Real í úrslit ofurbikarsins en sigurinn gæti orðið dýrkeyptur Smári Jökull Jónsson skrifar 11. janúar 2023 22:24 Karim Benzema fagnar marki sínu í leiknum í kvöld. Hann skoraði einnig í vítaspyrnukeppninni. Vísir/Getty Real Madrid er komið í úrslit spænska ofurbikarsins en liðið vann í kvöld sigur á Valencia eftir framlengingu og vítaspyrnukeppni. Tveir leikmenn Real þurftu að fara af velli í leiknum vegna meiðsla.
Real Madrid og Valencia mættust í kvöld í fyrri undanúrslitaleiknum í spænska ofurbikarnum en lið öðlast þar þátttöku með því að lenda í tveimur efstu sætum deildakeppninnar eða komast í bikarúrslit tímabilsins á undan. Karim Benzema kom Real yfir rétt fyrir lok fyrri hálfleiks þegar hann skoraði úr vítaspyrnu sem hann náði sjálfur í en hann var felldur af Eray Cömert. Strax í upphafi síðari hálfleiks jafnaði Lino fyrir Valencia eftir sendingu frá Lato Toni og staðan orðin 1-1. Liðunum tókst ekki að skora fleiri mörk fyrir lok venjulegs leiktíma og heldur ekki í framlengingu. Því varð að grípa til vítaspyrnukeppni. Þar voru það leikmenn Real sem voru sterkari á svellinu. Thibaut Courtois tryggði sigurinn þegar hann varði frá Jose Gaya og Real því komið í úrslitaleikinn. Það kemur í ljós á morgun hvort það verður Barcelona eða Real Betis sem mætir þeim í úrslitum. Sigur Real í kvöld gæti þó verið dýrkeyptur því liðið missti tvo leikmenn af velli vegna meiðsla. Lucas Vasquez meiddist á fæti og þá fékk Eder Militao skot í höfuðið og fór vankaður af velli.
Spænski boltinn Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Fleiri fréttir Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Sjá meira