Ekki Alþingis að eigna Snorra Egils sögu Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 5. desember 2021 10:00 Frægt málverk Hauks Stefánssonar af Snorra Sturlusyni. vísir/vilhelm/haukur stefánsson Alþingi fer ekki með úrskurðarvald þegar kemur að því að eigna nafnþekktum miðaldamönnum okkar glæstustu bókmenntaverk fyrri alda, að mati Sverris Jakobssonar miðaldasagnfræðings. Hann telur Snorra Sturluson lélegan liðsmann frjálshyggjumanna sem aðhyllast þá stefnu sem Hannes Hólmsteinn Gissurarson stjórnmálafræðiprófessor fjallar um í nýjustu bók sinni sem kom út í fyrra.
Í bókinni Twenty-Four Conservative-Liberal Thinkers, eða Tuttugu og fjórir frumkvöðlar frjálslyndrar íhaldsstefnu, rekur Hannes hugmyndir tuttugu og fjögurra sögufrægra manna og færir rök fyrir því að þeir séu frumkvöðlar hinnar frjálslyndu íhaldsstefnu, sem þekkist í nútímanum. Sá fyrsti sem Hannes tekur fyrir í verkinu er 12. og 13. aldar maðurinn Snorri Sturluson. Snorri er fyrsti frjálslyndi íhaldsmaðurinn sem Hannes tekur fyrir í nýrri bók sinni.Forlagið Þetta val hans hefur eflaust farið öfugt ofan í marga miðaldafræðinga en jafnvel orðið einhverjum til endurmats á íslensku samfélagi 13. aldar og þeirri hugmyndafræði sem þessi þekktasti miðaldamaður Íslendinga lifði eftir. Hannes hélt erindi um fyrsta kafla bókarinnar í Háskóla Íslands síðasta fimmtudag og fékk fræðimann úr fyrrnefnda hópnum Sverri Jakobsson, prófessor í miðaldasagnfræði til að andmæla sér. Snorri andvígur alvalda konungi? Hannes færði í erindi sínu rök fyrir því að Snorri hafi aðhyllst frjálslynda íhaldsstefnu og verið helsti frumkvöðull hennar á miðöldum. Þar tekur hann aðallega dæmi úr hugmyndum um konungsvaldið sem fram koma í Heimskringlu, sem er eignuð Snorra, og persónusköpun höfundar Egils sögu á aðalpersónunni Agli Skalla-Grímssyni. Sagan sé um einstaklinginn, skáldið og hetjuna og sé tímamótaverk sem sanni að einstaklingshyggjan hafi ekki fæðst á endurreisnartímanum á Ítalíu. Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði.vísir/vilhelm Þar fer Hannes eftir kenningum sem fóru fyrst að láta kræla á sér á síðustu öld, um að Snorri Sturluson sé höfundur Egils sögu, en margir miðaldafræðingar hafa andmælt harðlega, enda er Snorra hvergi getið sem höfundar sögunnar í miðaldaheimildum. Úr þeim ritum má, að mati Hannesar, greina andstöðu Snorra við konunginn sem alvald, sem þiggur vald sitt frá guði. Hann hafi frekar verið þeirrar skoðunar að vald konunga væri sótt til þjóðarinnar og að þeir ríktu við samþykki þegnanna en ekki af guðs náð. Lögin væru æðsta valdið og ef konungar brytu þau mætti steypa þeim af stóli. Þessar hugmyndir séu grunnur að frjálslyndri íhaldsstefnu nútímans. Guðrún Nordahl skrifaði þessa grein sem birtist í Lesbók Morgunblaðsins þann 21. desember 2002. Þar gagnrýnir hún nýlega útgáfu ritsafns Snorra Sturlusonar þar sem finna má Egils sögu og segir: „Ef við erum skotin í þeirri hugmynd að Snorri sé höfundur Egils sögu Skallagrímssonar, þá verðum við að viðurkenna að hann skrifaði ekki þá Egils sögu sem við lesum í útgáfum í dag.“Morgunblaðið Snorri og heilög þrenning Sverrir tók síðan til máls og andmælti hugmyndum Hannesar um Snorra. Þar skipti hann þeim Snorra Sturlusyni, sem við þekkjum í dag, upp í þrjá mismunandi menn; Snorra 1, sem er höfundur Heimskringlu, Snorra 2, sem er höfundur Egils sögu og síðast Snorra 3, sem kemur fram í samtímasafnritinu Sturlungu, nánar tiltekið í Hákonar sögu og Íslendinga sögu, sem eignaðar eru Sturlu Þórðarsyni, frænda Snorra. Sverrir var fljótur að benda á að síðastnefnda heimildin, Sturlunga, væri sú langbesta um hinn raunverulega miðaldamann Snorra Sturluson í fræðilegu samhengi og gaf lítið fyrir hugmyndar Hannesar um að þeirri heimild væri ekki treystandi því að Sturla hefði haft horn í síðu Snorra. Sverrir fer yfir Snorrana þrjá í svari sínu við erindi Hannesar.vísir/óttar Þó vissulega væri farið að eigna Snorra Heimskringlu á miðöldum hafi það samt sem áður verið nokkru eftir ritunartíma hennar og þá væru allar hugmyndir um Snorra sem höfund Egils sögu tiltölulega nýjar af nálinni og „enginn miðaldasagnfræðingur myndi samþykkja hana sem góða heimild um Snorra, jafnvel þó að Alþingi hafi gefið söguna út undir hans nafni“. Þar skýtur Sverrir á útgáfu Alþingis á ritsafni Snorra Sturlusonar, sem kom út árið 2002 en Egils saga er þar gefin út í hans nafni. Teikningar norska myndlistarmannsins Christian Krohgs af Snorra Sturlusyni hafa lengi litað hugmyndir Íslendinga af honum. En hvort ætli hann hafi séð fyrir sér Snorra 1, 2 eða 3 þegar hann teiknaði þær?Christian Krohg „Ég vil meina að Snorri 2, sá sem semur Egils sögu, hafi allt aðra afstöðu gagnvart frjálslyndi en Snorri 1, sem semur Heimskringlu. Hann er auðvitað frjálslyndur á sinn hátt en það með allt öðrum hætti en sá sem semur Heimskringlu,“ sagði Sverrir. Það sé ekki einhlítt að Egill sé andsnúinn öllum konungum, þó hann og ætt Haralds hárfagra Noregskonungs eldi sannarlega grátt silfur saman í sögunni. „En hann er ekkert andsnúinn öllum konungum. Til dæmis ekki Aðalsteini Englandskonungi sem gefur Agli gull,“ sagði Sverrir og velti upp þeim líklega möguleika að andstaða söguhetjunnar við Noregskonung gegndi því hlutverki í sögunni að sýna ógæfu Egils, sem gengur illa að fóta sig í samfélaginu. „Ég vil benda á það að svona einstaklingshyggja sem einkennir Egil, hún er í rauninni tengd alls konar fyrirbærum á miðöldum sem eru ekki frjálslynd. Eins og páfaveldinu, sem er að vilja koma á beinu sambandi einstaklingsins við kirkjuna, það er að segja að skerða þessi hefðbundnu fjölskyldubönd,“ sagði Sverrir. Sú einstaklingshyggja væri gjörólík þeirri sem greina má í Heimskringlu, sem boði fremur ídeal samfélag heldur en einstaklinga, sem skera sig úr samfélagi manna eins og Egill. Sverrir Jakobsson, prófessor í miðaldasagnfræði.Háskóli Íslands Mun meira mark sé takandi á Sturlungu, sem sé samtímarit nákomins ættingja Snorra og lýsi gjörðum hans sjálfs, heldur en Heimskringlu og Egils sögu, sem við vitum alls ekki fyrir víst hvort séu samdar af Snorra. „Sturla sakar hann auðvitað um ýmislegt. Frægast er auðvitað það þegar Snorri og Þorvarður Þórðarson voru mættir til að berjast við Sturlu Sighvatsson í Bæjarbardaga þá bara gerist það í upphafi bardaga að Snorri kveður félaga sína og ríður til skips og fer til Noregs. Þetta er svona hámark heigulsháttar Snorra. Og í því ljósi varpa ég fram þeirri spurningu hvort Snorri sé góður liðsmaður fyrir frjálshyggjumenn sem vilja starfa í anda ensku Whig-stefnunnar. Hver vill hafa liðsmann sem flýr fyrstur úr bardaganum?“ spurði Sverrir að lokum og uppskar hlátur áheyrenda.
Bókmenntir Háskólar Menning Íslensk fræði Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Innlent Fleiri fréttir Kampakát Kristrún og Trump í New York Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Sjá meira