Sport

Björg­vin um harm­leikinn: „Hefði al­veg getað verið ég“

Aron Guðmundsson skrifar
Björgvin Karl Guðmundsson var um einni mínútu á eftir Lazar Dukic í fyrstu grein heimsleika Crossfit í fyrra. Lazar drukknaði í greininni og lét lífið.
Björgvin Karl Guðmundsson var um einni mínútu á eftir Lazar Dukic í fyrstu grein heimsleika Crossfit í fyrra. Lazar drukknaði í greininni og lét lífið. Vísir/Samsett mynd

„Þetta hefði alveg geta verið ég,“ segir Björg­vin Karl Guð­munds­son at­vinnu­maður í Cross­fit um and­lát keppi­nautar síns og kollega, Lazar Du­kic, á heims­leikum Cross­Fit í fyrra. Hann tekur undir gagn­rýni sem sett hefur verið fram á skipu­leggj­endur heims­leikanna og segir það miður að svona sorg­legur at­burður hafi þurft að eiga sér stað svo hlustað yrði á íþrótta­fólkið og áhyggjur þeirra.

Síðasta ár var, að sögn Björg­vins, hans versta ár síðan árið 2014. Hann náði sér ekki á strik á heims­leikunum, sem gengu ekki áfalla­laust fyrir sig. Serbinn Lazar Ducik fannst látinn eftir að hafa drukknað í fyrstu grein leikanna þar sem kepp­endur þurftu að hlaupa um fimm kíló­metra leið í steikjandi hita í Texas og svo synda í heitu vatni um 800 metra.

„Þetta er í raun fyrsta æfingin og það fer að ég held aldrei undir 40 gráðu loft­hita þarna í Texas,“ segir Björg­vin Karl. „Þeir ákveða að láta okkur hlaupa 5,5 kíló­metra og synda svo yfir vatn. Þvert yfir vatn þar sem er langt í alla bakka. Það voru fáir í vatninu að fylgjast með, það verður bara að segjast, og vatnið var bara heitt. Þetta var bara eins og mjög nota­leg sund­laug, dálítið eins og sund­laugin í Hvera­gerði jafn­vel aðeins heitari en hún. 

Þegar að loft­hitinn er svona mikill hækkar líkams­hitinn mjög mikið á sama tíma. Það verður svo að hafa það í huga að við erum hvorki at­vinnu­fólk í hlaupum né sundi þó við kunnum alveg að synda og margir betur en aðrir. Maður gat alveg sagt sjálfum sér að þetta væri að fara verða hættu­legt. En á sama tíma skráir maður sig á leikana og maður veit að það er alltaf ein­hvers konar áhætta sem maður er að taka.“

Björgvin Karl Guðmundsson er einn af okkar reynslumestu CrossFit íþróttamönnumMynd/Instagram/bk_gudmundsson

Vildi bara komast heim

Hins vegar hafi enginn búist við því sem átti eftir að gerast.

„Það bjóst enginn við því að ein­hver myndi allt í einu deyja á heims­leikunum. Menn gætu meitt sig og svona en að þetta færi svona langt átti í rauninni engin von á. Og það að vera í vatninu á sama tíma, Du­kic er kannski svona mínútu á undan mér, en maður hafði ekki hug­mynd um þetta. Hann drukknar, við komum í land og fljót­lega eftir það tekur maður eftir því að það sé eitt­hvað að gerast.“

Lazar Dukic sem lést á heimsleikunum í CrossFitInstagramsíða Lazar Dukic

„Maður heldur bara í vonina um að þetta verði í lagi en veit, þegar ein­hver er undir vatni í meira en mínútu eða tvær, að það sé erfitt að koma til baka. Restin af þessari helgi var ekki góð fyrir neinn. Hvort sem um ræðir móts­haldara, áhorf­endur eða þá sem voru að keppa. Þetta tók alveg hrika­lega á, meira fyrir suma en aðra og ég hugsaði í rauninni ekki um neitt annað en að komast heim. Að reyna sigla þessu skipi í land sem heims­leikarnir eru, því það er margt í húfi. Hvort sem að móts­haldarar hefðu hætt við að halda leikana eða gert þetta eins og þeir gerðu held ég að það sé ekkert rétt í þessari stöðu. Svo ein­hvern veginn þurftu bara allir að komast heim. Sá sem að vann leikana…jú frábært þú vannst en auðvitað var ekki sami sjarmi yfir þessu þegar að þessu lauk.“

„Stemning sem mig langar helst ekki til að upplifa aftur“

Ákveðið var að klára leikana.

„Það var náttúru­lega fullt af fólki sem sagði sig frá keppninni um leið og þetta gerist. Þetta gerist á fimmtu­degi og það er ákveðið að keppa ekki á föstu­degi en byrja keppnina aftur á laugar­degi og sunnu­degi. Þar með ertu búinn að taka út æfingar sem gætu hafa haft áhrif á niður­stöðu leikanna. Á laugar­deginum og sunnu­deginum er fólk hægt og ró­lega að hætta. Ein­hverjir klára þetta, aðrir hætta og geta ekki meira. Skrítin stemning sem mig langar helst ekki til að upp­lifa aftur. Bara alls ekki.“

Skipu­leggj­endur heims­leikanna voru harð­lega gagn­rýndir fyrir öryggis­mál þeirra og tekur Björg­vin Karl undir þá gagn­rýni og hefur þessi at­burður haft sín áhrif á hann.

„Til að byrja með er alveg hægt að hafa æfingu sem inni­heldur sund með ein­hverjum öðrum hætti en að senda okkur út í 40 gráðum og 32 gráðu heitu vatni til að synda ein­hverja 800 metra í. Við erum ekki af­reks­fólk í sundi. Mögu­lega hefði geta verið hægt að láta okkur byrja að synda og fara svo yfir í að hlaupa, minni líkur þar eða bara farið með okkur inn í sund­laug. Ég skyldi persónu­lega ekki af hverju þetta þurfti að vera svona. En það er alltaf auðvelt að vera vitur eftir á.“

„Getur rétt ímyndað þér hvað fór í gegnum hausinn á manni“

Þetta hafi ekki verið í fyrsta skipti sem sénsar voru teknir.

„Í gegnum tíðina hefur at­hygli verið vakin á hinum og þessum öryggis stöðlum á leikunum, það kemur yfir­leitt frá íþrótta­fólkinu sjálfu. Í gegnum tíðina hefur okkur fundist eins og þeir hafi ekki verið að hlusta neitt sér­stak­lega á okkur. Hafi ekki verið að breyta því sem við höfum verið að koma á fram­færi. Það eru strákar og stelpur í ákveðnum samtökum íþrótta­fólksins sem keppir á leikunum. Samtökin standa við bakið á okkur, eins konar stéttarfélag, og þau eru að gera sér­stak­lega góða hluti núna. Voru alveg að gera það fyrir þetta, en sér­stak­lega núna. Það virðist vera sem svo að þetta hafi verið það sem þurfti til þess að móts­haldarar, ekki bara heims­leikunum, heldur í keppnum um allan heim sé í samráði við íþrótta­fólkið varðandi það hvernig eigi að haga öryggis­reglum, hvað virkar og hvað ekki. Það er jákvætt. Það neikvæða er hins vegar að þetta hafi þurft að gerast til þess að ein­hver hafi farið að hlusta.“

Björgvin Karl, atvinnumaður í CrossfitVísir/Einar

Björg­vin Karl íhugaði sína stöðu gagn­vart leikunum en trúir því og treystir að skipu­leggj­endur heims­leikanna geri betur núna en þeir hafi verið að gera. At­vikið hafði sín áhrif á hann.

„Þetta hefði alveg geta verið þér. Þér að segja var Lazar einn af okkar betri sund­mönnum. Var at­vinnu­maður í vatns­póló og þeir þurfa nú heldur betur að vera syndir. Þú getur rétt ímyndað þér hvað fór í gegnum hausinn á manni. En á sama tíma er ég ekkert að hræðast vatn lengur eða þannig. Ég hef hins vegar ekki verið í miklum sundæfingum síðan þá, þetta er aðeins að byrja aftur núna og mér finnst ólík­legt að móts­haldara muni hafa svona æfingu aftur. Hún mun þá verða fram­kvæmd með miklu fleira fólk í vatninu og mér finnst mjög lík­legt að flest allt svona verði fært yfir í sund­laugar. Það er mín til­finning fyrir þessu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×