Hvernig fylgist ég með hlutabréfamarkaðnum? Baldur Thorlacius skrifar 3. október 2023 13:30 Almenningshlutabréfamarkaðir byggja á gagnsæi. Fjárfestar hafa aðgang að aragrúa upplýsinga um skráð félög, hlutabréfaverð, viðskipti, hagtölur og margt fleira. Skráðu félögin þurfa samkvæmt lögum og reglum að birta alls konar upplýsingar opinberlega. Tilgangurinn með þessu regluverki er góður: Að tryggja aðgengi fólks að mikilvægum upplýsingum svo það geti tekið upplýsta ákvörðun um kaup eða sölu á hlutabréfum. En tilkynningar um reglubundin kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlanir, viðskipti aðila sem eru fjárhagslega tengdir fruminnherjum eða breytingar á verulegum hlut atkvæðisréttar hljóma ekki beinlínis hvetjandi fyrir venjulegt fólk. Þetta eru allt dæmi um upplýsingar sem skráð félög birta reglulega. Lítið gagn af gagnsæi ef enginn skilur neitt. Mörg félög hafa tekið á það ráð að efla upplýsingagjöf á öðrum sviðum, til að styðja við þá lögbundnu upplýsingagjöf og ná til breiðari hóps. Sem dæmi um slíkt má nefna aðgengilegt efni á samfélagsmiðlum, vídeó upptökur, hlaðvörp og opna fjárfestafundi. Allt saman til fyrirmyndar, ef vel er að því staðið, enda mikilvægt að fólk skilji í hvernig fyrirtæki það er að fjárfesta. Fjölmiðlar eru þarna einnig í lykilhlutverki, þurfa að geta greint og miðlað til fólks á mannamáli. Aðilar eins og Fortuna Invest hafa einnig gripið þann bolta og haldið úti öflugri fræðslu á samfélagsmiðlum. Hvar? En það er samt gott að getað áttað sig á þessu helsta sem skráð félög þurfa að birta opinberlega – og þá er fyrsta skrefið að vita hvar hægt er að nálgast upplýsingarnar. Öll félög þurfa að birta tilteknar upplýsingar á sinni eigin vefsíðu (yfirleitt á undirsíðu fyrir fjárfesta). Þær birtast einnig á vefsíðu Kauphallarinnar, auk þess að upplýsingaveitur (eins og t.d. Keldan) gera þær aðgengilegar. Upphafið: Lýsingar og skráningarskjöl Næsta skref er að átta sig á innihaldinu. Þegar félög koma ný á markað byrja þau á að að hreinsa borðið, birta allt sem skiptir máli í skjali sem heitir lýsing (á Aðalmarkaði) eða skráningarskjal (á First North vaxtarmarkaðnum). Það er reyndar ekki fyrir hvern sem er að lesa þessi skjöl í heild sinni, þar sem þau geta verið mjög löng, en oft er líka samantekt sem hjálpar fólki að skilja kjarna málsins. Reikningar og aðalfundir Árs- og árshlutareikningar eru svo fastir punktar í upplýsingagjöfinni, en þeir innihalda fjárhagsupplýsingar og eru birtir ýmist ársfjórðungslega eða hálfsárslega. Félögin eiga að draga fram það helsta úr reikningunum í tilkynningu og nota gjarnan tækifærið til að upplýsa um ýmis önnur mál í leiðinni. Þetta eru meira og minna staðlaðar upplýsingar sem hægt er að bera saman á milli tímabila, til að sjá hvernig gengur. Auk þess halda þau flest kynningarfundi, ýmist á staðnum og/eða í streymi, sem allir geta sótt. Ég veit fyrir víst að þau fagna því mjög þegar almennir fjárfestar mæta á slíka fundi. Aðrir slíkir fastir punktar eru tilkynningar um aðalfundi, en á þeim er m.a. kosið í stjórn sem og tekin ákvörðun um arðgreiðslur til hluthafa. Hvort tveggja mjög mikilvægt. Við kaup á hlutabréfum er fólk orðið að meðeigendum í viðkomandi félagi og á þá rétt á að taka þátt og kjósa á hluthafafundum. Það getur verið mikilvægt fyrir fólk að nýta þann rétt sem og góð leið til að kynnast félögunum betur. Innherjaupplýsingar Þess á milli þurfa félög að halda fjárfestum upplýstum um meiriháttar atburði, ákvarðanir eða annað sem getur skipt máli við ákvörðun um kaup eða sölu á hlutabréfunum. Það eru svokallaðar innherjaupplýsingar. Það getur því verið mjög mikilvægt að fylgjast með slíkum tilkynningum. Þetta geta sem dæmi verið tilkynningar um stóra samninga, samruna, aukna sölu eða annað sem getur haft mikil áhrif á félögin. Innherjatilkynningar Tilkynningar um viðskipti fruminnherja (stjórnenda félagsins), eða þeim sem eru fjárhagslega tengdir þeim, eru oft kallaðar innherjatilkynningar. Það getur verið gagnlegt fyrir fjárfesta að vita af því þegar stjórnendur, sem þekkja félagið best, kaupa eða selja hlutabréf. Hvort þeir telji sjálfir vera kauptækifæri eða ekki. Flagganir Flagganir gegna svipuðum tilgangi, en snúa ekki að stjórnendum heldur stórum hluthöfum sem þurfa að „flagga“ því þegar þeir fara yfir eða undir ákveðin mörk atkvæðisréttar. Þær hjálpa fjárfestum því að skilja eignarhalds félagsins og hvernig það er að þróast. Endurkaupaáætlanir Svo eru það blessuðu endurkaupaáætlanirnar. Endurkaup fela í sér að félag kaupir til baka eigin hlutabréf á markaði. Þau hafa ekki bein áhrif á reksturinn, en með kaupunum fækkar útistandandi hlutabréfum – sem þýðir að hluthafar sem ekki selja eignast í reynd hærra hlutfall af félaginu, án þess að gera neitt. Endurkaup og arðgreiðslur eru tvær helstu leiðirnar fyrir félög til að skila verðmætum aftur til hluthafanna. Endurkaupaáætlanir skapa ákveðinn ramma fyrir framkvæmd slíkra endurkaupa. Það getur því verið gott að vita af því ef endurkaupaáætlun er í gildi, en einstaka tilkynningar um framkvæmd slíkrar áætlunar innihalda yfirleitt engar tímamóta upplýsingar. Hér hefur alls ekki verið farið með tæmandi hætti yfir tilkynningar til fjárfesta en vonandi hjálpar þetta einhverjum að fylgjast betur með hlutabréfamarkaðnum. Nú stendur yfir alþjóðleg fjármálalæsisvika og því vel við hæfi að fara yfir þessi mál. Ég er samt mjög meðvitaður um að ekki allir nenna að lesa svona greinar, sérstaklega þegar þær eru yfir 800 orð! Við hjá Nasdaq ætlum því að blása til vef-fræðslufundar á næstunni þar sem við munum ræða þetta á mannamáli, auk þess sem við munum halda áfram að leita nýrra leiða til að hjálpa fólki að skilja hlutabréfamarkaðinn. Fundurinn verður auglýstur á Facebook síðu Nasdaq Iceland. Höfundur er framkvæmdastjóri sölu og viðskiptatengsla, Nasdaq Iceland. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Baldur Thorlacius Kauphöllin Fjármál heimilisins Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar