Argentínumenn eru nú sigurstranglegastir á HM í Katar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. desember 2022 13:00 Margir vilja að Lionel Messi ná loksins að verða heimsmeistari til að kóróna magnaðan feril sinn. AP/Jorge Saenz Eftir að Brasilía og England datt úr keppni á heimsmeistaramótinu í fótbolta í Katar þá þykir argentínska landsliðið líklegast til að fara alla leið og vinna heimsmeistaratitilinn.
Bandaríska tölfræðiþjónustan FiveThirtyEight hefur nú uppfært sigurlíkur þjóðanna eftir átta liða úrslitin. Argentína og Króatía mætast í fyrri undanúrslitaleiknum annað kvöld og Frakkland og Marokkó spila síðan á miðvikudagskvöldið. View this post on Instagram A post shared by ESPN FC (@espnfc) Samkvæmt útreikningum FiveThirtyEight þá eru 64 prósent líkur á sigri Argentínumanna á móti Króatíu og 66 prósent líkur á frönskum sigri á móti Marokkó. Það eru síðan 37 prósent líkur á því að Argentína verði heimsmeistarar en svo eru 35 prósent líkur á því að heimsmeistarar Frakka verji titilinn. Sextán prósent líkur eru á því að Króatar vinni titilinn og FiveThirtyEight gefur Afríkumönnunum aðeins þrettán prósent sigurlíkur. Argentínumenn hafa aðeins tvisvar orðið heimsmeistarar og það eru liðin 36 ár síðan þeir unnu síðast undir forystu Diego Maradona á HM í Mexíkó 1986. Þetta er fyrsta heimsmeistarakeppnin eftir lát Maradona og líka síðasta heimsmeistarakeppni Lionel Messi. Messi hefur verið frábær á mótinu og er næstmarkahæstur með fjögur mörk. Þetta er hans fimmta heimsmeistarakeppni og hann jafnar leikjamet HM í undanúrslitaleiknum.
HM 2022 í Katar Mest lesið Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Sport Styrmir nýr formaður hjá Val Íslenski boltinn Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Handbolti Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Fótbolti Tilfinningaríkur sigur Littler Sport Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Handbolti Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Íslenski boltinn HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Fótbolti Írar unnu góðan sigur Fótbolti Fleiri fréttir Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Tottenham bætir í vörnina Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Styrmir nýr formaður hjá Val Verður einn sá dýrasti í sögu KR HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Messi fer á sjötta heimsmeistaramótið Snýr aftur heim til Víkinga Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Írar unnu góðan sigur „Skítugur blettur á íþróttinni okkar“ Allegri ráðinn þjálfari Napoli Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Jón Daði utan hóps af persónulegum ástæðum Stórhuga Börsungar að undirbúa tilboð í Álvarez Vilja ráða Iraola eða Lampard Frimpong í kuldanum og fer ekki á HM Mikil leynd yfir meiðslum Neymar en þau minna á Romário Vann tvo Evróputitla sama vorið Sér ekkert að því að senda leikmönnum bara tölvupóst Sjáðu markið sem tryggði Palace sigur í Sambandsdeild Evrópu Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Afturelding á flugi, 16 ára hetja Gróttu gegn Þrótti og fyrsti sigur Ægis Unnu sinn fyrsta Evróputitil í kveðjuleik Glasners Davíð Smári fór illa með gömlu lærisveinana Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Fyrirliðinn braut hjörtu Hearts Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Sjá meira