Tuttugasti bikartitill Real Madrid í höfn Smári Jökull Jónsson skrifar 6. maí 2023 22:02 Rodrygo fagnar sigurmarki sínu í leiknum í kvöld. Vísir/Getty Real Madrid er spænskur bikarmeistari í knattspyrnu eftir 2-1 sigur á Osasuna í bikarúrslitaleik í kvöld. Rodrygo var hetja Real en hann skoraði bæði mörk liðsins í leiknum.
Real Madrid sló Barcelona út í undanúrslitum en Osasuna lagði Athletic Bilbao í sínu einvígi. Liðin eru á ólíkum stöðum í deildakeppninni, Real situr í öðru sætinu á eftir Barcelona en Osasuna í 10. sætinu. Leikurinn sem fór fram í Sevilla byrjaði heldur betur vel því Rodrygo kom liðinu yfir strax á annarri mínútu leiksins eftir sendingu frá landa sínum Vinicius Jr. Héldu eflaust margir að eftirleikurinn yrði auðveldur fyrir Real en liðinu tókst ekki að bæta við forystuna í fyrri hálfleik og staðan að honum loknum var 1-0. Leikmenn Osasuna lögðu árar að sjálfsögðu ekki í bát. Á 58. mínútu jafnaði Lucas Torro metin eftir sendingu Abdessamad Ezzalzouli. Það var hins vegar Rodrygo sem reyndist hetja Real Madrid. Hann skoraði sitt annað mark og sigurmarkið í leiknum á 70. mínútu eftir mistök í vörn Osasuna. Leikmönnum Osasuna tókst ekki að jafna undir lokin og það voru því leikmenn Real Madrid sem fögnuðu tuttugasta bikartitli félagsins en liðið varð síðast meistari vorið 2014. Real Madrid leikur í vikunni fyrri leik sinni í undanúrslitaeinvígi Meistaradeildarinnar gegn Manchester City. Sigurinn í kvöld gefur liðinu gott veganesti fyrir þann leik en Real hefur ekki verið þekkt fyrir að tapa mikilvægum leikjum á síðustu árum.
Spænski boltinn Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti Fleiri fréttir Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Sjá meira