mjög sjaldgæft á meðan að reglurnar eru svona, að félög nýti hraðpróf til að geta tekið við 500 manns,“ segir Hannes og bendir á að sjálfboðaliðar í íþróttahreyfingunni, sem erfitt hafi verið að fá til starfa fyrir Covid, séu orðnir mjög þreyttir á ástandinu. Þó má benda á að Njarðvíkingar hafa boðað það að hraðpróf verði nýtt vegna leikja liðsins í Subway-deildum karla og kvenna. Í raun bara pláss fyrir 33 áhorfendur „Mér sýnist flest félög hafa farið þá leið að leyfa ekki áhorfendur, alla vega hingað til,“ segir Róbert. „Þetta er töluverð fyrirhöfn. Vonandi verður ástandið í þjóðfélaginu betra og minni takmarkanir eftir þessa törn,“ segir Róbert sem bendir á að þó að 50 áhorfendur séu leyfðir í rými þá þýði það ekki einu sinni að 50 miðar séu seldir: „Samkvæmt okkar útreikningum, þegar tekið er tillit til fjölmiðlamanna og sjónvarpsútsendingar, eru það bara 33 áhorfendur sem komast fyrir. Til að bæta við öðru 50 manna hólfi þarf sérinngang, sérklósett og sérinngang fyrir það hólf, og það er oft á tíðum illgerlegt í þessum húsum. Fólk hefur því frekar farið þá leið að loka húsunum og þeir 33 áhorfendur sem eru á leikjum eru stjórnarmenn og meistaraflokksráð, og mögulega leikmenn sem eru utan hóps eða stjórnarmenn gestaliðsins.“
Olís-deild karla Olís-deild kvenna Subway-deild kvenna Subway-deild karla Samkomubann á Íslandi Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið „Trúi ekki að ég hafi beðið í 17 ár eftir grænum jakka“ Golf „Ef hann lítur á þetta sem leikaraskap þá er hann á rangri hillu“ Íslenski boltinn Katrín Jakobs komin í FRÍ Sport Í slæmum málum fyrir að hrópa á McIlroy: „Færðu mér son minn aftur“ Golf McIlroy varði Masters-titilinn Golf „Dreymdi að ég myndi skora tvö“ Íslenski boltinn „Tilfinningin ólýsanleg að sjá boltann í netinu“ Fótbolti Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 1-2| Nýliðarnir sóttu þrjú stig á Hlíðarenda Íslenski boltinn Uppgjörið: KA - Stjarnan 2-3 | Flugu heim með stigin þrjú eftir fjörugan leik Íslenski boltinn Áttu flug beint eftir leik og komust ekki í viðtöl Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Trúi ekki að ég hafi beðið í 17 ár eftir grænum jakka“ McIlroy varði Masters-titilinn „Dreymdi að ég myndi skora tvö“ „Ef hann lítur á þetta sem leikaraskap þá er hann á rangri hillu“ Uppgjörið: Fram - ÍA 3-3 | Chopart bjargaði stigi eftir rússibanareið Uppgjörið: KA - Stjarnan 2-3 | Flugu heim með stigin þrjú eftir fjörugan leik Denzel hetjan og Inter nálgast titilinn „Gáfum ódýr mörk“ „Tilfinningin ólýsanleg að sjá boltann í netinu“ „Frammistaðan verðskuldaði klárlega stig“ Áttu flug beint eftir leik og komust ekki í viðtöl „Sviðskvíðinn hvarf aldrei hjá lærisveinum mínum“ „Fannst þeir ekki eiga séns í okkur hérna í seinni hálfleik“ Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 1-2| Nýliðarnir sóttu þrjú stig á Hlíðarenda Brann í bölvuðu brasi Mastersvaktin: Hver mun klæðast græna jakkanum? Uppgjörið: KR - Keflavík 3-2 | Alexander Rafn fullkomnaði endurkomu KR-liðsins „Við náðum að sýna þúsund manns hvernig við raunverulega erum“ „Við elskum þennan stuðning“ Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Hákon lagði upp í öruggum sigri Tryggvi tókst á við Barcelona Ómar með fjórtán og Gísli skoraði alltaf „Frábær“ Ísak skoraði og fagnaði langþráðum sigri Uppgjörið: Ísland - Portúgal 32-24| Ísland er á leiðinni á EM Uppgjörið: ÍBV - FH 1-1 | Tryggði stig í fyrsta leik Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Hófí Dóra missti gleðina og alla trú á kerfinu Í slæmum málum fyrir að hrópa á McIlroy: „Færðu mér son minn aftur“ Fyrsta konan sem stýrir karlaliði í einni bestu deild Evrópu Sjá meira