Þá eru Úkraínumenn þegar byrjaðir að skera á mjög mikilvægar birgðalínur Rússa á svæðinu. Vendingar sem þessar hafa ekki orðið á víglínunum í Úkraínu frá því snemma í innrásinni.
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði í ávarpi sínu í gærkvöldi að rúmlega þúsund ferkílómetrar af úkraínsku landsvæði hefðu verið frelsaðir. Forsetinn birti svo myndband sem sýndi úkraínska hermenn frá borginni Balakliya sem Rússar voru reknir frá á undanförnum dögum.
Þessir hermenn tilkynntu Selenskí í myndbandinu að búið væri að framfylgja skipuninni um frelsun borgarinnar.
defenders address Zelenskyy from liberated Balakliya
— Euromaidan Press (@EuromaidanPress) September 8, 2022
"Mr. President, Mr. Commander-in-Chief, Balakliya is taken under control, the order has been completed. Today is Sept. 8, 4 p.m. Glory to Ukraine!" https://t.co/kvaHa9hhhO pic.twitter.com/JktagAIdqk
Annað myndband frá borginni hefur vakið mikla athygli en það sýnir íbúa Balakliya fagna komu úkraínskra hermanna.
Ukrainian civilians greet Ukrainian soldiers in liberated Balaklia.
— WarMonitor (@WarMonitor3) September 8, 2022
A moment for history pic.twitter.com/a0dSrYo2Ee
Ráðamenn í Rússlandi eða varnarmálaráðuneyti Rússlands hafa enn lítið sem ekkert sagt um gagnárás Úkraínumanna.
Eins og áður hefur komið fram virðist sem markmið Úkraínumanna í Kharkív sé að ná borginni Kupyansk og þannig skera á birgðaleiðir Rússa í Izyum. Borgin féll í hendur Rússa í mars og er ein af þungamiðjum herafla Rússlands í austurhluta Úkraínu. Útlit er fyrir að Úkraínumenn séu þegar komnir að úthverfum Kupyansk.
Fregnir hafa borist af því að bardagar séu hafnir í jaðri borgarinnar.
Sjá einnig: Rýnt í stöðuna í Úkraínu - Komnir langt í gegnum varnir Rússa í Kharkív
Það er miðað við rússneska bloggara sem sérhæfa sig í málefnum rússneska hersins. Það samfélag er tiltölulega stórt og mjög virkt í Rússlandi. Vestrænir sérfræðingar sem fylgjast meðal annars með myndefni sem úkraínskir og rússneskir hermenn birta á samfélagsmiðlum hafa gefið svipaða mynd af stöðunni í Kharkív.
Imagine being a Ukrainian soldier in your teens or early 20s witnessing a scene like this pic.twitter.com/G11kH4jisO
— Matthew Luxmoore (@mjluxmoore) September 9, 2022
Hér að neðan má sjá kort frá því í gær sem sýnir sókn Úkraínumanna í mjög grófum dráttum. Áðurnefndir rússneskir bloggarar segja Úkraínumenn hafa sótt lengra en kortið hér að neðan gefur til kynna, enda er það sextán klukkustunda gamalt.
This map shows claimed advances by Ukrainain forces towards Kupiansk, in the Kharkiv countryside. Not all of these claims have been visually verified.
— Nathan Ruser (@Nrg8000) September 8, 2022
A breakthrough in this area puts serious stress on Russian positions in Izyum and Lyman as Kupiansk is a key supply node. pic.twitter.com/0IQmyuA0W4
Takist Úkraínumönnum að skera á þessar birgðalínur og halda því svæði sem þeir hafa frelsað frá Rússum í vikunni, gæti það haft gífurleg áhrif á getu rússneska hersins í austurhluta Úkraínu. Í það minnsta þar til Rússar mynda aðrar birgðalínur.
Allar líkur á gagn-gagnárás
Rússar hafa verið að flytja nýja herdeild til Úkraínu en sú er talin skipuð allt að tuttugu þúsund hermönnum. Líklegt er að sú herdeild, sem kallast „Þriðji herinn“ verði sendur til Kharkív og muni verða notuð til að reyna að stöðva sókn Úkraínumanna og reka úkraínska herinn aftur á bak í héraðinu.
Utterly smashed Russian positions on the Kharkiv front. pic.twitter.com/TZrxAH4Uuk
— Jimmy (@JimmySecUK) September 9, 2022
Óljóst er hve marga hermenn Úkraínumenn eru með á svæðinu og hve máttugir þeir eru þar en mögulegt er að þeir hafi fundið veikleika á víglínu Rússa og nýtt sér hann með tiltölulega fámennum sveitum. Þá er sömuleiðis lítið vitað um mögulegt mannfall Úkraínumanna í héraðinu.
Framvindan í Kharkív og víðar í austurhluta Úkraínu, veltur mikið á því hvernig óhjákvæmileg gagn-gagnárás Rússa gengur á næstu dögum og vikum.
Rússneska ríkisfréttaveitan RIA birti í morgun mydnband sem á að sýna rússneskan liðsauka á leið til Kharkív.