Innlent

Allir sem hafi í­hugað formannsframboð hljóti að gera það í dag

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Elliði Vignisson er bæjarstjóri í Ölfusi.
Elliði Vignisson er bæjarstjóri í Ölfusi. Vísir/Egill

Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi, segir að honum hafi til þessa ekki staðið hugur til að gefa kost á sér til forystu í Sjálfstæðisflokknum þótt nafn hans hafi oft komið upp í umræðunni um það hverjir kynnu að taka við formennsku af Bjarna Benediktssyni. Bjarni greindi frá því í dag að hann sé á förum úr forystu flokksins og af Alþingi.

Elliði gefur hins vegar lítið út um það hvort sú afstaða hans hafi breyst eftir tíðindi dagsins. „Ef að einhver hefur einhvern tímann íhugað formannsframboð í Sjálfstæðisflokknum hljóta að gera það í dag,“ segir Elliði í samtali við Vísi.

Sjálfur hafi hann aldrei gefið kost á sér til forystuhlutverks hjá flokknum. Staðan í flokknum núna sé hins vegar fordæmalaus hvað varðar þau miklu tækifæri sem flokkurinn standi frami fyrir að mati Elliða.

„Tækifæri til þess að efla og breyta samtalinu við þjóðina og ég mun gera allt sem ég get til að láta af mér kveða í þeim efnum.“

Hann gefur þó ekkert út, af eða á, um það hvort til greina komi að hann gefi kost á sér til forystu. „Ég hef hingað til ekki haft neinar ambisjónir í þessa átt og það hefur ekki breyst á þeim sjö mínútum sem eru liðnar síðan ég frétti þetta,“ segir Elliði léttur í bragði, en fréttastofa náði af honum tali fljótlega eftir að fyrir lá að Bjarni myndi ekki gefa kost á sér áfram.

En þú útilokar ekki þann möguleika að bjóða þig fram?

„Ég fullyrði að ég mun mæta á næsta landsfund,“ segir Elliði um leið og hann bendir á að alla sem sæti eigi á landsfundi sé hægt að kjósa til formanns.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×