Hvort sem þú skellir þér á skíði eða ekki jafnast fátt á við að sötra eitthvað heitt á köldum vetrardegi. Kakó með rjóma eða heit súpa með ristuðum hnetum, vetrarborðbúnaðurinn frá Moomin Arabia bragðbætir kaffi-og matartímann svo um munar. Vetrarlínan í ár inniheldur bakka, servíettur og fleira fallegt í stíl við hinn sígilda borðbúnað.

Sjáðu magnað skíðastökk Múmínsnáða
Vetrarlínan heldur áfram með kunnuglegt vetraríþróttaþema síðustu tveggja ára, nú með skíðastökki Múmínsnáða.
Myndskreytingin sækir innblásur í myndasögu Tove Jansson frá árinu 1955, Vetrarleikarnir, þar sem íbúar Múmíndals slá til allsherjar Vetrarleika. Í tilraun til þess að ganga í augun á Snorkstelpunni, tekur Múmínsnáði þátt í keppni í skíðastökki. Eftir að hún áttar sig á því hve hættulegt slíkt getur verið, reynir Snorkstelpan að stöðva Múmínsnáða en það er um seinan. Á myndskreytingunni sést hvernig Múmínsnáði er þegar í lausu lofti.

Snorkstelpan, Mía litla og Skuggi ásamt hópi íbúa Múmíndals fylgjast kvíðin með. Jafnvel þótt stökkið endi með brotlendingu á grenitrjátoppunum, er það tilkomumikil sjón!
Vetrarlínan verður enn stærri með mjúku líni fyrir bað- og svefnherbergi

Vetrarlína Moomin Arabia hefur hingað til verið takmörkuð við borðbúnað en í ár má finna í henni textíl fyrir bæði bað- og svefnherbergi í sama ævintýralega vetrarþema. Línan inniheldur gesta- og baðhandklæði ásamt sængurfatnaði í sömu bláu litum og borðbúnaðurinn. Textílvörurnar eru gerðar úr 100% lífrænni bómull.

Vetrarlína ársins 2024 er væntanleg í íslenskar verslanir föstudaginn 11. október en vörurnar verða m.a. fáanlegar á ibudin.is eða á helstu sölustöðum Moomin á Íslandi.