Skoðun

Hlustum á starfs­fólk ríkisins

Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar

Ný ríkisstjórn hefur sett sér markmið um hagkvæmari ríkisrekstur, leitað samráðs við þjóðina og hafa þúsundir tillagna borist frá almenningi. En merkilegt nokk hefur ekki enn verið leitað álits hjá þeim sem þekkja best til ríkisrekstrar – starfsfólki ríkisins.

Við hjá Visku stéttarfélagi ákváðum því að spyrja sérfræðinga ríkisins beint um hvað mætti betur fara. Könnunin var send á um annað þúsund félaga okkar hjá ríkinu og um 400 tóku þátt. Niðurstöðurnar eru um margt sláandi og stjórnvöldum ber að leggja við hlustir.

Flatur niðurskurður kemur niður á okkur öllum

85% sérfræðinga hjá ríkinu telja mögulegt að hagræða á sínum vinnustað að einhverju leyti, en telja samráði við starfsfólk hafa verið verulega ábótavant síðustu ár. Einn sem sendi inn álit til Visku orðar það vel: „Stjórnvöld virðast ekki alltaf vita hvaða starfsemi á sér stað á stofnunum…raunverulegt samtal og samráð sparar mikla fjármuni“.

Svörin benda flest til hins sama – kunnátta ríkisstarfsfólks er vannýttur auður og hagræðing hefur ekki verið samstarfsverkefni. Fólk hefur áhyggjur af forgangsröðun verkefna og flötum, ómarkvissum niðurskurði sem í mörgum tilfellum hefur komið niður á þjónustu, valdið auknu álagi á starfsfólk og töluverðri undirmönnun á stofnunum. Þessu þarf að breyta.

Tækifærin liggja í að fjárfesta í starfsfólki

Þegar rætt er um hagræðingu í ríkisrekstri er oft horft til starfsmannahalds, þrátt fyrir að samkvæmt tölum Hagstofunnar fari aðeins um 20-25% af rekstrarútgjöldum ríkisins í laun. Þessi nálgun, sem virðist þráhyggjukennt áhugamál atvinnulífsins, litast oft af fordómum fyrir þeim mikilvægu störfum sem unnin eru af opinberu starfsfólki.

Eins og einn bendir á: Mér þykir miður að fylgjast með umræðu um fólk í stjórnsýslu. Við höfum litla rödd sem mótvægi við þær háværu raddir sem tala okkur niður.“ Staðreyndin er sú að opinbert starfsfólk sinnir ómetanlegri þjónustu við fólkið í landinu og er burðarás velferðarsamfélagsins.

Með þessu er gert lítið úr stærri hagræðingartækifærum. Samkvæmt könnun Visku er 56% aðspurðra frekar eða mjög sammála því að bæta megi ríkisrekstur með aukinni stafrænni væðingu og bættum ferlum, og um þriðjungur bendir á hagræðingartækifæri í innkaupum.

Það kostar að reka samfélag

Undanfarið hafa ýmsir á hægri væng stjórnmála reynt að telja þjóðinni trú um að hagvöxtur einn og sér geti fjármagnað opinber kerfi til framtíðar. Hægt sé jafnvel að lækka skatta verulega en á sama tíma varðveita velferðina á Íslandi. Þessi heimssýn gengur ekki upp.

Norræn velferðarsamfélög hafa sögulega séð veitt um 40% af landsframleiðslunni í opinber kerfi og þörfin mun síst minnka í framtíðinni. Það kostar nefnilega að reka samfélag. Þar með er ekki sagt að við eigum ekki að leita allra leiða til að forgangsraða og fara betur með fé. Við þurfum að forgangsraða fjármunum okkar í rétta hluti – t.d. löngu tímabæra launaleiðréttingu hjá kvennastéttum á opinbera markaðnum, stéttum sem eru í framlínu velferðarsamfélagsins.

Starfsfólk ríkisins vinnur ómetanlegt starf á hverjum degi í þágu samfélags og þjóðar. Nýrri ríkisstjórn ber að hlusta á starfsfólkið sitt, fjárfesta í störfum þeirra og bæta kjör og vinnuaðstæður, okkur öllum til heilla.

Höfundur er formaður Viskustéttarfélags.




Skoðun

Sjá meira


×