Blikar mæta sigursælasta liði Ísrael sem er með þekktan markaskorara í brúnni Aron Guðmundsson skrifar 20. september 2023 11:31 Það verður hart barist á Bloomfield leikvanginum í Tel Aviv á morgun þegar að lærisveinar Robbie Keane í Maccabi Tel Aviv, með Eran Zahavi fremstan í flokki, taka á móti Óskari Hrafni og lærisveinum hans í Breiðabliki í fyrstu umferð riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu Vísir/Samsett mynd Vegferð karlaliðs Breiðabliks í fótbolta í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu hefst í Ísrael, nánar tiltekið Tel Aviv, á fimmtudaginn kemur þegar að Blikar heimsækja sigursælasta lið Ísrael, Maccabi Tel Aviv sem þjálfað er af þekktum fyrrum markaskorara úr ensku úrvalsdeildinni.
Aron Guðmundsson skrifar frá Tel Aviv, Ísrael Maccabi Tel Aviv á sér langa sögu, félagið var upphaflega stofnað árið 1906, þá sem HaRishon Le Zion-Yafo, og er elsta sem og sigursælasta ísraelska fótboltaliðið frá upphafi með fjölda titla á ferilskránni og spilar heimaleiki sína nú á Bloomfield leikvanginum í Tel Aviv, leikvangur sem tekur tæplega 29 þúsund áhorfendur í sæti. Sigurhefðin er eins og fyrr segir mikil en undanfarin tvö tímabil hafa ekki verið jafn gjöful og stuðningsmenn Maccabi Tel Aviv hafa vanist í gegnum áratugina og enginn titill skilað sér í hús. Stemningin á Bloomfield leikvanginum getur verið mögnuðVísir/Getty Maccabi Tel Aviv varð síðast ísraelskur meistari tímabilið 2019-2020 en tímabilið þar á eftir vann liðið ríkisbikarinn, Toto bikarinn og Ofurbikarinn í Ísrael. Á sama tíma gerði liðið vel í Evrópukeppni og komst alla leið í 32-liða úrslit Evrópudeildarinnar en féll þar úr leik gegn úkraínska liðinu Shakhtar Donetsk Ör þjálfaraskipti Ef maður rýnir aðeins í stöðuna undanfarin ár hjá Maccabi Tel Aviv verður manni fljótt ljóst að reynt hefur á þolinmæðina hjá forráðamönnum félagsins, sem hafa oftar en ekki í þeirri stöðu ákveðið að fara í þjálfarabreytingar. Frá árinu 2020, ári eftir að Maccabi Tel Aviv varð síðast ísraelskur meistari, hefur alls sex sinum verið skipt um þjálfara hjá liðinu. Sjö mismunandi þjálfarar á alls tæpum þremur árum er ansi vel í lagt en nú vonast forráðamenn Maccabi Tel Aviv til þess að rétti maðurinn sé í brúnni. Fyrrum goðsögn úr ensku úrvalsdeildinni var ráðinn inn í júní fyrr á þessu ári. Peter Bosz, núverandi þjálfari PSV Eindhoven, Avram Grant fyrrum þjálfari Chelsea og Aitor Karanka eru á meðal þekktra þjálfara sem hafa þjálfað lið Maccabi Tel Aviv Myndir: GettyImagesVísir/Samsett mynd Írinn sem skoraði mörkin Það var seinnipart júnímánaðar á þessu ári sem greint var frá því að markahrókurinn Robbie Keane, fyrrum leikmaður í ensku úrvalsdeildinni með liðum á borð við Tottenham, Liverpool og West Ham United, hefði verið ráðinn þjálfari Maccabi Tel Aviv á þriggja ára samningi. Keane er ekki með mikla reynslu á bakinu sem aðalþjálfari, í raun bara hjá einu félagsliði fyrir komuna til Tel Avív yfir stutt tímabil sem þjálfari indverska liðsins ATK sem hann hafði áður spilað fyrir undir stjórn Teddy Sheringham. Keane hefur farið vel af stað sem þjálfari Maccabi Tel AvivVísir/Getty Þá hefur hann einnig starfað sem aðstoðarþjálfari hjá írska landsliðinu, enska B-deildar liðinu Middlesbrough og þá var hann hluti af þjálfarateymi Sam Allardyce hjá Leeds United undir lok síðasta tímabils í ensku úrvalsdeildinni. Keane hefur farið afar vel af stað í Ísrael sem þjálfari Maccabi Tel Aviv og á liðið enn eftir að tapa leik undir hans stjórn en alls hefur Keane stýrt liðinu í tólf leikjum ef æfingarleikir eru meðtaldir. Sem stendur er Maccabi Tel Aviv á toppi ísraelsku úrvalsdeildarinnar með sjö stig eftir fyrstu þrjá umferðirnar Tvisvar í riðlakeppni Meistaradeildarinnar Maccabi Tel Aviv hefur mun meiri Evrópureynslu heldur en Breiðablik sem fer nú í fyrsta sinn í riðlakeppni í Evrópu. Það sama má í raun segja um öll önnur lið í Sambandsdeildinni þetta árið, nema kannski fyrir utan frændur okkar í KÍ Klaksvík. Í tvígang hefur Maccabi Tel Aviv átt sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu, það var tímabilin 2004/05 og 2015/16 og þá hefur liðið einnig í þrígang átt sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Þar hefur liðið lengst náð í 32-liða úrslit, tímabilið 2020/21. Þá fór Maccabi Tel Aviví umspil fyrir útsláttarkeppni Sambandsdeildarinnar tímabilið 2021/22. Átta ár eru síðan að Maccabi Tel Aviv mætti Chelsea í riðlakeppni Meistaradeildar EvrópuVísir/EPA Maccabi Tel Aviv fór í gegnum þrjár umferðir í undankeppni Sambandsdeildarinnar fyrr í sumar og bar þar sigur úr býtum í einvígum sínum gegn Petrocub, AEK og nú síðast Celje. Með ref fram á við sem hatar ekki að skora mörk Einn af þeim leikmönnum Maccabi Tel Aviv sem leikmenn Breiðabliks verða að hafa góðar gætur á er markahrókurinn reyndi, Eran Zahavi fyrirliði Maccabi Tel Aviv. Þrátt fyrir að vera orðinn 36 ára gamall hefur Zahavi sýnt það undanfarið að hann býr yfir einstaklingsgæðum sem geta gert út um leiki. Nú þegar á yfirstandandi tímabili er Zahavi búinn að koma að átta mörkum í átta leikjum, skora sjö og leggja upp eitt. Zahavi í leik með Maccabi Tel Aviv á dögunumMynd: Maccabi Tel Aviv Þessi þaulreyndi leikmaður er markahæsti leikmaður ísraelska landsliðsins frá upphafi. Zahavi, sem hefur lagt landsliðsskóna á hilluna, spilaði alls 70 A-landsleiki og skoraði 33 mörk fyrir landslið Ísrael. Zahavi hefur í gegnum sinn feril, með liðum á borð við Palermo, PSV Eindhoven, Guangzhou City sem og Hapoel- og Maccabi Tel Aviv, komist í vana með það að raða inn mörkum. 555 leikir á atvinnumannastigi, 329 mörk og 92 stoðsendingar er tölfræðin sem býr að baki spilamennsku Zahavi. Á síðasta tímabili fór hann fyrir liði Maccabi Tel Aviv, skoraði 26 mörk í 40 leikjum og kom alls að 29 mörkum Leikur Maccabi Tel Aviv og Breiðabliks hefst klukkan sjö annað kvöld og verður sýndur í beinni útsendingu á Vodafone Sport. Við verðum á staðnum og færum ykkur allt það helsta frá Tel Aviv.
Breiðablik Sambandsdeild Evrópu Ísrael Íslenski boltinn Fótbolti Mest lesið „Held að hann sé hundfúll að vera ekki í liðinu“ Handbolti Ronaldo missti af leik í Meistaradeildinni til að sleppa við svipuhögg Fótbolti Segir það þjakandi og einmanalegt að vera hjá Man United Enski boltinn Barn beit dómarann á mjög viðkvæman stað og leik var aflýst Fótbolti Breyttist í Messi þegar það vantaði Messi Fótbolti „Urðum okkur sjálfum til skammar“ Körfubolti Nottingham Forest vann aftur eftir vítakeppni Enski boltinn Dagskráin: Madridarslagur í Meistaradeildinni og Hákon í sviðsljósinu Sport Man. United má ekki nota unga framherjann sinn í Evrópudeildinni Enski boltinn Serena Williams orðin eigandi fyrsta kanadíska WNBA-liðsins Körfubolti Fleiri fréttir Ronaldo missti af leik í Meistaradeildinni til að sleppa við svipuhögg Segir það þjakandi og einmanalegt að vera hjá Man United Barn beit dómarann á mjög viðkvæman stað og leik var aflýst Breyttist í Messi þegar það vantaði Messi Nottingham Forest vann aftur eftir vítakeppni Juventus nálgast titilbaráttuna óðfluga Aflýstu leik í spænsku deildinni vegna flóðahættu Svo nálægt fyrsta sigrinum síðan í ágúst Vinícius Júnior vill nýjan Real Madrid samning strax Fanney Inga og félagar unnu stórsigur í sænska bikarnum Réð son sinn sem forseta félagsins Björn Daníel tryggði FH jafntefli á móti norska úrvalsdeildarfélaginu Man. United má ekki nota unga framherjann sinn í Evrópudeildinni Thomsen mættur aftur í íslenska boltann Amorim: „Ég er ekki barnalegur“ Kvartar undan boltanum eftir tuttugu skot framhjá Draumaprinsinn Benoný: „Kannski sá besti hérna í að klára færin“ Gylfi með augun á komandi landsleikjum: „Við áttum fínasta spjall“ Bjóða skaðabætur vegna þess að hitt liðið var án Messi Ancelotti segir Real Madríd þurfa að vakna fyrir Meistaradeildina Stefán Teitur og félagar mæta Aston Villa Hamrarnir hentu frá sér tveggja marka forystu gegn Arsenal Kristian Nökkvi með mark og stoðsendingu Chelsea tapaði óvænt stigum á meðan Hlín tapaði fyrir Rauðu djöflunum Rauðu djöflarnir verja ekki bikarinn Kristianstad byrjar vel í bikarnum Orri Steinn og félagar steinlágu í Katalóníu Pedersen með tvö og Valsmenn í undanúrslit Draumainnkoma Dags Welbeck skaut Brighton áfram Sjá meira