Settu Íslandsmet í nýrri grein á HM Sindri Sverrisson skrifar 14. desember 2024 13:12 Jóhanna Elín Guðmundsdóttir, Einar Margeir Ágústsson, Guðmundur Leó Rafnsson og Snæfríður Sól Jórunnardóttir settu Íslandsmet í nýrri grein á HM í dag. SSÍ Boðsundssveit Íslands endurtók leikinn frá því í gær og setti nýtt Íslandsmet í dag, á næstsíðasta degi heimsmeistaramótsins í sundi í 25 metra laug, sem fram fer í Búdapest. Það var þó í raun óhjákvæmilegt að setja met í dag.
Sveit Íslands í dag var nánast sú sama og setti Íslandsmet í 4x50 metra skriðsundi í gær. Í dag var þó Einar Margeir Ágústsson í hópnum í staðinn fyrir Símon Elías Statkevicius, en áfram þær Jóhanna Elín Guðmundsdóttir og Snæfríður Sól Jórunnardóttir, og Guðmundur Leó Rafnsson. Þau kepptu í 4x100 metra fjórsundi en það er ný grein á mótinu og í fyrsta sinn sem að íslensk sveit keppir í henni. Þau urðu í 19. sæti af 35 sveitum, á 3:45,01 mínútum. Einnig var keppt í einstaklingsgreinum í dag. Jóhanna Elín synti 50m skriðsund á tímanum 25,28 sem jafnframt er þriðji besti tími hennar í greininni, hún varð í 44 sæti, besti tími Jóhönnu er 25,08. Símon Elías synti einnig 50m skriðsund og synti í annað sinn undir 22 sekúndum, eða á 21,98 sem er aðeins 5/100 frá Íslandsmetinu sem hann setti á ÍM25 í nóvember. Símon Elías varð í 38 sæti. Snorri Dagur Einarsson synti 50m bringusund á tímanum 27,07 sem er örlítið frá hans besta tíma, 26,92, sem hann synti á ÍM25 í nóvember. Snorri varð í 39. sæti. Á morgun er lokadagur þar sem fróðlegt verður að fylgjast með framgöngu Snæfríðar Sólar Jórunnardóttur í sinni sterkustu grein, 200 metra skriðsundi. Guðmundur Leó Rafnsson keppir í 200 metra baksundi og sveit Íslands í 4x100 metra fjórsundi karla.
Sund Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Ég er rígmontinn af þeim” Fótbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Timber klár í slaginn Wenger treystir á Arteta: „Eitthvað sem maður hugsar um og gleymir aldrei“ Slot rekinn frá Liverpool Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Lætur hnefana tala HM minningin: Tár vandræðagemlingsins bræddu hjörtu heillar þjóðar Þykja Alpine liðið vera of dýrt Dagskráin í dag: Landar Arsenal þeim stóra? Þrír líklegustu dottnir úr leik „Betra liðið tapaði” „Ég er rígmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Alcaraz fann til með Sinner Doncic flytur félag til Rómar „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Sjá meira