Þóttist skjóta stuðningsmenn mótherjanna Sindri Sverrisson skrifar 23. ágúst 2022 08:00 Brasilíumaðurinn Yago beindi hornfánastönginni að stuðningsmönnum Vitoria. Skjáskot/Twitter Brasilíski knattspyrnumaðurinn Yago Cariello gerði allt brjálað þegar hann fagnaði sigurmarki sínu, í efstu deild Portúgals, með því að þykjast skjóta stuðningsmenn andstæðinga sinna.
Yago tryggði liði sínu Portimonense dísætan 2-1 sigur gegn Vitoria Guimaraes með því að skora á 88. mínútu. Einhverra hluta vegna ákvað Yago að fagna markinu með því að ná í hornfánastöng og beina henni að stuðningsmönnum gestanna, og þykjast skjóta þá. Yago Cariello scores an 88th-minute goal for Portimonense before taking the corner flag and proceeding to shoot the visiting Vitória fans. One of the most unique and provocative celebrations I ve ever seen. pic.twitter.com/usTeva5tlT— Zach Lowy (@ZachLowy) August 22, 2022 Eins og gefur að skilja urðu bæði stuðningsmenn Vitoria, sem og leikmenn liðsins, illir yfir þessu og hlutum var grýtt í átt að Brasilíumanninum. Yago virtist loks átta sig á heimskupörum sínum og lyfti höndum upp líkt og til að biðjast afsökunar. Hann fékk áminningu fyrir hegðun sína hjá dómara leiksins en slapp við rautt spjald. Þetta var annað mark Yago á leiktíðinni en Portimonense er með sex stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar, rétt eins og Vitoria. Porto er á toppnum með fullt hús stiga.
Fótbolti Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Fleiri fréttir Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Bjarni Jó hættur Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Infantino baðst afsökunar en neitaði að svara fjölmiðlum Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Fallegt Evrópukvöld fyrir Íslendingana Bournemouth nýtur lífsins á nýjum slóðum en Willum spilaði lítið Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Mikael meiddur af velli í Belgíu Orri nálægt sigurmarki á 90 sekúndum Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Vill draga Ronaldo aftur inn í landsliðið Hegðun erkifjenda þeirra ekki komið á óvart gegn Bayern München „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Sjáðu PSG refsa City, ótrúlegan viðsnúning Real og öll hin Amin fékk mynd af sér með skúrki Bayern Leikur liðs Elíasar færður vegna mótmæla Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Bo Johansson er látinn Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Sjá meira