Wagner í hart gegn rússneska hernum og Prigozhin eftirlýstur Samúel Karl Ólason skrifar 23. júní 2023 20:59 Yevgeny Prigozhin hefur verið umsvifamikill í stríðsrekstri Rússa og mjög gagnrýninn á forsvarsmenn rússneska hersins. AP Yevgeny Prigozhin, rússneski auðjöfurinn sem rekur málaliðahópinn Wagner Group og hefur tekið virkan þátt í innrás Rússa í Úkraínu, lýsti því yfir í kvöld að leiðtogaráð Wagner hefði ákveðið að fara í hart gegn leiðtogum Varnarmálaráðuneytis Rússlands og að „rústa“ öllum sem standa í vegi þeirra.
Það er eftir að hann lýsti því yfir að rússneski herinn hefði skotið eldflaugum á herstöð Wagner. Forsvarsmenn FSB, áður KGB, eru sagðir hafa gefið út handtökuskipun á hendur auðjöfursins og er hann sakaður um að kalla eftir byltingu í Rússlandi, samkvæmt RIA, sem er í eigu rússneska ríkisins. Ríkissaksóknari Rússlands segja að Prigozhin geti verið dæmdur til allt að tuttugu ára fangelsisvistar fyrir byltingaráróður. Þá hefur RIA eftir forsvarsmönnum FSB að Prigozhin sé að stinga alla rússneska hermenn í bakið. RIA hefur einnig eftir Dmítrí Peskóv, talsmanni Vladimír Pútín, að forsetinn sé meðvitaður um ásakanirnar gegn Prigozhin og ummæli hans. BBC í Rússlandi segir að verið sé að setja upp vegatálma í Moskvu, höfuðborg Rússlands. Þá hafa bryndrekar sést á götum Rostov, en umrædd herstöð Wagner er sögð hafa verið nærri þeirri borg. Tass fréttaveitan, sem er einnig í eigu rússneska ríkisins, segja öryggisgæslu hafa verið aukna við opinberar stofnanir í Moskvu. Forsvarsmenn Varnarmálaráðuneytis Úkraínu segjast einnig fylgjast náið með málum í Rússlandi en fregnir þaðan eru enn á miklu reiki. We are watching.— Defense of Ukraine (@DefenceU) June 23, 2023 Talsmenn Varnarmálaráðuneytisins segja enga árás hafa verið gerða á Wagner. Hér að neðan má meðal annars sjá myndband sem Prigozhin birti í kvöld, sem hann segir hafa verið tekið í umræddri herstöð. Wow. Now Prigozhin says that the council of Wagner commanders have decided to deal with the military leadership of Russia adding that he will destroy everyone who appears n his way. "I ask everyone to stay calm at home, do not go outside." https://t.co/sX8O7OhSkE— Pjotr Sauer (@PjotrSauer) June 23, 2023 Rússneski herforinginn Sergei Surovikin, sem leiddi innrás Rússa í Úkraínu um tíma, hefur sent frá sér myndbandsávarp þar sem hann kallar eftir því að málaliðar Wagner fylgi ekki skipunum Prigozhin. Herfoinginn hefur verið talinn bandamaður auðjöfursins eftirlýsta. Í ávarpinu segir hann rússneska hermenn berjast gegn ofurefli í Úkraínu en þeir standi á víglínunni þrátt fyrir það. Surovikin segir að Úkraínumenn geti nýtt sér óreiðu sem þessa og segir að ekki sé of seint fyrir málaliðana að fylgja skipunum Varnarmálaráðuneytisins. Annar herforingi sem sagður er hafa verið vinveittur Wagner hefur birt tekið upp sambærilegt ávarp og Prigozhin, að virðist frá sama stað, en hann kallar einnig eftir því að málaliðarnir láti af ætlunum sínum. Vladimir Alekseyev, another once Wagner-friendly general: "This is a stab in the back of the country and the president. Only the president has the right to appoint the military leadership, and you are trying to attack his authority. This is a state coup. Come to your senses!" pic.twitter.com/Zz7QRqZ1AM— max seddon (@maxseddon) June 23, 2023 Stuðningur við Prigozhin óljós Á opinberri Telegramrás Wagner segir að þeir herforingjar sem skjálfi á beinum og biðji málaliðana um að hætta hafi skrifaði undir eigin dóm. Engin réttarhöld verði haldin og Surovikin eigi enn eftir að svara fyrir það að hörfa frá Kherson í fyrra. Gagnrýni Prigozhin á Varnarmálaráðuneyti Rússlands hefur að miklu leyti snúist um það að Rússar hafi ekki gengið nógu hart fram í Úkraínu. Að rússneski herinn hafi haldið að sér höndum. Á áðurnefndri Telegramrás segir að Úkraínumenn ættu að hafa áhyggjur, því stríðið muni nú hefjast af alvöru. Prigozhin segist hafa þúsundir manna á sínum snærum en enn sem komið er hafa engar sasnnanir fyrir því litið dagins ljós. Hann heldur því fram að málaliðar sínar sæki nú að borginni Rostov, sem er skammt frá landamærum Úkraínu, en engar myndir eða fregnir hafa borist sem sanna það. For those of you new to this media environment. The main sources of info are an army that lies about everything; a warlord who owns an infamous troll factory and lied about it for years; and the Kremlin. And Russia destroyed the media, so there aren't any good independent sources— max seddon (@maxseddon) June 23, 2023 Það að herforingjar hafi gefið út ávörp þar sem þeir biðja málaliða um að fylgja ekki skipunum auðjöfursins, að öryggisgæsla hafi verið aukin í Moskvu og neyðarfréttatími hafi verið haldinn klukkan tvö að nóttu til í Moskvu er þó til marks um að ráðamenn hafi einhverjar áhyggjur. Gagnrýndi ráðuneytið harðlega í dag Fyrr í dag sendi Prigozhin frá sér myndbandsávarp þar sem hann sagði yfirvöld í Rússlandi og þá sérstaklega forsvarsmenn varnarmálaráðuneytisins hafa logið að rússnesku þjóðinni. Hann sagði innrásina ekki hafa verið gerða vegna þeirra ástæðna sem Rússar hafa haldið fram. Hann sagði Rússa hafa farið ránshendi um yfirráðasvæði þeirra á Donbassvæðinu svokallaða, frá því þeir tóku þar völd. Það hefðu ýmsir aðilar gert. Sumir þeirra tilheyrðu ríkisstjórn Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, aðrir leyniþjónustunni og enn aðrir væru auðjöfrar. Auðjöfurinn sagði þessa aðila hafa rænt peningum af íbúum Donbas. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, ræðir hér við Valerí Gerasímóv, formann herforingjaráðs Rússlands (til vinstri), og Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra Rússlands (til hægri).AP/Mikhail Klimentyev Prigozhin sagði í ávarpinu í morgun að rússneskir og úkraínskir hermenn og sjálfboðaliðar hafi skipst á skotum í austurhluta Úkraínu í gegnum árin og það hafi verið mismikið. Hins vegar hafi Varnarmálaráðuneytið logið því að Úkraínumenn hafi verið að gera umfangsmiklar árásir og að undirbúa stærðarinnar árás í samvinnu við Atlantshafsbandalagið. „Hin svokallaða sértæka hernaðaraðgerð hófst því af allt öðrum ástæðum,“ sagði Prigozhin. Hann segir Shoigu hafa viljað auka völd sín með því að koma á stríði og að valdamiklir menn í Rússlandi hafi viljað fara ránshendi um Úkraínu. Prigozhin released today a new interview going over the current state of affairs as well as looking back at the events preceding the start of the "SMO". In this first bit, he explains that the Donbas was plundered by Russians since 2014 and the 2022 war began for reasons very pic.twitter.com/7jOxrPXeX1— Dmitri (@wartranslated) June 23, 2023 Prigozhin og Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra Rússlands, hafa lengi eldað grátt silfur saman. Auðjöfurinn hefur ítrekað sakað ráðherrann um að halda aftur af vopna- og skotfærasendingum til málaliða Wagner og það jafnvel vísvitandi, svo mannfall meðal málaliðanna yrði mikið. Prigozhin hefur sakað Shoigu og rússneska herforingja um vanhæfi, spillingu og lygar. Mörgum af þessum ásökunum hefur Prigozhin varpað fram opinberlega en hann hefur þó forðast það að gagnrýna Pútín sjálfan. Þetta er einnig í fyrsta sinn sem Prigozhin skýtur á réttlætingar yfirvalda í Rússlandi á innrásinni í Úkraínu. Auðjöfurinn hefur líklega ekki gengið eins hart fram áður í gagnrýni sinni á varnarmálaráðuneytið. Forsvarsmenn ráðuneytisins hafa unnið að því að innleiða alla málaliðahópa Rússlands í herinn. Wagner er lang stærsti hópurinn og Prigozhin hafði sagt að ekki kæmi til greina að málaliðar hans myndu heyra beint undir Shoigu. skjáskot úr myndbandi sem Prigozhin birti eftir að hann og málaliðar hans lýstu yfir sigr í Bakhmut.AP Sagði rússneska herforingja ljúga Seinna í umræddu myndbandi sagði Prigozhin að rússneskir herforingjar væru að ljúga um hvað væri að gerast á víglínunum í Úkraínu. Rússar væru á undanhaldi í bæði Saporisjía og í Kherson. „Það sem okkur er sagt er algjör lygi og við munum ekki komast að sannleikanum, fyrr en eins og í Lyman, í Kherson og annars staðar, þar sem þessi drullusokkar komast að því að þeir hafa tapað stóru landsvæði, munu koma saman og lýsa því yfir að þeir hörfuðu til betri varnarlína.“ Sjá einnig: Gengur hægar en vonast var eftir Prigozhin sagði það sama vera að gerast við Bakhmut, þar sem úkraínskir hermenn væru að brjóta sér leið dýpra í varnir Rússa. Fjölmargir rússneskir hermenn væru að falla og særast. In this round of "Prigozhin tells it all", the terrorist says Russian army is retreating in several directions and is washed in blood.He blames Shoigu for faking reports to Putin and predicts more "regroupings" of Russian military. pic.twitter.com/3X7Fj2Ft5X— Anton Gerashchenko (@Gerashchenko_en) June 23, 2023
Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Hernaður Vladimír Pútín Tengdar fréttir Hægri hönd téténska einræðisherrans sagður hafa særst Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, sagði í dag að fregnir af því að rússneskur þingmaður og náinn bandamaður Ramzans Kadyrov, einræðisherra Téténíu, hefði særst í Úkraínu væru áhyggjuefni. Adam Delimkhanov, sem lýst hefur verið sem hægri hönd Kadyrov, var sagður hafa særst í árás Úkraínumanna. 14. júní 2023 14:35 Málaliðar Wagner handsömuðu og börðu rússneskan ofursta Málaliðar Wagner Group lentu á dögunum í skotbardaga við rússneska hermenn nærri Bakhmut. Bardaginn endaði með því að málaliðarnir handsömuðu rússneskan undirofursta, börðu hann og þvinguðu hann til að játa að hafa skipað mönnum sínum að skjóta á málaliðana. 5. júní 2023 12:45 Prigozhin lýsir yfir sigri í Bakhmut, aftur Yevgeny Prigozhin, rússneskur auðjöfur, sem rekur Wagner Group málaliðahópinn, lýsti því í dag yfir að Rússar hefðu náð fullum tökum á bænum Bakhmut í Dónetskhéraði. Rússar hafa reynt að ná bænum frá síðasta sumri en hafa orðið fyrir miklu mannfalli. 20. maí 2023 13:49 Vilja skilgreina Wagner-hópinn sem hryðjuverkasamtök Franska þingið hvetur til þess að Evrópusambandið skilgreini Wagner-málaliðahópinn sem hryðjuverkasamtök. Breskir miðlar segja að bresk stjórnvöld áformi að gera slíkt hið sama. 10. maí 2023 07:14 Málaliðar Wagner lýsa hryllilegum átökum við Bakhmut Ráðamenn á Vesturlöndum segja þúsundir rússneskra fanga, sem ráðnir hafa verið úr fangelsum landsins til að berjast fyrir málaliðahópinn Wagner Group, hafa fallið í átökum í Úkraínu. Föngunum var boðið frelsi í skiptum fyrir sex mánaða þjónustu og hefur fjölda fanga verið sleppt. 17. mars 2023 12:08 Kokkur Pútíns sakar yfirmenn hersins um landráð Rússneski auðjöfurinn Yevgeny Prigozhin, sem gjarnan er kallaður „kokkur Pútíns“, sakaði Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra, og Valery Gerasimov, formann herforingjaráðs Rússlands og yfirherforingja innrásarinnar í Úkraínu, um að reyna að gera út af málaliðahópinn Wagner Group. Prigozhin sagði Shoigu og Gerasimov vera seka um landráð. 21. febrúar 2023 13:02 Tóku eigin málaliða af lífi með sleggju Rússneskir málaliðar Wagner Group birtu um helgina myndband sem sýndi meðlim hópsins tekinn af lífi með sleggju. Rússneski auðjöfurinn sem rekur málaliðahópinn og tengist Vladimír Pútín, forseta Rússlands, nánum böndum, lofaði myndbandið. 14. nóvember 2022 13:10 Mest lesið Appelsínugular viðvaranir taka gildi: Stormur og sums staðar ofsaveður Veður Hætta að taka við og dreifa smábögglum frá Kína Erlent Trump segir Bandaríkjamenn munu taka yfir og „eignast“ Gasa Erlent „Svona endaði baráttan vegna skiltisins umtalaða“ Innlent „Þú ert í grunninn að mynda annað fólk og hvaða heimild hefur þú til þess?“ Innlent Þetta er vitað um árásarmanninn í Örebro Erlent Neita öll sök og einn segist ósakhæfur Innlent Vill endurskoða styrki til Morgunblaðsins eftir umfjöllun um Flokk fólksins Innlent Harkaleg umræða fái kennara til að hugsa sína stöðu Innlent Hafna beiðninni þar sem nafnið gæti orðið nafnbera til ama Innlent Fleiri fréttir Þetta er vitað um árásarmanninn í Örebro Ummæli Trumps harðlega gagnrýnd víða um heim Hætta að taka við og dreifa smábögglum frá Kína Trump segir Bandaríkjamenn munu taka yfir og „eignast“ Gasa Ellefu létust í skotárásinni Segir engan vilja búa á Gasa „Versta fjöldaskotárás sem hefur verið gerð í okkar landi“ Kosningar í Grænlandi framundan Íslenskur skólastjóri meðal þeirra sem flúðu skotárásina Skotárás í sænskum skóla Vilja endurskoða dóm hjúkrunarfræðings vegna barnadauða Stoltenberg með óvænta endurkomu í norskum stjórnmálum Jafngildir það að eyða meðvitaðri gervigreind því að drepa dýr? El Salvador býðst til að taka við hættulegum glæpamönnum Kínverjar grípa til aðgerða mínútum eftir að nýir tollar taka gildi Blátt bann við erlendum fjárframlögum Tollahækkunum gegn Kanada líka frestað Starfsmenn DOGE tóku yfir USAID og læstu starfsmenn úti Hermenn halda að landamærum og Trump frestar tollum Sautján ára stúlka lést í hákarlaárás Hvað gengur Trump til með tollum? Skotmark sprengingar í Moskvu herforingi frá Austur-Úkraínu Einn látinn eftir sprengjutilræði í lúxusblokk í Moskvu Rubio fundaði með Mulino og ítrekaði hótanir Trump Hyggst hækka tolla á Evrópuríkin innan tíðar Mexíkó og Kanada svara tollum Trump með sínum eigin Allir farþegarnir látnir Hamas lætur þrjá gísla lausa Sjúkraflugvél hrapaði í Fíladelfíu Læknir ákærður fyrir að ávísa þungunarrofslyfi Sjá meira
Hægri hönd téténska einræðisherrans sagður hafa særst Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, sagði í dag að fregnir af því að rússneskur þingmaður og náinn bandamaður Ramzans Kadyrov, einræðisherra Téténíu, hefði særst í Úkraínu væru áhyggjuefni. Adam Delimkhanov, sem lýst hefur verið sem hægri hönd Kadyrov, var sagður hafa særst í árás Úkraínumanna. 14. júní 2023 14:35
Málaliðar Wagner handsömuðu og börðu rússneskan ofursta Málaliðar Wagner Group lentu á dögunum í skotbardaga við rússneska hermenn nærri Bakhmut. Bardaginn endaði með því að málaliðarnir handsömuðu rússneskan undirofursta, börðu hann og þvinguðu hann til að játa að hafa skipað mönnum sínum að skjóta á málaliðana. 5. júní 2023 12:45
Prigozhin lýsir yfir sigri í Bakhmut, aftur Yevgeny Prigozhin, rússneskur auðjöfur, sem rekur Wagner Group málaliðahópinn, lýsti því í dag yfir að Rússar hefðu náð fullum tökum á bænum Bakhmut í Dónetskhéraði. Rússar hafa reynt að ná bænum frá síðasta sumri en hafa orðið fyrir miklu mannfalli. 20. maí 2023 13:49
Vilja skilgreina Wagner-hópinn sem hryðjuverkasamtök Franska þingið hvetur til þess að Evrópusambandið skilgreini Wagner-málaliðahópinn sem hryðjuverkasamtök. Breskir miðlar segja að bresk stjórnvöld áformi að gera slíkt hið sama. 10. maí 2023 07:14
Málaliðar Wagner lýsa hryllilegum átökum við Bakhmut Ráðamenn á Vesturlöndum segja þúsundir rússneskra fanga, sem ráðnir hafa verið úr fangelsum landsins til að berjast fyrir málaliðahópinn Wagner Group, hafa fallið í átökum í Úkraínu. Föngunum var boðið frelsi í skiptum fyrir sex mánaða þjónustu og hefur fjölda fanga verið sleppt. 17. mars 2023 12:08
Kokkur Pútíns sakar yfirmenn hersins um landráð Rússneski auðjöfurinn Yevgeny Prigozhin, sem gjarnan er kallaður „kokkur Pútíns“, sakaði Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra, og Valery Gerasimov, formann herforingjaráðs Rússlands og yfirherforingja innrásarinnar í Úkraínu, um að reyna að gera út af málaliðahópinn Wagner Group. Prigozhin sagði Shoigu og Gerasimov vera seka um landráð. 21. febrúar 2023 13:02
Tóku eigin málaliða af lífi með sleggju Rússneskir málaliðar Wagner Group birtu um helgina myndband sem sýndi meðlim hópsins tekinn af lífi með sleggju. Rússneski auðjöfurinn sem rekur málaliðahópinn og tengist Vladimír Pútín, forseta Rússlands, nánum böndum, lofaði myndbandið. 14. nóvember 2022 13:10