Mikill áhugi á nýju skipulagi við Kirkjusand Heimir Már Pétursson skrifar 7. september 2022 19:46 Hér sést hvernig endurbyggðar höfuðstöðvar Ísandsbanka munu líta út með íbúðum á efri hæðum en þjónustu á jarðhæð. Kurt og pí Unnið er að breytingum á deiliskipulagi fyrir Kirkjusandslóðina sem felur í sér að byggð verða fimm hús með um 220 íbúðum. Nágrannar hafa nokkrar áhyggjur af byggingarmagninu en skipuleggjendur segja áformin mun betri en gert var ráð fyrir í gildandi skipulagi.
Hér sést bakhlið byggingarinnar sem áformað er að byggja í stað gömlu höfuðstöðva Íslandsbanka og hluti tveggja bygginga sem reiknað er með er að reisa á bakvið hana.Kurt og pí Samkvæmt gildandi deiliskipulagi frá 2016 var gert ráð fyrir blandaðri byggð á Kirkjusandi þar sem gamla frystihúsið, síðar höfuðstöðvar Íslandsbanka, yrði hluti af þeirri byggð. Síðar kom í ljós að húsið er mikð skemmt af raka og myglu og ákveðið var að rífa það. Nú stendur til að byggja hús sem minnir mjög á gamla frystihúsið en liggur framar í ljóðinni. Steinþór Kári Kárason arkitekt segir nýja hverfið það fyrsta sem fari í öllu að skilmálum í nýju aðalskipulagi borgarinnar.Stöð 2/Dúi Í húsinu verða íbúðir en þjónusta á jarðhæð. Að auki stendur til að byggja fjögur hús á baklóðinni. Þegar flogið er á dróna yfir gömlu Íslandsbankabygginguna og sést stór lóð þar á bakvið sem er ekkert nýtt í dag. Breyting hefur verið gerð á deiliskipulaginu út frá verðlaunatillögu úr samkeppni um þróun svæðisins fyrir tveimur árum. Steinþór Kári Kárason arkitekt hjá Kurt og pí segir að nú sé gert ráð fyrir íbúðarhúsnæði í stað atvinnuhúsnæðis. „Þetta eru um 220 íbúðir samtals. Það er einhver þjónusta þarna líka. Þetta eru hefðbundnar íbúðir en að hluta til er gert ráð fyrir svo kölluðum hagkvæmum íbúðarkostum,“ segir Steinþór Kári. Þarna verði almenningsrými fyrir fólk og í fyrsta skipti farið eftir nýjum reglum í breyttu aðalskipulagi um lágmarksstærð íverurýma á lóð sem njóti lágmarks sólar dag hvern. Byggingarnar þrjár frá og með rauðbrúnu byggingunni fjærst til vinstri eiga að rísa á bakvið gömlu höfuðstöðva Íslandsbanka.Kurt og pí Steinþór Kári segir mögulegt að einhverjar íbúðanna verði ætlaðar stúdentum. Nágrannar fjölmenntu á kynningarfund Íslandssjóða á áætlununum í dag. Björn Magnús Björgvinsson íbúi á Kirkjusandi segir fólk hafa nokkrar áhyggjur á byggingarmagninu. Björn Magnús Björgvinsson segir íbúa ekki setja sig upp á móti því að byggt verði á lóðinni. Þeir fagni því einnig að gamla aðalbygging Íslandsbanka verði loks rifin.Stöð 2/Dúi „Við nefnum það til sögunnar íbúar á Kirkjusandi eitt, þrjú og fimm og þar eru 57 íbúðir. Þarna eiga að koma á samsvarandi reit 225 íbúðir. Það veldur okkur áhyggjum. Við erum mjög fegin og fögnum því að þetta hús verði rifið," segir Björn Magnús. Steinþór Kári segir áformin mun álitlegri en samkvæmt gildandi skipulagi. Þar hafi verið gert ráð fyrir að byggja eina stóra og mjög óaðgengilega byggingu á lóðinni. „Það sem við erum að gera í staðinn er að klára þarna göngugötu sem liggur í gegnum Kirkjusandsbyggðina. Endar svo í torgi sem aftur opnast út í hverfið. Þannig að okkar mati er þessi útfærsla miklu betur til þess bær að tengjast út í hverfið og þar af leiðandi verða hluti af því,“ segir Steinþór Kári Kárason. Lengst til vinstri sést hluti þeirrar stórbygginigar atvinnuhúsnæðis sem til stóð að byggja samkvæmt gildandi deiliskipulagi. Hún tók mið af útliti gamla frystihússins.Reykjavíkurborg Björn Magnús segir fyrirhugaðar byggingar hærri en aðrar í framlínunni. Þá óttist íbúar myndun vindsveipa eins og myndast hefðu í Borgartúni í Bríetartúni við nýbyggingarnar þar. Er ekki eðlilegt að borgin vaxi, líka þetta rótgróna hverfi sem vissulega er þarna á bakvið? „Við höfum ekkert á móti nýbyggingum á þessum reit. Það er fyrst og fremst hæðin og fjöldi íbúða sem við höfum áhyggjur af,“ segir Björn Magnús Björgvinsson.
Húsnæðismál Reykjavík Byggðamál Tengdar fréttir „Mikilvægasta aðgerðin var að upplýsa starfsfólk strax“ „Mikilvægasta aðgerðin var að upplýsa starfsfólk strax um ástand húsnæðisins og leggja öll spil á borðið,“ segir Hafsteinn Bragason mannauðsstjóri Íslandsbanka þegar hann rifjar upp þá stöðu þegar Íslandsbanki stóð frammi fyrir myglusveppi í höfuðstöðvum sínum á Kirkjusandi. 13. janúar 2022 07:00 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ Sjá meira
„Mikilvægasta aðgerðin var að upplýsa starfsfólk strax“ „Mikilvægasta aðgerðin var að upplýsa starfsfólk strax um ástand húsnæðisins og leggja öll spil á borðið,“ segir Hafsteinn Bragason mannauðsstjóri Íslandsbanka þegar hann rifjar upp þá stöðu þegar Íslandsbanki stóð frammi fyrir myglusveppi í höfuðstöðvum sínum á Kirkjusandi. 13. janúar 2022 07:00