Viðskipti innlent

Björn Ingi gjaldþrota

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Björn Ingi Hrafnsson, fjölmiðlamaður.
Björn Ingi Hrafnsson, fjölmiðlamaður. Vísir/Vilhelm

Fjölmiðlamaðurinn Björn Ingi Hrafnsson er gjaldþrota.

Frá þessu greinir Björn Ingi á Facebook þar sem hann segir frá því að í síðustu viku hafi hann farið í persónulegt gjaldþrot, vegna mála sem tengjast rekstri fjölmiðlasamstæðunnar Vefpressunnar.

„Það er kannski við hæfi, nú þegar akkúrat 13 ár eru í dag frá því vefmiðillinn Pressan hóf göngu sína, að segja hér frá því að í síðustu viku fór ég í persónulegt gjaldþrot vegna mála sem tengjast fjölmiðlarekstrinum fyrir nokkrum árum og hafa verið mér þungur baggi að bera um árabil. Það er ekkert skemmtilegt, en nauðsynlegt úr því sem komið var. Þetta er bara staðan, ég var í allskonar persónulegum ábyrgðum og maður verður að taka ábyrgð á eigin gjörðum, mistökum sem voru gerð og horfast í augu við staðreyndir,“ skrifar Björn Ingi.

Björn Ingi var á síðasta ári dæmdur til að greiða þrotabúi Vefpressunnar áttatíu milljónir króna. Þá staðfesti Landsréttur dóm Héraðsdóms Vesturlands sem hafði fallist á kröfur Pressunnar ehf. um að veðsetningum á eignum félagsins, sem gerðar voru með lánasamningi milli Pressunnar ehf. og Björns Inga auk tryggingabréfs, yrði rift.

Um var að ræða allsherjarveð í Pressunni, auk vörumerkjanna og vefsíðanna Eyjan.is, Bleikt.is, 433.is, sem og útgáfurétt Pressunnar. Þá var þess krafist að yfirtöku Frjálsrar fjölmiðlunar ehf., sem tók yfir miðla Pressunnar skömmu áður en félagið fór í gjaldþrot árið 2017, á 80 milljóna skuld Björns Inga við Pressuna yrði rift. Héraðsdómur og Landsréttur féllust einnig á það.

Björn Ingi freistaði þess að skjóta niðurstöðu Landsréttar til Hæstaréttar á síðasta ári, án árangurs.

Segist hafa tapað öllum sínum eigum

Í Facebook-færslunni segir Björn Ingi að nú þurfi hann að byrja upp á nýtt, peningar séu þó ekki allt og að mikilvægt sé að vera til staðar fyrir fólkið sitt og halda heilsu.

„Ég tapaði öllum mínum eigum á þessu ævintýri og það var mikill lærdómur. Er eftir margra ára varnarbaráttu orðinn málkunnugur fleiri lögfræðingum og stefnuvottum en gott getur talist, þótt flest sé það mikið sómafólk og bara að vinna vinnuna sína, og það verður kannski bara frelsi að setja þetta dæmi alltsaman á bak við sig,“ skrifar hann.

Björn Ingi, sem nú stýrir Viljanum, segist áfram ætla að vera Björn Ingi á Viljanum og sinna ýmsum öðrum verkum.

„[H]eld kannski áfram að skrifa bækur, sinna ýmsu fleiru, vera allsgáður, rækta líkama og sál og taka þátt í þjóðmálaumræðunni meðan einhver nennir að hlusta á það og vona eins og aðrir að veröldin sé ekki á barmi kjarnorkustyrjaldar.“


Tengdar fréttir

Björn Ingi stofnar nýjan fjölmiðil

Björn Ingi Hrafnson hefur stofnað nýjan vefmiðil sem nefnist Viljinn. Vefmiðlinum er ætlað að vera nútímalegur og borgaralega sinnaður sem hafi góða blaðamennsku að höfuðmarkmiði.

Björn Ingi hlýtur ekki náð fyrir augum Hæstaréttar

Hæstiréttur hefur hafnað því að taka fyrir mál fjölmiðlamannsins Björns Inga Hrafnssonar gegn þrótabúi Pressunnar ehf. Björn Ingi hafði óskað eftir málskotsleyfi eftir að Landsréttur dæmdi hann til að greiða 80 milljóna skuld til þrotabúsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×