Greiningaraðilar sammála um að vextir verði lækkaðir í fyrramálið Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 19. nóvember 2024 12:49 Lilja Sólveig Kro hagfræðingur hjá Arion banka býst við því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands muni lækka stýrivexti í fyrramálið. Aðsend Hagfræðingur hjá Arion greiningu telur líklegast að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands muni lækka vexti um núll komma fimm prósent á morgun, þegar vaxtaákvörðun verður kynnt. Verðbólga sé farin að hjaðna og verðbólguhorfur fari batnandi.
Á Innherja á Vísi er umfjöllun um næstu ákvörðun Peningastefnunefndar. Fréttamaður leitaði til greinenda á fjármálamarkaði, sjóðstjóra, hagfræðinga og stjórnenda lífeyrissjóða. Enginn vafi virtist leika á því að vaxtalækkunarferlið muni halda áfram – eina spurningin sé hversu stórt skref verði stigið. Lilja Sólveig Kro, hagfræðingur hjá Arion greiningu, er þar ekki undanskilin. „Það má segja að vaxtalækkunarferlið hafi hafist í október og greiningaraðilar eru sammála um að vextir verði lækkaðir á morgun, spurningin er hversu mikið þeir verða lækkaðir. Það eru fimm einstaklingar í þessari nefnd og þeir hafa sínar skoðanir og eru kannski ekkert endilega að horfa á sömu hlutina. Það er ekki gefið hvað þeir gera en við teljum líklegast að þeir lækki vexti um 50 á morgun,“ segir Lilja Sólveig. Það sem styðji slíka ákvörðun helst séu að háu vextirnir sem þjóðin hefur búið við séu farnir að hafa áhrif á hagkerfið. „Það er að hægja á og verðbólga er að minnka. Hún mælist núna 5,1% og við væntum þess að hún lækki niður í 4,5% í nóvember þannig að verðbólguhorfur eru að batna sem gefur Seðlabankanum tækifæri til að lækka nafnvexti en halda sama aðhaldi í gegnum raunvexti.“ Nokkrir óvissuþættir geti þó orðið þess valdandi að einhverjir nefndarmanna vilji taka varfærari skref. „Við gerum ráð fyrir því að vextir verði lækkaðir um 50 punkta en það gæti farið svo að nefndin ákveði að taka minni skref þar sem það eru blikur á lofti á vinnumarkaði og óvissa varðandi kosningar og nú sjáum við líka að þrátt fyrir að hagkerfið sé byrjað að hægja á sér þá eru að berast vísbendingar sem sýna að það er ennþá töluverður kraftur í hagkerfinu, til dæmis tölur um kortaveltu sem voru að berast fyrir helgi sem sýna sex prósent vöxt í kortaveltu Íslendinga svo það er alveg ástæða til að sýna meiri varkárni og taka minni skref en svo gæti líka nefndin metið það svo að verðbólguhorfur séu búnar að batna það mikið og verðbólga muni koma hraðar niður en þeir gerðu áður ráð fyrir.“
Seðlabankinn Arion banki Fjármálamarkaðir Efnahagsmál Tengdar fréttir „Allt galopið“ en mikill meirihluti telur að bankinn láti 50 punkta lækkun duga Horfur eru á að raunvaxtastigið fari ört hækkandi á komandi mánuðum, mun meira en peningastefnunefnd Seðlabankans hefur sagt nauðsynlegt til að ná niður verðbólgu í markmið, og því er nefndin undir þrýstingi um að ráðast í að lágmarki fimmtíu punkta vaxtalækkun að mati mikils meirihluta markaðsaðila. Á meðan sumir álíta að „skortur á kjarki“ muni aftra því að tekið verði enn stærra skref þótt svigrúm sé til þess, samkvæmt könnun Innherja, þá nefna aðrir að peningastefnunefndin vilji sýna varfærni og horfi meðal annars til meiri fjárlagahalla en upphaflega var ráðgert og óvissu á opinberum vinnumarkaði. 18. nóvember 2024 07:33 Raunstýrivextir eru að „dúndrast upp“ sem gæti opnað á 75 punkta lækkun Flestir hagvísar sýna að það er að hægjast verulega um í hagkerfinu og peningastefnunefnd Seðlabankans, sem birtir síðustu vaxtaákvörðun sína á árinu um miðja næstu viku, mun að líkindum horfa mjög til þess við mat á raunstýrivöxtum á komandi mánuðum. Að óbreyttu er útlit fyrir að raunstýrivextir séu að fara „dúndrast“ upp þegar kemur inn á nýtt ár, að sögn skuldabréfamiðlara, sem telur ekki ólíklegt að nefndin muni því núna ráðast í 75 punkta vaxtalækkun. 12. nóvember 2024 11:43 Mest lesið Fékk 542 þúsund króna rukkun fyrir hreindýrakjötið Neytendur Flóðin á Spáni hafa áhrif á jólahefð Íslendinga Neytendur Samkaup koma inn á bókamarkaðinn með látum Viðskipti innlent Sósustormur í Bretlandi rakinn til verkfalls hjá Bakkavör Viðskipti erlent Allir spá lægri vöxtum Viðskipti innlent Grindvíkingar geta nú gerst „hollvinir“ seldra húsa sinna Viðskipti innlent Þola gluggarnir þínir íslenskt veðurfar? Samstarf Rúnar nýr framkvæmdastjóri hjá Stólpum Gámum Viðskipti innlent Samtökin '78 selja slotið Viðskipti innlent Bein útsending: Grænt Ísland til framtíðar – Hver er leiðin áfram? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samtökin '78 selja slotið Allir spá lægri vöxtum Grindvíkingar geta nú gerst „hollvinir“ seldra húsa sinna Samkaup koma inn á bókamarkaðinn með látum Rúnar nýr framkvæmdastjóri hjá Stólpum Gámum Bein útsending: Tillögur um tækifæri til viðskipta með kolefniseiningar Bein útsending: Grænt Ísland til framtíðar – Hver er leiðin áfram? Trausti nýr forstjóri og fimmtíu sagt upp hjá Controlant Uppsagnir hjá Controlant Guðmundi falið að bera ábyrgð á hugverkum Carbfix Vonar að íslenskir verktakar hafi enn áhuga á Grænlandi Kynna nýja samheitaorðbók sem samin er með hjálp gervigreindar Skerðingum að hluta frestað þökk sé hlýindum Sólrún, Brynjar og Aníta til Reita „En við getum aldrei talað um að hann sé að gera þetta fyrir vin sinn“ KS við það að kaupa B. Jensen Icelandair byrjar að fljúga til Istanbúl Tugmilljarða viðsnúningur hjá Alvotech Spá því að nefndin lækki stýrivexti duglega Spá því að verðbólgan fari í 4,5 prósent Telur enga frétt í leyniupptökunum um hvalveiðar Bein útsending: Leiðir til að lækka vexti Hagnaður Sýnar dróst verulega saman milli ára Húsið sem keypt var á þrjár milljónir til sölu á 83 milljónir Spá hressilegri vaxtalækkun Lentu vélum easyJet örugglega á Akureyri þrátt fyrir hvassviðri Kaupmáttur á opinberum markaði minni vegna lausra samninga Þrjú ráðin til Tryggja Arna innkallar kaffiskyr með vanillubragði Bein útsending: Kosningafundur Viðskiptaráðs - Horfum til hagsældar Sjá meira
„Allt galopið“ en mikill meirihluti telur að bankinn láti 50 punkta lækkun duga Horfur eru á að raunvaxtastigið fari ört hækkandi á komandi mánuðum, mun meira en peningastefnunefnd Seðlabankans hefur sagt nauðsynlegt til að ná niður verðbólgu í markmið, og því er nefndin undir þrýstingi um að ráðast í að lágmarki fimmtíu punkta vaxtalækkun að mati mikils meirihluta markaðsaðila. Á meðan sumir álíta að „skortur á kjarki“ muni aftra því að tekið verði enn stærra skref þótt svigrúm sé til þess, samkvæmt könnun Innherja, þá nefna aðrir að peningastefnunefndin vilji sýna varfærni og horfi meðal annars til meiri fjárlagahalla en upphaflega var ráðgert og óvissu á opinberum vinnumarkaði. 18. nóvember 2024 07:33
Raunstýrivextir eru að „dúndrast upp“ sem gæti opnað á 75 punkta lækkun Flestir hagvísar sýna að það er að hægjast verulega um í hagkerfinu og peningastefnunefnd Seðlabankans, sem birtir síðustu vaxtaákvörðun sína á árinu um miðja næstu viku, mun að líkindum horfa mjög til þess við mat á raunstýrivöxtum á komandi mánuðum. Að óbreyttu er útlit fyrir að raunstýrivextir séu að fara „dúndrast“ upp þegar kemur inn á nýtt ár, að sögn skuldabréfamiðlara, sem telur ekki ólíklegt að nefndin muni því núna ráðast í 75 punkta vaxtalækkun. 12. nóvember 2024 11:43