Skoðun

Þjóð­banka bjargað úr brask­snöru

Þorsteinn Sæmundsson skrifar

Undanfarinn áratug tæpan hefur bygging nýrra höfuðstöðva á dýrustu lóð Íslands verið á dagskrá banka allra landsmanna. Pistilritari hefur gagnrýnt fyrirætlanirnar harðlega frá fyrstu tíð. Sú barátta var ekki þrautalaus því kjörnir fulltrúar almennings eiga ekki greiða leið að stjórn þjóðbankans sem er að tæplega níutíuogátta hundraðshlutum í eigu þjóðarinnar. Gagnrýni undirritaðs og fleiri á sínum tíma beindist fyrst og fremst að kostnaði við þessa risaframkvæmd og við töldum að á tímum þegar bankaútibúum og bankastarfsmönnum fækkar verulega væri algjör firra að ráðast í byggingu nýrra höfuðstöðva sem væru alltof stórar fyrir reksturinn. Bankastjórn og bankastjóri létu sig ekki og héldu framkvæmdinni áfram ótrauð. Rétt er að geta þess að framkvæmdin kom aldrei til kasta hluthafafundar og er því að öllu leyti á ábyrgð bankastjóra og stjórnar bankans. Það sætir furðu að fámennur hópur með svo veikt umboð skuli getað skuldbundið sameiginlega sjóði landsmanna með slíkum hætti. Undirritaður og fleiri bentu einnig á að áætlaður byggingakostnaður myndi ekki standast heldur verða miklu meiri en gert var ráð fyrir. Það hefur enda komið á daginn. Það er einnig athygisvert að þegar framkvæmdir voru að hefjast tók Landsbankinn lán í Norræna fjárfestingabankanum sem var um það bil jafnhátt og áætlaður kostnaður við byggingu nýrra höfuðstöðva.

Öll sú gagnrýni sem sett var fram á uppbyggingu höfuðstöðva Landsbankans áður en framkvæmdir hófust og síðar hefur reynst réttmæt. Fyrir tveim árum hafði kostnaður við bygginguna hækkað um tæpa tvo milljarða frá upphaflegri áætlun. Gera má ráð fyrir að enn hafi kostnaður aukist við bygginguna síðustu tvö ár.

Hér er ekki öll sagan sögð. Varnaðarorð um stærð byggingarinnar voru einnig á rökum reist. Þannig boðaði þjóðbankinn fyrir nokkru að hluti nýbyggingarinnar yrði leigður út því húsið væri allt of stórt fyrir reksturinn! Þjóðbankinn ætlaði því að hasla sér völl á leigumarkaðnum í samkeppni við viðskiptavini sína. Nú er það ekki eitt af lögbundnum verkefnum þjóðbankans að taka þátt í braski á leigumarkaði. Framtak bankans mæltist því misjafnlega fyrir. Hefur alllengi verið leitað leiða til að skera Þjóðbankann niður úr brasksnörunni.

Nú virðist ríkisstjórnin hafa ákveðið að koma fyrir svosem eins og tveim ráðuneytum í höllinni dýru á lóðinni rándýru. Ef af verður mun höllin allavega fullnýtt. Spurningar sem vakna eru hins vegar margar. Hver er heildarkostnaður af þessari óráðsíu bankastjóra og stjórnar Landsbankans? Hver verður kostnaður ríkissjóðs vegna flutninga ráðuneyta í höllina og hver verður leigukostnaðurinn? Mun bankastjóri og stjórn bankans axla ábyrgð á þessu fyrirséða klúðri sem margoft var varað við? Eigendur bankans, íslenskur almenningur, krefst svara!

Höfundur á sæti í stjórn Miðflokksins.




Skoðun

Sjá meira


×