Castellanos skoraði fjögur og Madrídingar svo gott sem búnir að missa af titlinum Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 25. apríl 2023 19:25 Taty Castellanos skoraði öll fjögur mörk Girona í kvöld. Eric Alonso/Getty Images Taty Castellanos fer líklega sáttur að sofa í kvöld eftir að leikmaðurinn skoraði öll mörk Girona er liðið vann vægast sagt óvæntan 4-2 sigur gegn Real Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.
Castellanos kom heimamönnum í Girona í forystu strax á tólftu mínútu leiksins áður en hann bætti öðru marki sínu við tólf mínútum síðar og kom Girona í 2-0. Vinicius Junior minnkaði þó muninn fyrir gestina á 34. mínútu og staðan var því 2-1 þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja. Castellanos var þó hvergi nærri hættur því hann fullkomnaði þrennuna strax á fyrstu mínútu síðari hálfleiks og bætti svo fjórða markinu við eftir rétt rúmlega klukkutíma leik. Hann fékk svo heiðursskiptingu á 72. mínútu og getur verið sáttur við dagsverkið. Varamaðurinn Lucas Vazques klóraði í bakkann fyrir Madrídinga þegar um fimm mínútur voru til leiksloka, en nær komust gestirnir ekki og niðurstaðan varð 4-2 sigur Girona. Madrídingar sitja því enn í öðru sæti spænsku úrvalsdeildarinnar með 65 stig eftir 31 leik, ellefu stigum minna en topplið Barcelona sem á leik til góða. Girona situr hins vegar í níunda sæti með 41 stig.
Spænski boltinn Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Fleiri fréttir Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Sjá meira