Kærleikur í kaós Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir skrifar 14. nóvember 2024 21:19 Nýlega lagði ég fram þingsályktunartillögu um stóraukinn stuðning og fræðslu fyrir foreldra barna sem greinst hafa með ADHD. Markmið tillögunnar er að tryggja foreldrum þessa hóps gjaldfrjálsan aðgang að námskeiðum, hagnýtum verkfærum og leiðsögn sem eflir sjálfstraust þeirra og öryggi í uppeldinu. Við vitum að ADHD getur haft áhrif á mörgum sviðum lífsins, hvort sem er í námi, samskiptum eða daglegum athöfnum. Um eitt af hverjum tíu börnum tilheyrir þessum hópi, sem þýðir að í venjulegum kennslustofum eru að minnsta kosti 2–3 börn með ADHD sem þurfa stuðning og skilning til að blómstra. Börn með ADHD búa yfir einstökum hæfileikum – ofurkrafti sem má virkja með réttri umgjörð og stuðningi. Það er samfélagslegt hlutverk okkar að skapa þessum öflugu einstaklingum aðstæður sem gera þeim kleift þeim að blómstra, þannig að orka þeirra og sköpunargáfa fái notið sín. Stuðningur og námskeið fyrir foreldra Að ala upp barn með ADHD getur verið frábrugðið hefðbundnu uppeldi. Foreldrar þurfa oft að mæta nýjum áskorunum og aðlagast breytilegum þörfum barnsins. Þau sem hafa leitað sér fræðslu eru þó mörg sammála því að vilja enn meiri aðstoð og tæki til að styðja börnin sín í námi og félagslífi. Það er því gleðilegt að námskeið fyrir foreldra barna með ADHD hafa orðið algengari á síðustu árum, og reynsla sýnir að þau eru gagnleg. Slík námskeið veita foreldrum innsýn og þekkingu um áskoranir og styrkleika barna með ADHD, jafnt sem þau hafa jákvæð áhrif á nám og félagsfærni barna. Slík námskeið ættu því að vera aðgengileg öllum foreldrum, óháð efnahag. Loksins! Í síðustu viku bárust jákvæðar fréttir af nýju foreldranámskeiði ADHD samtakanna, „Kærleikur í kaos,“ sem heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson, opnaði formlega. Námskeiðið er nú öllum aðgengilegt á vef ADHD samtakanna. „Kærleikur í kaos“ er netnámskeið í fimm gagnvirkum hlutum, sem foreldrar geta nýtt á sínum hraða, hvar og hvenær sem hentar. Byggt á danska námskeiðinu KIK – Nu!, sem hefur verið þýtt og aðlagað á íslensku. Umrætt námskeið hefur hlotið alþjóðlegar viðurkenningar fyrir árangur. Rannsóknir sýna að námskeiðið eflir uppeldisfærni foreldra, dregur úr árekstrum og styrkir samband foreldra og barns. Ég hvet áhugasöm til að kynna sér námskeiðið á vefsíðu ADHD samtakanna – Kærleikur í kaos. Ég vil þakka ADHD samtökunum innilega fyrir öflugt starf í þágu barna og ungmenna og heilbrigðisráðherra fyrir stuðning sinn við verkefnið. Ég er sannfærð um að þessi fjárfesting muni stuðla að betri lífsgæðum fyrir börn og fjölskyldur með ADHD og auka enn framlag þessa öfluga hóps til samfélagsins okkar. Höfundur er þingmaður og frambjóðandi í 2. sæti Framsóknar í Reykjavík Norður Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið „Öllum er fkn drull, haltu kjafti“ Bríet Bragadóttir,Hjördís Lára D. Ingólfsdóttir,Kristjana Anna Dagnýjardóttir Skoðun Kærleikur í kaós Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir Skoðun Betri er auðmjúkur syndari en drambsamur dýrlingur Stefanía Arnardóttir Skoðun Þúsundir á vergangi - Upplýsa verður ranglætið Þorsteinn Sæmundsson Skoðun Stúlkur eiga undir högg að sækja í nauðgunarmálum Jörgen Ingimar Hansson Skoðun 27-faldur hagnaður!? Ásthildur Lóa Þórsdóttir Skoðun Hæstvirtur dómsmálaráðherra, við ætlumst til meira af þér Matthías Kormáksson Skoðun Er sjávarútvegurinn bara aukaleikari? Kristófer Máni Sigursveinsson Skoðun Hvernig getum við gert Ísland að eftirsóttum stað fyrir barnafjölskyldur? Birgitta Sigurðardóttir Skoðun Dæmisaga úr raunveruleikanum Sigurður F. Sigurðarson Skoðun Skoðun Skoðun Kærleikur í kaós Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Uppbyggileg réttvísi (e. Restorative Justice) Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Þúsundir á vergangi - Upplýsa verður ranglætið Þorsteinn Sæmundsson skrifar Skoðun Flokkur fólksins á meðal fólks Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar Skoðun Er sjávarútvegurinn bara aukaleikari? Kristófer Máni Sigursveinsson skrifar Skoðun Hæstvirtur dómsmálaráðherra, við ætlumst til meira af þér Matthías Kormáksson skrifar Skoðun Kennarar – sanngjörn laun? Ólöf P. Úlfarsdóttir skrifar Skoðun Sjálfsvígstíðni - Gerum betur Þórarinn Guðni Helgason skrifar Skoðun Kæru kennarar Óskar Guðmundsson skrifar Skoðun Sjálfbærni á dagskrá, takk! Hafdís Hanna Ægisdóttir,Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Kynslóðasáttmálann má ekki rjúfa Finnbjörn A. Hermannsson,Eyjólfur Árni Rafnsson skrifar Skoðun „Öllum er fkn drull, haltu kjafti“ Bríet Bragadóttir,Hjördís Lára D. Ingólfsdóttir,Kristjana Anna Dagnýjardóttir skrifar Skoðun Fyrirhyggjan tryggir lágt og stöðugt verð Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Gerum betur – breytum þessu Arnar Páll Guðmundsson skrifar Skoðun Það eiga allir séns Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Andleg þrautseigja: Að vaxa í gegnum áskoranir Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Bleiki fíllinn í herberginu Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Ungt fólk, hvatningar til að nýta kosningarétt sinn og að mynda sér eigin skoðun Elmar Ægir Eysteinsson skrifar Skoðun Breytum þessari sérhagsmunagæslu Aðalsteinn Leifsson skrifar Skoðun Laumu risinn í landsframleiðslunni Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Sagnaarfur Biblíunnar – Sköpun og paradísarmissir Dr. Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Hver er stefna Viðreisnar í heilbrigðismálum og hvernig virkar hún í praksis? Sigurrós Huldudóttir skrifar Skoðun Hvernig getum við gert Ísland að eftirsóttum stað fyrir barnafjölskyldur? Birgitta Sigurðardóttir skrifar Skoðun Plan í heilbrigðis- og öldrunarmálum - þjóðarátak í umönnun eldra fólks Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Samfylkingin er með plan um að lögfesta leikskólastigið Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Skúffuskýrslan sem lifði af Linda Heiðarsdóttir skrifar Skoðun Er barnið sjúkt í sykur? Elísabet Konráðsdóttir,Margrét Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Ákall um jákvæða hvata til grænna fjárfestinga Kristín Þöll Skagfjörð skrifar Skoðun Fatlað fólk á betra skilið Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar Skoðun 27-faldur hagnaður!? Ásthildur Lóa Þórsdóttir skrifar Sjá meira
Nýlega lagði ég fram þingsályktunartillögu um stóraukinn stuðning og fræðslu fyrir foreldra barna sem greinst hafa með ADHD. Markmið tillögunnar er að tryggja foreldrum þessa hóps gjaldfrjálsan aðgang að námskeiðum, hagnýtum verkfærum og leiðsögn sem eflir sjálfstraust þeirra og öryggi í uppeldinu. Við vitum að ADHD getur haft áhrif á mörgum sviðum lífsins, hvort sem er í námi, samskiptum eða daglegum athöfnum. Um eitt af hverjum tíu börnum tilheyrir þessum hópi, sem þýðir að í venjulegum kennslustofum eru að minnsta kosti 2–3 börn með ADHD sem þurfa stuðning og skilning til að blómstra. Börn með ADHD búa yfir einstökum hæfileikum – ofurkrafti sem má virkja með réttri umgjörð og stuðningi. Það er samfélagslegt hlutverk okkar að skapa þessum öflugu einstaklingum aðstæður sem gera þeim kleift þeim að blómstra, þannig að orka þeirra og sköpunargáfa fái notið sín. Stuðningur og námskeið fyrir foreldra Að ala upp barn með ADHD getur verið frábrugðið hefðbundnu uppeldi. Foreldrar þurfa oft að mæta nýjum áskorunum og aðlagast breytilegum þörfum barnsins. Þau sem hafa leitað sér fræðslu eru þó mörg sammála því að vilja enn meiri aðstoð og tæki til að styðja börnin sín í námi og félagslífi. Það er því gleðilegt að námskeið fyrir foreldra barna með ADHD hafa orðið algengari á síðustu árum, og reynsla sýnir að þau eru gagnleg. Slík námskeið veita foreldrum innsýn og þekkingu um áskoranir og styrkleika barna með ADHD, jafnt sem þau hafa jákvæð áhrif á nám og félagsfærni barna. Slík námskeið ættu því að vera aðgengileg öllum foreldrum, óháð efnahag. Loksins! Í síðustu viku bárust jákvæðar fréttir af nýju foreldranámskeiði ADHD samtakanna, „Kærleikur í kaos,“ sem heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson, opnaði formlega. Námskeiðið er nú öllum aðgengilegt á vef ADHD samtakanna. „Kærleikur í kaos“ er netnámskeið í fimm gagnvirkum hlutum, sem foreldrar geta nýtt á sínum hraða, hvar og hvenær sem hentar. Byggt á danska námskeiðinu KIK – Nu!, sem hefur verið þýtt og aðlagað á íslensku. Umrætt námskeið hefur hlotið alþjóðlegar viðurkenningar fyrir árangur. Rannsóknir sýna að námskeiðið eflir uppeldisfærni foreldra, dregur úr árekstrum og styrkir samband foreldra og barns. Ég hvet áhugasöm til að kynna sér námskeiðið á vefsíðu ADHD samtakanna – Kærleikur í kaos. Ég vil þakka ADHD samtökunum innilega fyrir öflugt starf í þágu barna og ungmenna og heilbrigðisráðherra fyrir stuðning sinn við verkefnið. Ég er sannfærð um að þessi fjárfesting muni stuðla að betri lífsgæðum fyrir börn og fjölskyldur með ADHD og auka enn framlag þessa öfluga hóps til samfélagsins okkar. Höfundur er þingmaður og frambjóðandi í 2. sæti Framsóknar í Reykjavík Norður
„Öllum er fkn drull, haltu kjafti“ Bríet Bragadóttir,Hjördís Lára D. Ingólfsdóttir,Kristjana Anna Dagnýjardóttir Skoðun
Hvernig getum við gert Ísland að eftirsóttum stað fyrir barnafjölskyldur? Birgitta Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Uppbyggileg réttvísi (e. Restorative Justice) Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun „Öllum er fkn drull, haltu kjafti“ Bríet Bragadóttir,Hjördís Lára D. Ingólfsdóttir,Kristjana Anna Dagnýjardóttir skrifar
Skoðun Ungt fólk, hvatningar til að nýta kosningarétt sinn og að mynda sér eigin skoðun Elmar Ægir Eysteinsson skrifar
Skoðun Hver er stefna Viðreisnar í heilbrigðismálum og hvernig virkar hún í praksis? Sigurrós Huldudóttir skrifar
Skoðun Hvernig getum við gert Ísland að eftirsóttum stað fyrir barnafjölskyldur? Birgitta Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Plan í heilbrigðis- og öldrunarmálum - þjóðarátak í umönnun eldra fólks Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
„Öllum er fkn drull, haltu kjafti“ Bríet Bragadóttir,Hjördís Lára D. Ingólfsdóttir,Kristjana Anna Dagnýjardóttir Skoðun
Hvernig getum við gert Ísland að eftirsóttum stað fyrir barnafjölskyldur? Birgitta Sigurðardóttir Skoðun