Dagbjört ákærð fyrir manndráp í Bátavogi Árni Sæberg skrifar 15. desember 2023 16:44 Karlmaðurinn fannst látinn í fjölbýlishúsi við Bátavog 1-7 laugardagskvöldið 23. september. Vísir/Vilhelm Héraðssaksóknari gaf í dag út ákæru á hendur Dagbjörtu Rúnarsdóttur, 42 ára gamalli konu, fyrir manndráp í Bátavogi í Reykjavík þann 23. september síðastliðinn.
Þetta staðfestir Arnþrúður Þórarinsdóttir, sem sækir málið fyrir hönd ákæruvaldsins, í samtali við Vísi. DV greindi fyrst frá ákærunni. Arnþrúður segir að ákæran hafi ekki enn verið birt Dagbjörtu og fyrirkall ekki verið gefið út. Því liggur ekki annað fyrir í málinu en að Dagbjört sæti ákæru fyrir manndráp samkvæmt 211. grein almennra hegningarlaga. Hefur verið í gæsluvarðhaldi í tæpa þrjá mánuði Það var mánudagsmorguninn 25. september sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendi frá sér tilkynningu um að 58 ára karlmaður hefði fundist meðvitundarlaus í félagsíbúð við Bátavog í Reykjavík laugardagskvöldið 23. september. Kona um fertugt hefði verið úrskurðuð í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna eftir að hafa verið handtekin í íbúð í austurborginni á laugardagskvöld. Tilkynning hafði borist lögreglu sama kvöld og þegar lögregluþjónar mættu á staðinn hófu þeir þegar endurlífgunartilraunir. Hann var í framhaldinu fluttur á Landspítalann en úrskurðaður látinn við komuna. Dagbjört Rúnarsdóttir, sem hefur ekki verið nafngreind fyrr en nú, hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan.
Mannslát til rannsóknar í Bátavogi Dómsmál Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Erlent Reyndu að ræna hraðbanka Innlent Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Innlent Rússar vara við því að hrapað sé að ályktunum áður en rannsókn lýkur Erlent Komu hesti til bjargar úr gjótu Innlent Hættulega heitir dagar fleiri og mannskæðari en áður Erlent Holtavörðuheiði enn lokuð Innlent Spáir stillu og miklu svifryki um áramótin Veður Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Innlent Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Erlent Fleiri fréttir Holtavörðuheiði enn lokuð Reyndu að ræna hraðbanka Komu hesti til bjargar úr gjótu Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Áfram töluverð snjóflóðahætta á Vestfjörðum Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Snjóflóðahætta á Vestfjörðum og frumsýning Yermu Holtavörðuheiðinni lokað aftur í kvöld Sex voru fluttir með þyrlunni Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Telja skemmdir í Bláfjöllum minniháttar Súðavíkurhlíð opin til 16 Alvarlegt bílslys í Öræfum Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Snjóflóð féllu á Súðavíkurhlíð Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Snjóflóð féll á Súðavíkurhlíð og rólegt í Kvennaathvarfinu Skógaskóli verður hótel Grímuskylda á Landspítalanum Búið að opna Hellisheiði og Holtavörðuheiði Strætó rann á bíl og ruslaskýli Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Sjá meira