„Við þurfum að geta slegist í 40 mínútur“ Atli Arason skrifar 20. janúar 2022 20:58 Dúi Þór, leikmaður Þór Akureyri. Bára Dröfn Dúi Þór Jónsson, leikmaður Þór Akureyri, var svekktur með 35 stiga tap gegn Njarðvík í kvöld. Dúi var sérstaklega óánægður með síðari hálfleikinn hjá sínum mönnum, en það munaði bara fimm stigum á liðunum í hálfleik. „
Þetta var drullu slappt hjá okkur. Þeir börðu mikið á okkur og við náðum aldrei að mæta þeim í þeirra ákafa. Við gerðum vel í fyrri hálfleik en síðan unnu þeir okkur sannfærandi í síðari hálfleik,“ sagði Dúi í viðtali eftir leik. „Mér fannst við ekki spila leikinn okkar nógu vel. Við vorum allt of mikið að hugsa um hvað þeir voru að gera varnarlega og reyna að stíla inn á það í staðinn fyrir að spila okkar leikkerfi,“ bætti Dúi Þór við. „Við þurfum að geta slegist í 40 mínútur. Á móti svona góðu liði eins og Njarðvík þá þurfum við að vera í 40 mínútur að slást en ekki bara í fyrri hálfleik.“ Dúi endaði leikinn með sjö stig úr 12 skotum utan af velli. Fyrstu stig Dúa komu þó ekki fyrr en í síðari hálfleik í sjöundu skot tilraun sinni. Dúi telur sig eiga meira inni en var lítið að velta sér upp úr skotnýtingu á meðan á leiki stóð. „Ég get klárlega gert betur. Ég var ekkert svo sáttur við sjálfan mig en við vorum samt enn þá í leik í hálfleik og ég var ekki að pæla mikið í því þá en svona eftir leikinn þá hugsar maður að ég eigi að gera betur.“ Þór er á botni deildarinnar með tvö stig og næsti leikur liðsins er gegn Vestra sem Þór verður hreinlega að vinna ef þeir ætla að halda sér í deildinni. „Já það er seinasta líflínan okkar ef við ætlum að vera í baráttu. Við þurfum að vinna Vestra. Þeir koma norður til okkar en okkur líður mjög vel á heimavelli. Við ætlum að taka þann leik,“ sagði Dúi Þór Jónsson, leikmaður Þór Akureyri, að endingu.
Þór Akureyri UMF Njarðvík Subway-deild karla Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Ég er rígmontinn af þeim” Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira