Tveir handteknir vegna hnífaslagsmála í nótt Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 7. september 2022 07:03 Lögreglan hafði í nógu að snúast í gærkvöldi og nótt. Vísir/Vilhelm Lögregla handtók tvo í verslun í miðborg Reykjavíkur klukkan eitt í nótt en þeir höfðu átt í slagsmálum inni í versluninni. Báðir höfðu verið að beita hnífum gegn hvor öðrum. Annar var látinn gista fangageymslur sökum vímu en hinn látinn fara að lokinni skýrslutöku.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu en þar segir jafnframt að mennirnir hafi notað hnífana til að ógna hvor öðrum, þeim hafi ekki verið beitt. Mennirnir hafi verið með minniháttar áverka eftir slagsmáli en eftir hnefa þeirra. Talsvert var um að vera hjá lögreglunni í gærkvöld og í nótt en alls komu sautján verkefni inn á borð lögreglunnar frá klukkan fimm, síðdegis í gær. Á sjöunda tímanum var tilkynnt um innbrot í bílskýli í Breiðholti en munir höfðu verið teknir úr bifreið í því. Ökumaður var handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna í Hálsahverfi en hann reyndist auk þess sviptur ökuréttindum. Einn var þá kærður fyrir hraðakstur á Ártúnshöfða. Sá var tekinn á 83 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 60. Annar var handtekinn í Breiðholti fyrir ofsaakstur en sá hafði ekið á umferðarmannvirki og stungið af. Maðurinn reyndist hafa verið mjög ölvaður og gistir fangageymslur þar til hægt verður að ræða við hann. Annar var handtekinn í Foldahverfi fyrir ölvunarakstur. Þá var maður handtekinn fyrir fíkniefnaakstur í miðborginni á þriðja tímanum í nótt. Hann er nú í haldi lögreglu þar sem hann var með lyfseðilskyld lyf á sér sem hann getur ekki gert grein fyrir og var með hníf í fórum sínum. Stuttu síðar lagði lögregla hald á rafvopn, fíkniefni og hnífa á heimili í Hafnarfirði og telst mál það upplýst. Einn er í haldi vegna innbrots á Smiðjuvegi í Kópavogi á fimmta tímanum í nótt. Maðurinn reyndist vopnaður og með fíkniefni í sínum fórum ásamt ýmsum munum sem talið var vera þýfi. Líklegt er talið að hann hafi farið inn í nokkrar bifreiðar á svæðinu í nótt áður en hann var handtekinn og látið greipar sópa. Fram kemur í dagbók lögreglu að fimm gisti fangageymslur og beri sumir ábyrgð á fleiru en einu broti sem upp eru talin hér að ofan.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Fleiri fréttir Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Sjá meira