Löng leikbönn eftir lætin í leik Bandaríkjanna og Mexíkó Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 24. júní 2023 15:30 Weston McKennie lætur finna fyrir sér. Candice Ward/Getty Images Bandaríkin og Mexíkó áttust við í undanúrslitum Þjóðadeildar Norður- og Mið-Ameríku á dögunum. Þar fór allt í bál og brand undir lok leiks. Endaði dómarinn á að gefa fjögur rauð spjöld. Leikmennirnir sem hlutu spjöldin hafa nú allir fengið löng leikbönn.
Leikur Bandaríkjanna og Mexíkó fór fram 16. júní. Bandaríkin unnu öruggan 3-0 sigur og flugu áfram í úrslit Þjóðadeildar Norður- og Mið-Ameríku. Sigur Bandaríkjanna var hins vegar ekki það fréttnæmasta þar sem það sauð upp úr á meðan leik stóð og fjögur rauð spjöld fóru á loft. Bandaríkin unnu á endanum Kanada í úrslitum nokkru dögum síðar en nú hefur Knattspyrnusamband álfunnar dæmt í málinu. Leikmennirnir fjórir fengu á bilinu tveggja til þriggja leikja bönn. ESPN greindi frá. Hjá Bandaríkjunum fékk Weston McKennie þriggja leikja bann og Sergiño Dest fékk tvo leiki. Þeir munu taka bann sitt út í Gullbikarnum [e. Gold Cup] en Bandaríkin mæta Heimi Hallgrímssyni og lærisveinum hans hjá Jamaíka í fyrsta leik keppninnar í kvöld. Segja má því að leikbönnin hafi ekki áhrif á þá McKennie og Dest þar sem hvorugur leikmaðurinn var að fara taka þátt í Gullbikarnum. Leikbönn Mexíkó hafa meiri áhrif þar sem báðir leikmenn liðsins áttu einnig að taka þátt í Gullbikarnum. Cesar Montes var dæmdur í þriggja leikja bann og Gerardo Arteaga í tveggja leikja bann. Knattspyrnusamband Norður- og Mið-Ameríku hefur gefið út að ef liðin haga sér ekki í framtíðinni gæti það refsað knattspyrnusamböndum landanna enn frekar.
Fótbolti Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Enski boltinn Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Fótbolti Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Fótbolti Hákon Arnar meiddist Fótbolti Bruno settur á bekkinn Enski boltinn Fleiri fréttir Barcelona - Real Madrid | Stórleikur á Spáni Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Sjá meira