Erlent

Heil­brigðis­yfir­völd hafa lýst yfir neyðar­á­standi

Rafn Ágúst Ragnarsson og Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifa
Hverfið Pacific Palisades hefur farið einna verst út úr eldunum.
Hverfið Pacific Palisades hefur farið einna verst út úr eldunum. AP/Ethan Swope

Slökkviliðið í Los Angeles hefur fyrirskipað tæplega 150 þúsund manns að rýma heimili sín vegna gróðurelda. Heilbrigðisyfirvöld hafa lýst yfir neyðarástandi.

Sterkir vindar fóru að blása aftur í Kaliforníu í morgun eftir að það lægði ögn í gær. Rokið hefur gert slökkviliðsmönnum mjög erfitt fyrir að berjast við gróðureldana sem brenna allt í kring um borgina, þar sem hefur ekki rignt í meira en átta mánuði.

Minnst tíu þúsund hús brunnin

Slökkvilið hafa þurft að sækja vatn um langan veg þar sem ekkert vatn er sums staðar að finna í brunahönum.

„Sérstaklega fyrstu tvo dagana var þetta ótrúlegt. Maður kemur inn í hverfi sem er bókstaflega í björtu báli og við sitjum uppi með slökkvibíl með tvö þúsund lítra af vatni því kerfið hérna er vatnslaust. Svo þetta er erfitt. Þetta gerir okku erfitt fyrir,“ segir Derek Blenkarn, slökkviliðsstjóri í San Bernardino.

Talið er að minnst 10 þúsund hús hafi orðið eldinum að bráð og minnst tíu látið lífið. Margir þeirra sem hafa flúið heimili sín dvelja nú í fjöldahjálparstöðvum.

Heimili rústir einar

„Eldurinn æddi áfram. Hann var ekki kominn að húsinu mínu en ég vaknaði og sá hann nálgast svo ég varð að hefja brottflutning og taka hundana mína. Ég hafði ekki nóg vatn. Það var ekkert vatn og húsið mitt brann til grunna,“ segir Jim Mayfield, íbúi í Los Angeles.

„Við bjuggum í Altadena í 25 ár og nú er allt horfið. Allt úr húsinu, bílarnir, allir pappírar, allt. Við fórum í fötunum se mvið stóðum í og skildum allt annað eftir,“ segir José Luís Godinez, íbúi í Altadena sem hefur farið einna verst úr eldunum.

Einhverjir hafa snúið aftur til að skoða rústir heimila sinna.

„Ég held að við séum leiðari yfir að missa samfélagið en húsið okkar. Eins og sonur minn sagði: Ef þetta væri bara húsið okkar væri allt í lagi með okkur. Við myndum bara byggja það aftur og flytja aftur inn í þetta samfélag. Nú þurfum við að fylgjast með enduruppbyggingu alls samfélagsins. Það er erfiðast við þetta allt saman,“ segir Jackie Hassett, íbúi í Pacific Palisades.


Tengdar fréttir

Stóru eldarnir enn hömlulausir

Tíu eru látnir í gróðureldunum í Los Angeles í Kaliforníu í Bandaríkjunum og óttast að um 10 þúsund byggingar séu ónýtar. Eldarnir hafa farið yfir að minnsta kosti 140 ferkílómetra.

Eldar brenna stjórnlaust um alla Los Angeles

Eldarnir í Los Angeles brenna enn glatt og nú er staðan þannig að sjö aðskildir eldar brenna nú víðsvegar um úthverfi borgarinnar, þar á meðal í Hollywood hæðum þar sem stjörnurnar búa.

Stjórnlausum eldum fjölgar í LA

Mikil óreiða ríkir í úthverfum Los Angeles í Bandaríkjunum vegna stjórnlausra gróðurelda. Að minnsta kosti fjórir eldar loga á svæðinu og dreifist hratt úr þeim vegna þurrka og sterkra vinda. Slökkviliðsmenn ráða ekkert við ástandið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×