Vert er að taka fram að í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólk með sjálfsvígshugsanir er minnt á Píeta samtökin. Síminn hjá Pieta-samtökunum er jafnframt opinn allan sólarhringinn og er 552-2218 og vefsíðan pieta.is.
Samtökin fengu styrk frá Oddfellowstúkunni nr. 3, Hallveigu, til að flytja sig í nýtt húsnæði við Amtmannsstíg en samtökin hafa stækkað verulega á síðustu árum og var því þörf á stærra húsnæði. Meðal viðstaddra voru heilbrigðisráðherra, félagsmálaráðherra, forsetafrú, meðlimir Oddfellowreglunnar og fleiri.
„Auðvitað myndi maður vilja sjá að það þyrfti ekki samtök eins og Píeta en á meðan við erum enn þá á þeim stað að fólki líður illa, það er í sjálfsvígshugleiðingum, að þá er svo sannarlega mikil guðsgjöf að við höfum samtök eins og Píeta,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra.

Sigríður Björk Þormar, formaður stjórnar Píeta samtakanna, tekur undir með ráðherranum.
„Það er eðlilegt og mannlegt að líða stundum illa en það á ekki að þurfa koma til þess að fólk sé komið á þann stað í vanlíðan sinni að það sjái ekkert fram undan. Við viljum ekki að fólk sé orðið vonlaust eða sjái enga aðra lausn en að taka eigið líf,“ segir Sigríður Björk Þormar, formaður stjórnar Píeta samtakanna.
„Þannig að Píeta samtökin hafa lagt mikla áherslu á það að vekja aftur von hjá fólki sem er kannski búið að missa hana og hjálpa fólki að styrkja bjargráð sín þannig það geti einhvern veginn farið að feta sig hægt og rólega fram á við aftur,“ segir hún enn fremur.
Mölbrotnir einstaklingar standi eftir
Þá sinna samtökin einnig aðstandendum en meðal þeirra sem hafa leitað til samtakanna eru aðstandendur leikarans Gísla Rúnars Jónssonar sem féll fyrir eigin hendi í júlí 2020.
Fjölskyldan veitti samtökunum styrk við opnunina í dag og gaf þeim upplag af Gervilimrum Gísla Rúnars, sem var hans síðasta verk. Þær verði síðan til sölu í vefverslun Píeta, sem fólk geti notað til að versla jólagjafir og annað slíkt.
Edda Björgvinsdóttir, fyrrverandi eiginkona og lífsförunautur Gísla, segir samtökin hafa bjargað fjölskyldunni.

„Ef að ekki hefði verið fyrir Píeta samtökin og Sorgarmiðstöðina þá veit ég ekki alveg hvar við fjölskyldan værum,“ segir hún. „Það er dálítið óhugguleg staðreynd að í kringum hvern sem að fellur fyrir eigin hendi eru svona aldrei minna en 130 manns sem eru mölbrotnir. Og hvað verður um þetta fólk og hver grípur þetta fólk?“
Sjálf kveðst hún ekki hafa vitað af samtökunum fyrr en eftir að Gísli Rúnar lést.
„Það var frábært að hafa fengið að vita það þá en hræðilegt að hafa ekki fengið vitneskju um þessi samtök þegar við vorum að halda utan um svona ofsalega þjáðan einstakling. Því þá auðvitað hefðum við farið með hann hingað,“ segir Edda og tekur fram að það „ef“ sé meðal þess sem brýtur fólk.
Um sé að ræða ólýsanlega sorg og við taki langt ferli í að raða saman brotum sálum. Þá sé lífsnauðsynlegt að samtök eins og Píeta séu til og allir viti af þeim.

„Ég vil að þetta fari inn í alla skóla, leikskóla, allar stöðvar þar sem að fólk sem að talar ekki íslensku fær upplýsingarnar fyrirhafnarlaust í hendur. Vegna þess að þegar maður stendur í þessum sporum, þá er það ekki það fyrsta sem manni dettur í hug að gúgla, hvernig finn ég einhvern til að grípa mig,“ segir Edda.
Það að tala við einhvern geti og hafi bjargað mannslífum og því þurfi að dreifa boðskapnum og grípa fólk sem er í sárum.
„Það þarf einhver að raða saman brotunum og þá eru það þessi félagasamtök sem koma svo sterkt inn. Því miður er hið opinbera kerfi bara ófært um það eins og er, en ég trúi því núna með þessari byltingu í umræðu, að þá verði gjörbreyting þar á,“ segir Edda.