Fjallað var um afkomuna í fréttum Stöðvar 2 en í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að fjárhagsstaða þess hafi aldrei verið betri. Eiginfjárhlutfall sé komið yfir 65 prósent. Skuldahlutfall hafi lækkað verulega og sé núna svipað eða betra en gengur og gerist hjá öðrum orkufyrirtækjum á Norðurlöndunum.

„Á meðan rekstur orkufyrirtækis þjóðarinnar gengur betur en nokkru sinni fyrr eru blikur á lofti í raforkumálum Íslendinga. Framkvæmdir við orkuöflun hafa tafist af ýmsum orsökum og líkur eru á því að raforkuframleiðsla nái ekki að anna eftirspurn vegna orkuskipta og almenns vaxtar samfélagsins fyrr en í fyrsta lagi á árunum 2027-28,“ er haft eftir Herði Arnarsyni forstjóra.
Þar er lýst þeim vonum að hægt verði að hefja framkvæmdir við Hvammsvirkjun og Búrfellslund á árinu. Auk þess sé stefnt að því að bjóða út stækkun Þeistareykjavirkjunar og Sigölduvirkjunar síðar á árinu.
„Rekstrarárin 2022-23 hafa verið einstök í sögu fyrirtækisins, einkum vegna endursamninga síðustu ára, hagstæðra aðstæðna á mörkuðum og raforkusamnings við stórnotanda sem tengdur var verðþróun á Nordpool og reyndist Landsvirkjun mjög hagstæður en er nú runninn út.
Áfram eru horfur á góðri afkomu Landsvirkjunar á árinu 2024, en ekki eru líkur á því að afkoman verði jafn góð og þessi tvö ár fyrr en að endursamningum við Alcoa lýkur og nýjar aflstöðvar hefja rekstur,“ segir Hörður.