Neytendur

Breytingarnar á gjald­skyldu og gjald­skrá taka gildi um helgina

Atli Ísleifsson skrifar
Gjaldskyldutími á gjaldsvæðum P1 og P2 verður lengdur til klukkan 21, bæði á virkum dögum og á laugardögum.
Gjaldskyldutími á gjaldsvæðum P1 og P2 verður lengdur til klukkan 21, bæði á virkum dögum og á laugardögum. Vísir/Vilhelm

Breytingar á gjaldskyldu og gjaldskrá bílastæða Reykjavíkurborgar taka gildi núna um mánaðamótin.

Gjaldskyldutími á gjaldsvæðum P1 og P2 verður lengdur til klukkan 21 á virkum dögum og á laugardögum, gjaldskylda verður tekin upp á gjaldsvæðum P1 og P2 milli klukkan 10 og 21 á sunnudögum og þá verður gjaldskyldutími á gjaldsvæði 3 milli klukkan 9 og 18 á virkum dögum. 

Þá hækkar gjald á gjaldsvæði P1 í 600 krónur á klukkustund, en gjaldið var áður 430 krónur á klukkustund og verður þar nú einungis heimilt að leggja í þrjár klukkustundir í senn.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að unnið verði að því í dag og á morgun að breyta tæplega þrjú hundruð skiltum í borginni. Verðið sjálft taki þó ekki breytingum fyrr en sunnudaginn 1. október hvort sem greitt sé í gegnum mæla, öpp eða vef.

Yfirlit yfir breytingarnar

  • Gjaldskyldutími á gjaldsvæðum P1 og P2 verður lengdur til klukkan 21, bæði á virkum dögum og á laugardögum.
  • Að auki verður tekin upp gjaldskylda á gjaldsvæðum P1 og P2 á milli klukkan 10 og 21 á sunnudögum.
  • Gjaldskyldutími á gjaldsvæði 3 verður 9-18 virka daga.

Á vef borgarinnar segir að handhafar stæðiskorts hreyfihamlaðra leggi gjaldfrjálst í bílastæði hvort sem þau séu merkt hreyfihömluðum eða ekki og gildi hámarkstími á gjaldsvæði P1 ekki fyrir þá.

Styður við þjónustuaðila, gesti og íbúa

Gjaldskylda á bílastæðum Reykjavíkur hefur þann tilgang að framfylgja markmiðum Aðalskipulags Reykjavíkur og stuðla að fjölbreyttri notkun bílastæða í borgarlandi með því að stýra eftirspurn eftir bílastæðum og styðja þannig við þjónustuaðila, gesti og íbúa.

Borgarráð samþykkti þessa tilllögu að breytingum á gjaldskyldu fyrir bílastæði Reykjavíkurborgar í sumar og var greint frá fyrirhuguðum breytingum í ítarlegri frétt um málið í lok júní,“ segir í tilkynningunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×