Námsmat Ármann Halldórsson skrifar 27. júní 2023 15:01 I could talk about every time that you showed up on timeBut I'd have an empty line 'cause you never didNever paid any mind to my mother or friendsSo I shut 'em all out for you 'cause I was a kid Svo segir í textanum Happier than Ever með Billie Eilish. Óhætt er að segja að aðilinn sem er ávarpaður í þessum texta hafi verið óhæfur kærasti, og væri hægt að segja sem svo að viðkomandi væri fallinn, og í dönsku einkunnakerfi hefði sú sjaldgæfa einkunn -3 líklega verið gefin. Og það er ekkert afstætt eða umdeilanlegt í þessu máli. Námsmat er einn hluti kennarastarfsins sem er mikilvægur og erfiður. Einkunnir eru ólíkar milli landa, og þær byggja á ólíkum hefðum og forsendum. Einkunnakerfum er svo gjarna breytt með pennastrikum ofanfrá (þetta er ekki séríslenskt fyrirbæri, frekar en nokkuð annað), og svo er kennurum eftirlátið að útfæra og túlka. Ég held að það sé hægt að líkja þessu við tungumálið, tákn fá ákveðið vægi og leikendur fá skilning á þeim. Þessi skilningur er svo dýnamískur og ekki alveg algildur endilega, en hins vegar fjarri því að um eitthvað sem er huglægt eða tilviljanakennt. Bókstafskerfið sem hefur nú verið notað í grunnskólum á Íslandi um nokkurt skeið er alveg örugglega hvorki betra né verra en flest önnur slik kerfi. Námsmat í íslenskum grunnskólum, og stór hluti námsmats í framhaldsskólum líka, byggir á því sem er kallað „símat“ – á bakvið táknið sem valið er eru margþættar upplýsingar um vinnulag, getu á prófum, frammistöðu í að gera tilraunir, þátttaka í tímum og svo mætti lengi telja. Á bakvið þetta mat er mikil vinna og er sú vinna unnin af fagmennsku og elju. Kerfið hefur verið í mótun og ég myndi áætla að það sé hægt og rólega að ná því stigi að þeir sem um véla séu að ná nokkuð góðum tökum á því. Að fara út í einhverjar umbyltingar á því tel ég algjört glapræði. Í flestum löndum eru einkunnir af þessu tagi settar við hlið niðurstaðna úr (mis) samræmdum prófum. Þannig eru bandaríkjamenn með GPA (símat) og SAT (samræmd próf) og danir sömuleiðis með „standpunktskarakter“ og svo prófaeinkunnir (gjarna munnlegar og skriflegar). Íslenskar prófaeinkunnir í framhaldsskólum verða að flokkast sem símat (eða kennaramat) þar sem að þau próf eru ekki samræmd og eru líka unnin af kennurum sjálfum af fagmennsku og elju. Það verður að segjast að rík áhersla okkar á símat sé kannski ekki svo galin, því samkvæmt rannsóknum vestanhafs hefur símat mun betra forspárgildi en samræmd próf, eins og segir frá í þessari grein: Vandinn fyrir okkur kennaranna er að við erum báðum megin við borðið og í ákveðnum tilfellum getur þetta leitt til óöryggis. Lausnin á því myndi ég segja að væri að öðru hvoru væru lögð fyrir samræmd próf í ákveðnum greinum, jafnvel samkvæmt ósk skóla (þetta gæti verið á grunn- og framhaldsskólastigi), en kannski fyrst og fremst að kennarar hafi möguleika á að eiga samtal sín á milli og aðgang að sérfræðingum til að skerpa og bæta enn frekar kerfi sem er að ýmsu leyti mjög gott. Í mörg ár hefur skólinn minn, Versló, verið mjög vinsæll. Valið hefur verið inn samkvæmt einkunnum úr grunnskóla. Þetta er ein leið sem virkar ágætlega, en ekki eina leiðin sem er fær. Hugsa mætti sér lágmarkseinkunn og svo væri dregið, kvótakerfi af ýmsu tagi (kyn, hverfi, námsstaða ... ) og svo framvegis. Versta hugmyndin af öllu væri að mínu mati að setja upp inntökupróf. Ég velti svo líka fyrir mér af hverju ekki hefur verið farið út í að bjóða upp á meira nám í anda þess sem boðið er upp á í Versló (bekkjarkerfi, félagslíf, viðskiptabrautir?). Tveir aðrir skólar sem eru líka vinsælir, MA og Kvennó bjóða upp á svipað fyrirkomulag náms sem hefur reynst mjög farsælt og sætir furðu sú undarlega stefna að sameina þessa skóla öðrum skólum með allt annað námsfyrirkomulag. Hins vegar er það þannig að íslenskir framhaldsskólar eru mjög góðir, aðstaða til náms til fyrirmyndar og kennarastéttinn vel menntuð og fagleg, svo nemandi sem kemst ekki inn í Versló eða einhvern annan skóla hefur kost á að fá frábæra menntun í fjölda annarra skóla. Námsmat eins og það tíðkast á Íslandi eru ekki nákvæmnisvísindi, en þau eru heldur ekki einhver hrein huglæg persónuleg afstæð tilraunamennska kennara sem vita ekki hvað þau eru að gera. Og kærastinn sem er vonlaus í samböndum eins og í lagi Eilish gæti hugsanlega alveg verið ágætur í stærðfræði, þó mér finnist það ólíklegt. Það er líka þannig að námsmat er nákvæmlega námsmat, en ekki mat á persónugerð einstaklinga; bara einn hluti af lífinu. Það er mikilvægt að vera gagnrýninn og velta upp ólíkum möguleikum, en það að gengið hafi verið í breytingar á menntakerfum af of miklu offorsi (sem er vissulega rétt að gert hefur verið á Íslandi) þýðir ekki að það eigi að ráðast í nýjar breytingar af offorsi aftur, ég held að við ættum að hlúa að kerfinu okkar eins og það er, bæta og stagla í, en í heildina tekið held ég að við getum gefið kerfinu B eða B+ , nú eða 7 eða 10 upp á danska mátann. Höfundur er kennari við Verzlunarskóla Íslands og áhugamaður um mennta- og skólamál. Um námsmat í íslenskum grunnskólum: https://vefir.mms.is/namsmat/pdf/Leidbeiningabaeklingur.pdf Danska einkunnakerfið: https://www.uvm.dk/uddannelsessystemet/7-trins-skalaen/karakterer-paa-7-trins-skalaen Happier than ever er eftir Billie Eilish, á samnefndri plötu sem kom út 2021. Hér má hlusta á þetta frábæra lag: https://www.youtube.com/watch?v=NSTUVHsb9xw Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Framhaldsskólar Skóla - og menntamál Mest lesið Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Skoðun Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun