Erlent

Fimm­tíu og einn látinn eftir sprengingu í námu

Samúel Karl Ólason skrifar
Gífurlegt magn kola er grafið upp úr jörðinni í Khorasanhéraði í Íran.
Gífurlegt magn kola er grafið upp úr jörðinni í Khorasanhéraði í Íran. AP/Íranski rauði hálfmáninn

Að minnsta kosti 51 er látinn og tuttugu eru særðir eftir að stór sprenging varð í kolanámu í Íran í gærkvöldi. Slysið varð í Suður-Khorasanhéraði í Íran, þar sem bróðurpartur kola er grafinn upp í landinu.

Ríkismiðlar í Íran segja sprenginguna hafa orðið vegna metans sem lak um göngin, samkvæmt frétt CNN. Þá munu 69 námuverkamenn hafa verið ofan í námunni, á því svæði þar sem sprengingin varð.

Í frétt BBC segir að óljóst sé hvort menn séu fastir ofan í námunni. Sagt var frá því í sjónvarpi í Íran í morgun að 24 væri saknað.

Mikil gassöfnun í námunni hefur gert björgunarstarf erfitt, samkvæmt saksóknara á svæðinu. Hann sagði einnig að slysið yrði rannsakað og að ef í ljós kæmi að vanrækslu væri um að kenna yrði þeim sem bæri ábyrgð á því refsað.

Núna væri áherslan hins vegar á finna fólk í námunni og hlúa að þeim særðu.

Tveir menn dóu árið 2021 þegar hluti sömu námu hrundi. Þá dóu 43 í sprengingu í kolanámu annarsstaðar í Íran árið 2017.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×