Í dag er hátíð Einar Bárðarson skrifar 12. mars 2024 08:32 Íslensku tónlistarverðlaunin verða haldin hátíðleg í Hörpu í kvöld og verða sýnd í beinni útsendingu í Sjónvarpinu. Íslensku tónlistarverðlaunin eru uppskeruhátíð íslenskrar tónlistar, þar sem það sem vel er gert er hafið til vegs og virðingar. Íslensku tónlistarverðlaunin eru haldin að upplagi Samtóns, regnhlífarsamtaka aðildarfélaganna í íslenskri tónlist. Sögu íslenskra tónlistarverðlauna má rekja aftur til ársins 1960 en frá árinu 1993 má segja að þau hafi verið haldin í núverandi mynd. Á alþjóðlegum degi kvenna í nýliðinni viku var mér hugsað til félags kvenna í tónlist, Kítón, sem var stofnað árið 2012. Því þegar ég horfi yfir hið risavaxna svið íslenskrar tónlistar eru það konur sem bera hróður okkar hvað hæst þessi misseri og í baklandi tónlistarfólksins okkar er að finna gríðarlega öflugar konur sem færa okkur stórkostleg verkefni aftur og aftur. Það fer ekki mikið fyrir þeim en Alma Guðmundsdóttir starfar sem lagahöfundur í Los Angeles og Ásdís María Viðarsdóttir í Berlín. Lögin þeirra hafa verið spiluð tugum milljóna með listamönnum útúm allan heim. Þær eru báðar brautryðjendur og magnaðar fyrirmyndir. Hér heima er eitthvað í gangi sem ég kalla stundum hið íslenska textasumar en textagerð ungu tónlistarkvennanna og lagahöfundanna Bríetar, Klöru Elías, Unu Torfadóttur, Elínar Hall og Árnýjar Margrétar á það sameiginlegt að vera einstaklega heiðarleg, hispurslaus en um leið áreynslulaus og falleg. Ég er hugfanginn af þessu sumri og hlakka til að heyra meira. Þá voru kvenhöfundar í meirihluta í Söngvakeppni Sjónvarpsins í ár, vel gert! Tónlistin er ekki bara það sem fer fram uppi á sviði. Ein stærsta og öflugasta umboðsskrifstofa landsins, Iceland Sync, var stofnuð af konum og er rekin af konum sem hlutu viðurkenningu Samtóns á Degi Íslenskrar tónlistar fyrir framlag þeirra til tónlistarlífsins. Hildur Guðnadóttir er af nýrri kynslóð íslenskra tónskálda en hillur hennar svigna nú af æðstu viðurkenningum sem afhentar eru fyrir árangur á sviði tónlistar og það sama má segja um tónskáldið Önnu Þorvaldsdóttur. Sú sem hæst fer um þessar mundir er Laufey Lín Jónsdóttir sem hlaut Grammyverðlaun í haust og hélt um helgina þrenna tónleika í Hörpu en hefði örugglega getað haldið þrjátíu. Einstakir tónlistarhæfileikar hennar hafa verið til umræðu það oft að það væri að æra óstöðugan að bæta þar í púkkið. Nándin í flutningnum hennar er svo mögnuð að þó svo að hún syngi fyrir fullan sal af fólki líður manni eins og maður sé á einkatónleikum. Ekki hægt annað en að verða “bewitched”. Þannig er hún að töfra alla heimsbyggðina. Forstjóri Hörpu, tónlistarhússins okkar er kona, framkvæmdastjóri nýstofnaðrar Tónlistarmiðstöðvar er kona, framkvæmdastjóri STEFs er kona, framkvæmdastjóri og aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru konur, ráðuneytisstjóri menningar- og viðskiptaráðuneytisins er kona, og einnig skrifstofustjóri menningar í því ráðuneyti. Þá verður að minnast á þátt Lilju Daggar Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra sem hefur í sinni ráðherratíð sett tónlistina kyrfilega á oddinn. Í hennar tíð hefur verið lokið við smíði tónlistarstefnu og stofnun nýrrar Tónlistarmiðstöðvar. Fyrir þessa elju og þrautseigju og fyrir að beita sér fyrir stofnun Tónlistarmiðstöðvar hlaut Lilja nýsköpunarverðlaun á Degi íslenskrar tónlistar 2023. Hún var vel að þeim verðlaunum komin. Nú ætla ég ekki Kítón að hafa valdið öllu þessu og auðvitað er þetta alls ekki tæmandi upptalning árangurs kvenna síðasta áratugar eða svo en við erum að horfa á gjörbreytta stöðu í dag en árið 2012. Síðan kallar það á aðra og enn umfangsmeiri grein en þessa að ræða tvær ljósmæður kvenna í íslenskri tónlist þær Björk Guðmundsdóttur og Ragnhildi Gísladóttur. Ég á dóttur sem um þessar mundir er að stíga sín fyrstu skref á stóra sviðinu. Þakka ykkur öllum fyrir að vera stórkostlegar fyrirmyndir og sýna henni að “girls run the world” eins og Beyonce benti okkur svo skemmtilega á. Ég óska tónlistarfólki öllu til hamingju með daginn, tilnefndu tónlistarfólki óska ég góðs gengis í kvöld og við alla aðra segi ég góða skemmtun. Höfundur er stjórnarformaður Tónlistarmiðstöðvar Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tónlist Íslensku tónlistarverðlaunin Einar Bárðarson Mest lesið Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Sjá meira