Fótbolti

Tók „erfiðustu á­kvörðun ævinnar“ og fór til Valencia

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Carlos Corberan átti góðar stundir hjá West Bromwich Albion.
Carlos Corberan átti góðar stundir hjá West Bromwich Albion. Andrew Kearns - CameraSport via Getty Images

Valencia hefur verið í miklum vandræðum það sem af er tímabils, liðið hefur nú sótt sér nýjan þjálfara. Carlos Corberan var keyptur út úr starfi sínu sem þjálfari West Bromwich Albion. Hann segir það erfiðustu ákvörðun lífs síns að fara frá enska félaginu.

Ruben Baraja var rekinn úr þjálfarastarfi Valencia á mánudag. Valencia vildi fá Carlos Corberan í staðinn og greiddi WBA þrjár til fjórar milljónir punda fyrir hans krafta. Hann samþykkti svo persónuleg kjör í gær.

„Ég get ekki byrjað að lýsa því hvað mér þykir vænt um WBA, stuðningsmenn félagsins og alla sem tengjast því. Ég hef aðeins fundið fyrir ást á mínum tveimur árum hér og að yfirgefa félagið hefur verið erfiðasta ákvörðun ævi minnar“ sagði Corberan í opnu bréfi til stuðningsmanna.

Corberan hefur endað með WBA í níunda og fimmta sæti ensku B-deildarinnar síðustu tvö tímabil. Þar áður hefur hann starfað sem aðstoðarþjálfari Marcelo Bielsa hjá Leeds, þjálfari Huddersfield Town og síðast Olympiacos í Grikklandi, en þaðan var hann rekinn eftir aðeins tvo sigra í fyrstu ellefu leikjunum.

Ruben Baraja tók við Valencia í fallsæti í febrúar 2023 en tókst að halda liðinu uppi síðustu tvö tímabil.Eric Alonso/Getty Images

Corberan á ærið verkefni fyrir höndum hjá Valencia. Liðið er í fallsæti í spænsku úrvalsdeildinni og hefur aðeins unnið tvo af fyrstu sautján deildarleikjunum. Síðustu fimm tímabil hefur Valencia ekki endað ofar en í níunda sæti.

Fyrsti leikurinn verður gegn Real Madrid þann þriðja janúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×