Fótbolti

Hvíldu stór­stjörnurnar sínar en brunuðu á­fram í bikarnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
 Luka Modric fagnar marki með ungum liðsfélögunum sínum í kvöld.
 Luka Modric fagnar marki með ungum liðsfélögunum sínum í kvöld. Getty/Mateo Villalba

Real Madrid er komið áfram í sextán liða úrslit spænsku bikarkeppninnar eftir öruggan útisigur á Deportiva Minera í 32 liða úrslitum Konungsbikarsins í kvöld.

Real Madrid vann leikinn 5-0 eftir að hafa skorað þrjú mörk á fyrsta hálftíma leiksins.

Deportiva Minera er í D-deild spænska boltans og því þremur deildum fyrir neðan Real.

Þessi úrslit koma því ekki mikið á óvart og Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid, ákvað líka að hvíla lykilmenn sína í leiknum.

Menn eins og Vinícius Júnior, Kylian Mbappé og Jude Bellingham byrjuðu allir á bekknum. Vinícius og Mbappé komu báðir inn á sem varamenn síðasta hálftíma leiksins.

Federico Valverde skoraði fyrsta markið strax á fimmtu mínútu og Eduardo Camavinga bætti við öðru marki á fjórtándu mínútu. Arda Güler kom Real síðan í 3-0 á 28. mínútu eftir stoðsendingu frá Federico Valverde.

Valverde var með mark og stoðsendingu í fyrri hálfleiknum og var tekinn af velli í hálfleik.

Luka Modric skoraði fjórða markið á 55. mínútu eftir stoðsendingu frá Brahim Diaz.

Tyrkinn Güler bætti við sínu öðru marki í leiknum tveimur mínútum fyrir leikslok.

Braslíski táningurinn Endrick spilaði í fremstu víglínu hjá Real en náði ekki að komast á blað í leiknum.

Þetta var samt sannkölluð stórskotahríð því leikmenn Real Madrid reyndu 33 skot í leiknum.  Umræddur Endrick átti sex þeirra. Alls fékk Real sextán góð marktækifæri en mörkin urðu bara fimm.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×