Innherji

Út­gáfuáætlun ríkis­bréfa upp á um 180 milljarða í hærri kantinum

Hörður Ægisson skrifar
Áfram mun ríkisbréfaútgáfa verða uppistaðan í fjármögnun ríkissjóðs en gert er ráð fyrir útgáfu ríkisbréfa fyrir samtals um 180 milljarða að söluvirði á árinu.
Áfram mun ríkisbréfaútgáfa verða uppistaðan í fjármögnun ríkissjóðs en gert er ráð fyrir útgáfu ríkisbréfa fyrir samtals um 180 milljarða að söluvirði á árinu. Vilhelm Gunnarsson

Áætlað er að heildarútgáfa ríkisbréfa á árinu 2025 verði um 180 milljarðar króna, nokkuð meira en í fyrra, en til að mæta lánsfjárþörf ríkissjóðs kemur jafnframt til greina að ganga á innstæður í erlendum gjaldeyri hjá Seðlabankanum. Umfang nýbirtrar útgáfuáætlunar Lánamála er heldur í hærri kantinum miðað við væntingar fjárfesta og markaðsaðila og hefur ávöxtunarkrafa lengri ríkisbréfa hækkað á markaði í dag.


Tengdar fréttir

Verðbólgu­væntingar heimila og fyrir­tækja nálgast sömu gildi og fyrir far­aldur

Ný könnun á verðbólguvæntingum fyrirtækja og heimila, bæði til skemmri og lengri tíma, sýnir að þær halda áfram að lækka skarpt og eru núna að nálgast sömu slóðir og fyrir farsóttina í upphafi ársins 2020. Nokkur samstaða er á meðal greinenda og hagfræðinga um verðbólguþróunina í desember og miðað við spár er útlit fyrir að hún muni haldast nánast óbreytt milli mánaða en verði síðan komin undir fjögur prósent snemma á nýju ári.

Ís­lensk ríkis­bréf ekki „jafn krassandi“ með hækkandi langtíma­vöxtum erlendis

Hækkandi vextir á löng ríkisskuldabréf úti í heimi að undanförnu, einkum í Bandaríkjunum, hefur leitt til þess að langtímavaxtamunur við útlönd hefur lækkað og íslensk ríkisbréf eru því „ekki jafn krassandi“ í augum erlendra fjárfesta og margir gætu haldið, að sögn seðlabankastjóra. Mikil gengisstyrking krónunnar, einkum drifin áfram af fjármagnshreyfingum, er „innan jafnvægis“ en hún hefur haldist á tiltölulega þröngu bili um langt skeið.

Krónan styrkist þegar ríkis­bréfin komust á radarinn hjá er­lendum sjóðum

Eftir að hafa styrkst um meira en þrjú prósent á örfáum vikum er gengi krónunnar núna nálægt sínu hæsta gildi á móti evrunni á þessu ári. Krónan veiktist nokkuð skarpt í ágústmánuði, einkum þegar fjárfestar fóru að vinda ofan af framvirkum stöðum sínum, en nú hefur sú þróun snúist við samhliða því að erlendir sjóðir hafa verið að sýna íslenskum ríkisbréfum aukinn áhuga, að sögn sérfræðinga á markaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×