Skoðun

Leyndó í beinni út­sendingu

Sigmar Guðmundsson skrifar

Nýjustu vendingar í málefnum Lindarhvols eru sennilega þær furðulegustu hingað til. Hjá ríkisstjórnarflokkunum hefur farið gríðarleg orka í að koma í veg fyrir að almenningur fái að sjá greinargerð sem einn ríkisendurskoðandi vann um Lindarhvol, en hún stangast í veigamiklum atriðum á við skýrslu sem annar ríkisendurskoðandi gerði um sama mál.

En í vikunni fékk meirihlutinn í stjórnskipunar og eftirlitsnefnd algerlega brilljant hugmynd. Ný og frumleg nálgun sem á bæði að svala kröfu almennings um aukið gagnsæi, en um leið að viðhalda leyndinni tryggilega. Sigurður Þórðarsson, settur ríkisendurskoðandi, verður boðaður fyrir nefndina á opinn fund en greinargerðin verður áfram sveipuð leyndarhjúpi.

Gagnsæið er orðið svo mikið og upplýsingagjöfin svo yfirþyrmandi að halda á fund í beinni útsendingu um trúnaðarmál sem þingmennirnir vilja opinbera en ætla samt ekki að gera það.

Settur ríkisendurskoðandi á að sitja fyrir svörum um eitthvað sem engin veit hvað er og ekki má tala um -og alls ekki spyrja um - þótt ríkisstjórnarflokkunum finnist að samtalið eigi að fara fram fyrir opnum tjöldum í trúnaði. Þetta opinbera trúnaðarsamtal í beinni útsendingu um trúnaðargögnin fer fram eftir helgi þar sem sá sem situr fyrir svörum má alls ekki svara vegna trúnaðar.

Þegar ég vann í sjónvarpinu voru svona trúnaðarmál sem ræða þurfti opinberlega afgreidd þannig að gesturinn var blörraður og röddinni breytt.

Í tilfelli Alþingis er annar kostur í boði og hann er talsvert betri. Afléttum trúnaði af greinargerðinni og ræðum opinberlega, efnislega og án trúnaðar, í beinni útsendingu, hvernig farið var með fjármuni almennings. Hundruð milljarða. Almenningur á rétt á því.

Þessi fyrirhugaði farsi stjórnarmeirihlutans um leyndardóma Leyndarhvols er með þeim lélegri á dagskrá Alþingis í manna minnum.

Höfundur er þingmaður Viðreisnar.


Tengdar fréttir

Enn aukast flækjur Lindarhvolsmálsins á Alþingi

Þingmenn eru enn að vandræðast með hvort opinbera eigi greinargerð frá fyrrverandi settum ríkisendurskoðanda um eignarhaldsfélag ríkisins utan um eignir sem það leysti til sín eftir hrun bankanna. Málið verður furðulegra með hverjum deginum sem líður

Kalla settan ríkis­endur­­skoðanda á fund um Lindar­hvol: „Mögu­lega til­gangs­lausasti fundur þing­sögunnar“

Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar hefur ákveðið að boða settan ríkisendurskoðanda á opinn fund um Lindarhvolsmálið. Þingmaður Pírata velti því upp hvort sá fundur yrði „mögulega tilgangslausasti fundur þingsögunnar“ og sakaði meirihlutann um sýndarmennsku. Stjórnarliðar sögðu ekkert óeðlilegt við að boðað hafi verið til fundar, þó ekki megi birta greinargerð um málið.




Skoðun

Sjá meira


×